Læknaneminn - 01.03.1970, Blaðsíða 46
LÆKNANEMINN
JfO
JÓN NÍELSSON og
FROSTI SIGURJÓNSSON, læknar:
Kirúrgisk meðferð
á ulcus pepticum fyrr og nú
Frá skurðlækningadeild Borgarspítalans
Sögulegt yfirlit.
Segja má, að upphaf heppnaðra
aðgerða við meinsemdum í maga
og skeifugörn megi rekja til árs-
ins 1881. Það ár, nánar tiltekið
hinn 29. janúar, tókst þýzka skurð-
lækninum Theodor Billroth að
nema brott meinsemd úr maga
sjúklings, sem síðan grériogkomst
til heilsu. Þessi aðgerð, sem við
þekkjum í dag undir nafninu
Billroth I, var resectio ventriculi
et duodeni cum anastomose gastro-
duodenalis. Þess má þó geta, að
svipaðar aðgerðir höfðu verið
reyndar af Péan árið 1875 og
Rydygier 1880, en sjúklingar
þeirra dóu báðir. Þannig varð
Theodor Billroth brautryðjandi
lækninga á sjúkdómum í maga og
skeifugörn á þann hátt, að nema
á brott meinsemdina.
Árið 1885 hugðist Theodor
Billroth gera resectio ventriculi í
tveim áföngum, sökum þess að
ástand viðkomandi sjúklings
var lélegt. Fyrirhugað var að
gera fyrst gastro-enterostomíu, þ.
e. tengja jejunum við maga, án
þess að nema á brott nokkuð af
maganum sjálfum. Það átti aftur
á móti að gera í síðari áfanga að-
gerðarinnar. Raunin varð hins
vegar sú, að sjúklingurinn virtist
þola aðgerðina betur en gert hafði
verið ráð fyrir. Þess vegna fram-
kvæmdi Theodor Billroth báðar
hinar fyrirhuguðu aðgerðir í eitt
og sama skipti. Allt gekk að ósk-
um, einnig í þetta sinn. Þannig
varð til aðgerðin, sem við nú nefn-
um Billroth II, þ.e. resectio ventri-
culi cum anastomose gastro-
jejunalis. Við þessa tegund að-
gerðar er skeifugarnarstúfnum
lokað. Þessar tvær aðgerðir, sem
við skulum hér eftir nefna Billroth
I og Billroth II, hafa með nokkrum
breytingum verið allsráðandi í
skurðlækningum maga- og skeifu-
garnarmeinsemda fram á fimmta
tug þessarar aldar.
Af umbreytingum á hinni upp-
runalegu Billroth I aðgerð, má m.
a. nefna þær, sem kenndar eru við
von Haberer (1922) og Finney
(1923), sem tengdu skeifugörnina
við allan magastúfinn. Það hafði
Billroth ekki gert, heldur lokað
nokkrum hluta stúfsins curvatura
minor megin og saumað skeifu-
görn við curvatura major hluta
stúfsins. Kocher (1893) lokaði öll-
um magastúfnum, en tengdi
skeifugörn við afturvegg maga
gegnum sérstaka opnun þar, hæfi-