Læknaneminn - 01.08.1976, Síða 19
hafa að jafnaði hærri einkunn en meðalmaðurinn.
Hvort það þýðir í sjálfu sér nokkuð sérstakt skal
látið ósagt.
LÍNURIT I
Mecfaleinkunnir.
Línurit II sýnir, að fjöldi þeirra, sem reyna við
próf á 1. ári vex frá 1971-1973, en minnkar síðan
aftur fram til ársins 1975. Fjöldi þeirra, sem féll á
1. árs prófum jókst fram til 1973, var minni vorið
1974, en jókst síðan aftur vorið 1975. Ekki verður
hér lagt mat á hvernig stendur á þessari skyndilegu
aukningu fallfjölda.
LÍNURIT II
Fallfjöldi og fall -
1971 1972 1973 1974 1975
Línurit III sýnir, að meðaleinkunnir á stúdents-
prófi og 1. og 3. árs prófum fara stöðugt lækkandi.
Lækkunin er hægust á stúdentsprófinu en hröðust á
1. árs prófinu. Mismunur 1. og 3. árs einkunna fer
því vaxandi ár frá ári.
LÍNURIT III
Tafla I er á margan hátt athyglisverð. Fjöldi nem-
enda á 1. ári úr stærð- og eðlisfræðideild er meiri en
úr náttúrufræðideild fyrstu tvö árin, en minni eftir
það. Stúdentar úr máladeild hafa að jafnaði hærri
einkunn en aðrir (undantekning er árgangurinn inn-
ritaður 1974).
Mismunur stúdentsprófseinkunnar og 1. árs ein-
kunna er sýndur í töflu II. Hann er öll árin mestur
hjá máladeildarstúdentum, en minnstur hjá stærð-
og eðlisfræðideildarmönnum. Af þessu má draga þá
ályktun, að stúdentspróf úr stærðfræði- og eðlis-
fræðideildum sé betri undirbúningur undir 1. árs
próf í læknadeild en próf úr náttúrufræðideild. Sum-
arnámskeið, sem haldin hafa verið undanfarin ár
fyrir máladeildarstúdenta (þó ekki s.l. ár) í stærð-
fræði og eðlisfræði, virðast gagnslítil og falla nem-
endur þessir næstum allir á 1. ári í læknadeild.
Mismunur á stúdentsprófseinkunn og 1. árs eink-
unn vex ár frá ári. Vorið 1974 er undantekning,
enda náðu óvenju margir 1. árs prófum þá. Ekki er
ljóst hvers vegna misræmið milli stúdentsprófs og 1.
árs prófa verður stöðugt meira, en það gæti speglað
auknar kröfur á 1. ári eða minnkaðar kröfur til
stúdentsprófs, nema hvort tveggja sé.
Ekki er neitt augljóst samband milli 1. og 3. árs
prófa. Þó er athyglisvert að máladeildarstúdentar
standa sig yfirleitt betur en stærðfræðideildar- og
náttúrufræðideildarnemendur á 3. ári, væntanlega
vegna þess, að þeir örfáu máladeildarmenn, sem
LÆKNANEMINN
13