Læknaneminn - 01.03.1970, Síða 45
LÆKNANEMINN
S9
(4, 5, 6), þar sem varað er við
hættum á útbreiðslu sýklastofna
með lyf jaónæmi. Samt lítur enn út
fyrir, að auglýsingar séu það, sem
mestu ræður um notkun lækna á
sýklalyfjum.
Það er von mín, að læknar fram-
tíðarinnar verði vandvirkari í vali
sýklalyfja en fyrirrennarar þeirra.
Með því móti geta þeir bæði spar-
að sjúklingum sínum óþarfa fjár-
útlát og forðað þeim og umhverfi
þeirra frá hættum, sem skapast af
misnotkun þessara lyf ja.
HEIMILDIR:
1. Aðalheimilid: Garrod and O’Grady,
Antibiotie and Chemotherapy, E. &
S. Livingstone Ltd., 1968.
2. Aserkoff, B. and Bennet, J. V.,
New England Journal of Medicine,
1969, 281, 636.
3. British Medical Journal, 1969, Vol.
4, 699.
4. Óskar Þórðarson, Læknablaðið,
1959, 43. árg., bls. 14.
5. Arinbjörn Kolbeinsson, Læknablað-
ið, 1954, 38. árag., bls. 13.
6. Arinbjörn Kolbeinsson, Læknablað-
ið. 1955, 39. árg., bls. 89.
ATHUGASEMD
I næsta tölublaði Læknanemans mun
birtast grein eftir Bergþóru Sigurðar-
dóttur, lækni. Verður sú grein eins
konar framhald af þessari, og mun hún
m. a. fjaila um tilurð lyfjaónæmis og
misnotkun sýklalyfja.
Ritstjórn
Yfirlæknir á deild einni var að reyna að ná sambandi við dement
sjúkling:
„Hvað heitirðu, góði minn?“
„Það sama og í gær.“
„Jahá, og hvar ertu?“
„Nú, inni í húsinu.“
„Er þetta sjúkrahús?"
„Ekki er hægt að sjá það.“
„Hvað starfa ég?“
Ekkert svar.
„Hvað geri ég?“
„O, ætli það sé nú mikið."
★
Prófarkalestur er oftast heldur lítið hressandi verk. Stundum er þó
prentvillupúkinn í essinu sínu til að gleðja vesalings ritnefndina. Hér
eru nokkur dæmi:
---- Stærstu breytingamar eru þær, að námskvöl á berklahæli verði
lögð niður, —
---- að ég tel mjög ósennilegt, að breytingar á konusafni þjóðar-
innar eigi nokkum þátt í hæðarbreytingunni.
---- Það hefur því verið álit margra, að garðamir mynduðust vegna
áreynslu á tryggingarfærin.
------ Sú tilsögn ætti að vera í verkahring skóla neðan á skólakerfinu.
—— Læknanef var að gera sjúkraskrá.
——- er hér sett tafla yfir kalbreytingar í bakslagæðinni —
---- Samt lítur enn út fyrir, að auglýsingar séu það, sem mestu
ræður um notkun lækna í sýklalyf.