Læknaneminn


Læknaneminn - 01.08.1976, Page 24

Læknaneminn - 01.08.1976, Page 24
Leifur: Hvert er starfssvið endurhæfingarlæknis ? Veitir hann ekki mjög lítinn hluta af meðferS sinni sjálfur, a. m. k. minna en flestir aðrir læknar? Kristján: Eg held að Jrað megi svara þessari spurningu meS því að spyrja hvert sé hlutverk end- urhæfingardeilda. Endurhæfingardeild er fyrst og fremst þjónustudeild fyrir aðrar deildir sjúkrahúsa og fyrir starfandi lækna. Þær veita ákaflega marg- víslega þjónustu þar sem þær gerast bestar. Líkams- þjálfun er aðeins hluti af þeirri þjónustu. Einnig er um að ræða félagslega aðstoð, geðræna aðstoð, at- vinnulega o. s. frv. A endurhæfingardeildum starfar sérhæft fólk ýmissa heilbrigðisstétta að þessari þjón- ustu. Eitt af hlutverkum endurhæfingarlæknis er að skipuleggja og samræma þá þjónustu og gefa fyrir- mæli þegar nauðsyn ber. Auk þess hefur hann fengið sérstaka þjálfun í að meta og leggja á ráðin um með- ferð hreyfifatlaðs fólks og má segja að hann leggi á ráðin um þá meðferð á svipaðan hátt og lyflæknir- inn skrifar lyfseðil. Þannig held ég að endurhæf- ingarlæknir veiti ekki minni hluta af meðferðinni sjálfur en flestir aðrir læknar. Leifur: Hver er afstaða annarra heilbrigðisstétta til sérgreinarinnar? Haukur: I sjálfu sér er hún jákvæð og ástæðu- laust að kvarta. Hins vegar kemur ókunnugleiki þarna oft við sögu og stundum misskilningur á verk- sviði orku- og endurhæfingarlækna. Ég tel þetta vera að breytast óðfluga og án efa mun skilningur heilbrigðisstéttanna á endurhæfingu aukast svo að af hljótist allra hagur, einkum þó hagur sjúklingsins. Páll: Menntun orkulæknis er sambærileg mennt- un annarra sérfræðinga. Honum er mikilvægt að hafa greiðan aðgang að öðrum heilbrigðisstéttum til að þekking hans nýtist. Oft er starf okkar samræm- ingarstarf, eins konar verkstjórn. Hvað snertir af- stöðu annarra heilbrigðisstétta finnst mér afstaða lækna frekar jákvæð, en afstaða annarra heilbrigð- isstétta oft nokkuð tvíræð án skilgreiningar. Leifur: Er þörf á legudeild? Er ekki hægt að end- urhæfa sjúklingana á öðrum deildum og e. t. v. hluta þeirra utan spítala? Haukur: Ymis háttur er hafður á þessu í ná- grannalöndunum. Flestir telja rétt að bafa sérstakar legudeildir fyrir endurhæfingu á stærri sjúkrahús- um. Þeim fylgir ýmis ávinningur. Þar ætti t. d. að öðru jöfnu að vera hægara að ástunda sérstaka hjúkrun endurhæfingarsjúklinga og þar er fremur hægt að halda æskilegum hraðatakti í daglegum at- höfnum en á öðrum sérgreinadeildum þar sem hraði og taktur ákvarðast af sjónarmiðum, sem þar ríkja. Þá ber að hafa í huga að á kennslusjúkrahúsum er brýnt að hafa sérstakar legudeildir fyrir endurhæf- ingu vegna nemenda, bæði læknanema og annarra nema. Hitt kerfið er líka víða til, að jafnvel á hinum stærri sjúkrahúsum eru ekki sérstakar legudeildir fyrir endurhæfingu, heldur er unnið að endurhæf- ingu á öllum deildum og það er jafnan skipanin á minni sjúkrahúsum. Enn eitt fyrirkomulagið eru sérstakar stofnanir sem annast endurhæfingarþjón- ustu. Slíkar stofnanir eru til í öllum löndum og taka víðtækari verkefni en gerist á legudeilclum fyrir end- urhæfingu á almennum sjúkrahúsum. Þar á ég t. d. við atvinnulega og félagslega endurhæfingu ásamt með læknisfræðilegri. Sums staðar hafa sérstakar endurhæfingarstofnanir sprottið upp í kjölfar starf- semi, sem lagst hefur niður vegna breyttra þarfa. Reykjalundur er dæmi þar um hér á landi. Þó er það ekki alls kostar rétt því að starfsemi að Reykjalundi var í rauninni framúrstefnustarfsemi á sínum tíma, hófst 1945 og tilgangurinn var atvinnu- og félagsleg endurhæfing berklasjúklinga. Þegar talað er um læknisfræðilega endurhæfingu er ekki eingöngu átt við líkamsþjálfun, þ. e. a. s. sjúkraþjálfun eða iðju- þjálfun, þótt það séu tveir meginpóstar í læknis- fræðilegri endurhæfingu. Fleira er í endurhæfingu fólgið. Aðstaða til sjúkraþjálfunar þarf að vera til a öllum sjúkrahúsum í landinu, aðstaða til iðjuþjálf- unar mjög víða, en sérstakar legudeildir ættu ein- ungis að vera á stærstu sjúkrahúsunum. Eg tel í framhaldi af þessu nauðsynlegt að hér á Islandi se til a. m. k. ein sæmilega stór stofnun, sem getur tekið við sjúklingum af smærri sjúkrahúsum og jafnvel af þeim stærri. Verksvið hennar er framhaldsmeðferð þeirra, sem þurfa lengri tíma til endurhæfingar, en hægt er að veita á almennum sjúkrahúsum. Páll: Eg held, að ég geti alveg tekið undir þessi 18 læknaneminn

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.