Læknaneminn


Læknaneminn - 01.06.1965, Qupperneq 40

Læknaneminn - 01.06.1965, Qupperneq 40
LÆKNANEMINN 40 TtjTSTJðRNfiR- towm Ritstjórnarþankar á vori ætti pistill- inn sá ama eiginlega að heita. Að minnsta kosti ríkir hér ósvikinn vor- blær í lesstofu læknanema i Landspítal- anum, þar sem þetta er ritað; barsmíð og læti rétt handan við þilið í nýbygg- ingunni; einhvers staðar emjar loftbor; utan úr grunni Hjúkrunarskólans ber- ast skruðningar ýtu og annarra mokst- urstóla, og cðru hverju glymja hressi- legar sprengingar til að styrkja taugar prófmannanna, sem iða hér yfir skræð- unum, þvalir í lófum og teknir til augn- anna. Mönnum er eins gott að hafa styrka skapgerð, eigi þeir að standast þennan dýrðaróð til vorsins; að ekki sé nú minnzt á dvalargesti þessarar frið- sælu stofnunar, sjúklingana. En það eru fleiri en prófmenn og aðr- ir sjúklingar spítalans, sem líður ekki sem bezt um þessar mundir. Lærifeður okkar hafa fyrir löngu séð á bak flest- um lærisveinum sínum og gráta nú höfgum tárum í leynum. 1 staðinn reyna þeir, sem þess eiga kost, að fá útrás fyrir þekkingu sína og mælsku yfir námskeiðsstúdentum, sem hafa varla við að melta vísdóminn, uppveðraðir af þeirri umhyggju og alúð, sem umvefur þá á deildunum. Auk þessa hafa kenn- ararnir tekið einhvern kennslumálakipp, ef svo má segja, því að boðað hefur verið til fundar allra kennara deildar- innar og fulltrúa læknanema, þar sem ræða á kennsluna i deildinni. Vonandi má líta á þennan fund sem einskonar vorboða í þessum vanræktu málefnum. Já, dagarnir lengjast og dimman flýr i sjó, og ekki eru þar höfuðskepnurnar c!nar að verki. Dag nokkurn kom hér maður inn á lesstofuna, sannkallaður boðberi Ijóssins, með bordrelli einn mik- inn og annan vígbúnað, svo að íbúar herbergisins flúðu, enda keyrði þá há- vaðinn fyrst úr hófi. Skildi hann eftir leslampa tíu, kirfilega festa. Er nú út- rýmt hálfrökkri því, er rikti í lesbásum okkar í vetur, og svo eru prófmenn hrifnir af lömpunum, að þeir lesa nú um lágnættið til að geta notið birtu þeirra þessa smástund, sem sólin er á bak við norðurf jöllin. Með hækkandi sól breytist líka sitt hvað fleira hér á spítalanum, t.d. þrengja duttlungar tízkunnar sér inn hér sem annars staðar. Má e.t.v. einna gleggst sjá það á kollunum á blessuðu kvenfólkinu, hvort sem mönnum líkar sú hárstýfing betur eða verr. Einu góðu hefur hún þó líklega komið til leiðar: Hárum hefur farið fækkandi í matn- um, og finnast nú engin á borð við það, er undirritaður lét upp í sig eitt sinn í vetur, 50 cm langt, ljósgullið og lakk- að. Annars er maturinn hérna alls ekki svo fráleitur og varla tiltökumál, þótt hann hafi einstaka sinnum gengið með greiðara móti gegnum mannskapinn. Einkum er kvöldmaturinn fjölskrúðug- ur, svo að aðdáun vekur, þó kannski megi segja, að stundum keyri hug- kvæmnin I salattilbúningi lítið eitt úr hófi. Mun undirritaður seint gleyma svipnum á einum ágætum starfsbróður, þegar hann uppgötvaði togleðurstuggu í salatinu sínu og skilaði henni hið snarasta á diskinn aftur, enda var hún orðin bragðlaus og seig undir tönn. — En þetta var nú útúrdúr, að vísu vel skiljanlegur, því að alltaf er maturinn dálítið hugstæður, og mörgum um of. Hafi mönnum ekkert minnkað matar- lystin eftir þennan lestur, mætti vel geta þess í lokin, að Félag læknanema hyggur nú á glæsilega reisu í gróand- anum austur í sveitir, og er þar í inni- falin máltíð ein, væntanlega ekki af verri endanum. Er nánari upplýsingar að finna á öðrum stað í blaðinu, og skulu læknanemar eindregið hvattir til að grípa þetta einstaka tækifæri til að hrista af sér vetrarrykið, þótt falla kunni á þá annað ryk í staðinn. Góða ferð! ‘ B. F. S.

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.