Læknaneminn - 01.03.1970, Blaðsíða 90
76
LÆKNANEMINN
svokallaður tímaritafundur deildarinn-
ar. Tíminn með vakthafandi lækni er
svo kl. 15—16. Gert er ráð fyrir því, að
stúdentar gangi kvöldstofuganga þá
daga, sem þeir hafa tekið sjúkraskrár,
eða a. m. k. 2 daga I viku.
Við, sem höfum búið við þessa
stundaskrá, kunnum henni ágætlega í
meginatriðum. Æskilegt væri, að lækn-
ar lungnadeildar yrðu líka inkorpórer-
aðir í stundaskrána. Einnig, að skipu-
lagt verði fyrirfram, hvaða efni skulu
tekin fyrir í tímunum, svo þýðingarmik-
il verkefni detti síður upp fyrir. Hvað
göngudeildina áhrærir, þá er líklegt, að
hún eigi eftir að verða alldrjúg búbót
fyrir reynslu stúdenta.
Þ. D. B.
Dvöl XII. hi. stúdenta
á lyfjadeild.
Á lyfjadeiid Landspítalans er hafin
skipulögð kennsla fyrir stúdenta, sem
þar eru hverju sinni. Þegar þetta er
ritað, mun hún komin í nokkuð fast
form. Tilnefndir hafa verið tutorar, einn
fyrir hvorn hóp stúdenta (II. og HI. hl.).
Hlutverk þeirra er að fylgjast með
stúdentunum meðan þeir eru á deild-
inni og skipuleggja kennsluna.
Ætlazt er til, að stúdentar séu a.m.k.
4 í hópi, sæki tíma og fundi deildar-
innar, geri 8—10 sjúkraskrár og fylg-
ist með störfum á deildinni eftir því sem
tilefni gefast.
Kennsla er tvo tíma á dag fyrir hvorn
hóp, ef með eru taldir þriðjudags- og
laugardagsfundir. 1 kennslunni taka
þátt allir læknar og kandidatar á deild-
inni, án nokkurra launa fyrir (sic!). 1
janúar voru þannig haldnar 29 kennslu-
stundir fyrir III. hl. stúdenta og auk
þess nokkrir fundir. Kennslan var í flest-
um tilvikum góð og stundum frábær.
Efni þau, sem tekin voru fyrir, voru þó
varla nógu fjölbreytileg og því til sönn-
unar má nefna, að 15 stundir var fjall-
að um hjarta- og æðakerfissjúkdóma.
Einnig má segja, að meira hefði mátt
ræða um sjúklinga á deildinni.
Áhugi stúdenta á að gera sjúkraskrár
var áberandi lítill, hver sem ástæðan
fyrir því er. Einnig bar á, að þær, sem
þeir þó gerðu, væru of lítið gagnrýnd-
ar. Um orsakir þessa skal ekki rætt hér,
en það hlýtur þó að vera hlutverk lækn-
anna á deildunum að sjá um, að stú-
dentar geri sjúkraskrár, ekki með því
að þvinga þá til þess, heldur með því
að vekja áhuga þeirra á sjúkdómsgrein-
ingunni, sem án efa er það skemmti-
legasta i læknisfræðinni.
Eitt má að lokum nefna, sem ekki
tókst sem skyldi, en það var skipting
stúdentanna niður á gangana. Dvöldu
menn eina viku á hverjum gangi, en
það er að mínu viti of stuttur tími til
að kynnast sjúklingunum. Eins er tæp-
lega nauðsynlegt, að menn séu á öllum
göngum í hverjum mánuði, sem þeir
dveljast á lyfjadeild.
Vert er að undirstrika það enn einu
sinni, að það var framtak læknanna
sjálfra, sem hratt af stað kennslunni.
Ber þeim mikill heiður fyrir.
JHJ
Námsdvöl á taugadeild.
Dósent í taugasjúkdómafræði hefur
nýlega boðið stúdentum í III. hluta
námsdvöl á taugadeild Landspítalans.
Geta þeir verið þar tveir í senn, minnst
hálfan mánuð í einu, eftir að hafa lok-
ið einum mánuði á lyfjadeild. Ætlazt
er til, að menn séu á deildinni alla
virka daga á morgnana fram til hádeg-
is, Á þessum tíma eiga stúdentarnir
að fylgjast með því, sem fram fer og
auk þess að gera minnst tvær sjúkra-
skrár sjálfir.
Dagurinn á taugadeild hefst með
skoðun röntgenmynda, sem teknar hafa
verið daginn áður. Þetta er einn af fá-
um röntgenfundum, sem verða stúdent-
um að gagni. Áð því loknu er tekið til
við lestur sjúkraskráa eða morgunverð.
Þá eru skoðuð heilallnurit frá deginum
áður. Þau halda eftir sem áður áfram
að vera leyndardómur hinna útvöldu, en
stúdentinn ætti þó að læra að þekkja
heilalínurit frá hjartalínuriti. Þessu næst
hefst stofugangur og gengur stúdent-
inn þá um alla deildina á hverjum degi.
Óvenju mikið er gert af því, miðað við
aðrar deildir, að skoða og ræða um
sjúklinga meðan á stofugangi stendur,
þannig að hann er oftast lærdómsrík-
ur. Eftir stofugang eru skoðaðir þeir
sjúklingar, sem komið hafa inn dag-
inn áður, og þá nær dagurinn hápunkti
sínum, því að stúdentar eru látnir horfa
á, strjúka, stinga, lemja og togast á við
sjúklinginn þar til þeir eru sammála
lækninum. Stundum er svo farið í
göngudeild eða fylgzt með störfum að-
stoðarlæknis.
Pram til þessa hefur viljað bera við,
að stúdentar og jafnvel útskrifaðir
læknar þættust ekki geta framkvæmt
taugakerfisskoðun að nokkru gagni.
Hafa menn einnig kviðið því að fá