Læknaneminn


Læknaneminn - 01.06.1965, Side 37

Læknaneminn - 01.06.1965, Side 37
LÆKNANEMINN 37 til að taka næst fyrir tillögur til laga- breytinga, sem dreift hafði verið á síð- asta fundi, og vildu menn heldur kjósa í embætti eftir nýjum lögum en göml- um. Voru nú tillögurnar teknar til um- ræðu, en að þeim stóðu Baldur Fr. Sig- fússon, Bjarni Þjóðleifsson og Jón G. Stefánsson. Urðu þó nokkrar umræður um tillögur þeirra félaga. Hrafn V. Frið- riksson bar fram breytingartillögu á þá leið, að einn ritnefndarmanna skyldi úr I. hluta. Var sú tillaga felld. Er um- ræðum linnti, voru tillögurnar um hin nýju lög félagsins bornar undir atkvæði og samþykktar með nokkrum breyting- um. Féllu þá úr gildi hin eldri lög fé- lagsins frá 8.3. 1955 ásamt viðaukum og breytingum. Var þar margt úrelt orðið. Þessu næst var kosin stjórn félagsins og aðrir embættismenn samkvæmt hin- um nýju lögum. Stjórn varð sjálfkjörin: Formaður: Þórður Harðarson, III. hl. Ritari: Gunnlaugur Geirsson, III. hl. Gjaldkeri: Þorvarður Brynjólfsson, II. hl. Meðstjórnendur: Einar Sindrason, I. hl. og Þórarinn Sveinsson, I. hl. Varastjórn varð sjálfkjörin: 1. varamaður: Guðjón Magnússon, I. hl. 2. varamaður: Skúli Johnsen, II. hl. Ritnefnd varð sjálfkjörin: Ritstjóri: Gunnsteinn Gunnarsson, III. hl. Ritst jórnarmenn: Kristján Eyjólfsson, II. hl. og Magnús Skúlason, III. hl. Gjaldkeri: Skúli Johnsen, II. hl. Auglýsingastjórar: Hildur Viðarsdóttir, I. hl. og Margrét Georgsdóttir, I. hl. Sjálfkjörnir urðu: Stúdentaskiptastjóri: Viðar Hjartarson, II. hl. Ráðningastjóri: Eyjólfur Haraldsson, III. hl. Kvikmyndasýningast jóri: Halldór Baldursson, I. hl. Formaður kennslumálanefndar: Guðmundur Sigurðsson, II. hl. 1 kennslumálanefnd voru auk hans kosnir: Brynjólfur Ingvarsson, III. hl. og Kristján Eyjólfsson, II. hl. Endurskoðendur voru kosnir: Snorri Sveinn Þorgeirsson, II. hl. og Þorkell Bjarnason, I. hl. Að kosningum loknum voru teknar fyrir tillögur um nýjar reglugerðir fé- lagsins, og stóðu að þeim hinir sömu og að lögunum. Var fyrst tekin fyrir reglugerð um aðild félagsins að stærri samtökum, og voru þær tillögur sam- þykktar óbreyttar eftir litlar umræður. Meiri umræður urðu um tillögur til reglugerðar um kennslumálanefnd. Kom fram talsverð gagnrýni frá Viðari Hjart- arsyni og Valgarði Egilssyni. Tillaga kom fram frá Gunnari Þór Jónssyni um skipulagt umsjónarmannakerfi, þannig að eldri stúdentar í I. hl. taki að sér umsjón með námi hinna yngri og mið- hlutamenn aðstoði I. hluta menn við skipulagningu námsins. Tillögu þessari var vísað frá. Viðar Hjartarson lagði til að 4. grein tillagnanna, þar sem segir: . . „ skal kennslumálanefnd leitast við að fá því framgengt, að fulltrúi læknanema fái fundarsetu á deildar- fundum, þegar þau mál eru til umræðu, sem varða nemendur deildarinnar al- mennt, eins og segir í 21. gr. reglugerð- ar H.l. . .“, yrði felld niður, þar sem þetta væri hlutverk stjórnar félagsins, en ekki kennslumálanefndar. Fundurinn samþykkti tillögu Viðars. Voru síðan til- lögurnar bornar undir atkvæði í heild með talinni breytingu og reglugerðin samþykkt samhljóða. Tillögur um nýja reglugerð um náms- ferðir voru samþykktar samhljóða. Umgetnar þrjár reglugerðir öðluðust þegar gildi. Mönnum varð tíðrætt um tillögur þre- menninganna til reglugerðar um ráðn- ingar. Komu fram ýmsar skoðanir manna við misjafnar undirtektir, og verður ekki rakið hér, en tillögum þess- um var frestað til næsta fundar. Var þá dagskrá afgreidd, svo sem verða mátti, og menn teknir að þreyt- ast á langri fundarsetu. Þá kom fram eftirfarandi tillaga: „Aðalfundur Félags læknanema 1965 samþykkir að flytja Auðólfi Gunnars- syni, fyrrverandi formanni Stúdentaráðs H.I., sérstakar þakkir fyrir mjög vel unnin störf í þágu Stúdentaráðs og þar með stúdenta og Háskólans. Fundurinn telur, að Auðólfur hafi með formanns- starfi sínu mjög aukið hróður þeirrar stefnu i málefnum stúdentaráðs, sem þorri læknanema hefur barizt fyrir nú um nokkur ár.“

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.