Læknaneminn


Læknaneminn - 01.06.1965, Blaðsíða 9

Læknaneminn - 01.06.1965, Blaðsíða 9
LÆKNANEMINN 9 rannsóknir, er elzta greinin og sú, sem læknar hafa mest af að segja og hafa lagt mestan skerf til. Nærtækasta dæmi um þennan þátt málsins eru blóðflokkarann- sóknirnar, og er óhætt að segja, að nytsemi erfðafræðiþekkingar og hagnýtra erfðafræðirannsókna komi hvergi jafnskýrt fram og þar. Þarf ekki annað en minna á blóðgjafir, Rh-kerfið í sambandi við eftirlit vanfærra og ungbarna- gulu, sem á rót að rekja til þess kerfis, að ekki sé talað um nyt- semi blóðflokkarannsókna í sam- bandi við réttarlæknisfræði og mannfræðirannsóknir. Mætti telja upp miklu fleira þessu til staðfest- ingar. Þessi þáttur erfðafræðinnar veitir flestum læknum tækifæri til að nota þekkingu á erfðum í starfi sínu, og mun ég árétta þetta frek- ar á eftir. Verður nú nánar vikið að hinum þremur aðalflokkum læknisfræðilegrar erfðafræði með nokkrum dæmum. Litningarannsóknir. Með smásjárrannsókn á litn- ingasýnishornum hefur tekizt að ákvarða rétta tölu litninga í lík- amsfrumum manna, sem er 46. Þar með er að sjálfsögðu hægt að ákvarða frávik frá þeirri réttu tölu. Mismunur á stærð og lögun litn- inganna gerir mögulegt að flokka þá og tölusetja. Enda þótt bera megi kennsl á flesta þeirra, eru nokkrir svo líkir, að þeir verða ekki greindir sundur með öruggri vissu. Þrátt fyrir takmarkanir þær, sem smásjárrannsókn á manna- litningum er háð, svo sem áður er minnzt á og hafa ber í huga, hefur með þessari rannsóknarað- ferð tekizt að varpa ljósi á margs- konar afbrigðilegar litningamynd- ir og skýra orsakaþætti sjúk- dómsmynda, sem læknar kunnu áður takmörkuð eða engin skil á. Helztu breytingar, sem geta orðið á lögun og fjölda litning- anna eru þessar: (1) Litningahluti getur brotn- að frá og glatazt (delet- ion). (2) Afbrigðileg víxlun getur orðið á litningahlutum, þ. e. endaskipti með rangri röð erfðastofna gagnvart réttliggjandi samstæðum litningahluta (inversion) eða tvöföldun erfðastofna á sama litningi (duplicat- ion). (3) Átt getur sér stað svoköll- uð „translocation“, þ. e. litningahlutar ólíkra litn- inga, venjulega misstór- ir, víxla stöðum. Til að slíkt komi fyrir, verður að brotna af tveim litningum, því að heill litningur veitir ekki viðtöku eða festingu litningahluta. Hin sýnilega afleiðing slíkrar víxlunar er, að einn litningur verð- ur minni, en annar stærri. Talið er sennilegt, að ein- staklingur, sem erfir hinn minni litning, sé ólífvæn- legur en sá, sem hinn stærri fær, verði afbrigðilegur (mongól-einstaklingur). (4) Samstæðir litningar eiga það til að losna ekki sund- ur við kynfrumuskiptingu. Fara þá báðir litningar í sömu kynfrumu (gamete). Slík breyting er afleiðing af slysi, sem verður í rýri- skiptingu kynfruma (meio- sis) og kallast þetta fyrir- brigði ,,non-disjunction“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.