Læknaneminn - 01.03.1970, Síða 7
LÆKNANEMINN
7
2. mynd I. flokkur: Einstakir ather-
omatös flekkir, er taka yfir minna en
25% af innra borði æðarinnar og þá
með eða án smá blóðsega.
mynd fyrir sig. (Sjá myndir 2—
5).
Þótt hér séu gefnar nokkuð
ákveðnar línur til að fara eftir við
mat á æðakölkun á þessu svæði,
er þó ekki að synja fyrir, að á
vantar, t. d. aneurysmabreytingar,
sem ekki er svo sjaldgæft að sjá
hjá gömlu fólki í bakslagæðinni
og þá með stórfelldum blóðsega-
lögum. Munu stúdentar sannfær-
ast um slíkt, er á þá reynir, við
athugun á þessu við krufningar.
Nokkur athugun hefur verið
gerð á æðakölkun meðal Islend-
inga og f jalla tvær doktorsritgerð-
ir þar um, þeirra prófessors
Gísla Petersen og dr. Jóhannesar
Björnssonar. Sú fyrri er um rann-
sóknir framkvæmdar röntgeno-
logiskt, en sú síðari er um chol-
esterol- og calciummælingar í bak-
slagæðinni. Vísast til þeirra rit-
gerða.
I Rannsóknastofu Háskólans
við Barónsstíg hefur verið gert
nokkurt úrtak úr krufningaskýrsl-
um, er varða gamalt fólk, alls 410
karla og konur frá Elliheimilinu
Grund, á aldrinum 60—99 ára.
Ekki er unnt að birta hér mikið
af því, en með hliðsjón af um-
ræddum leiðbeiningum yfir kalk-
breytingar í bakslagæðinni er hér
sett tafla yfir kalkbreytingarnar,
er fundust í bakslagæðinni hjá
Elliheimilisfólkinu.
Til nánari skýringar á töflunni
skal tekið fram, að í fyrsta flokkn-
3. mynd II. flokkur: Margir dreifðir
flekkir yfir meira en 25% af innra borði
æðarinnar, en engin þrenging á æðinni.