Læknaneminn - 01.08.1976, Blaðsíða 39

Læknaneminn - 01.08.1976, Blaðsíða 39
um 30 læknanemar kúrsus í þrem hópum og var hver hópur í hálfan mánuð. Kúrsusinn fór þannig fram, að fyrri hluta morg- uns fylgdust menn með myndatökum, en síðan fengu menn einn til tvo tíma í röntgengreiningu hjá pró- fes sornum. Þóttu þeir yfirleitt mun betur heppnaðir en fyrirlestrar hans um sama efni. Hjörtur Sigurðsson. Klínískt nám tt Ltmtlttkoíi Það er erfitt að gera svo viðamiklu efni nokkur viðhlítandi skil í smápistli sem þessum. Þó skal það helzta tínt til. Handlœknisdeild. Venjulega hófst hver dagur þar með kennslu kl. 8 að morgni. Skiptu læknar deildar- innar með sér verkum. Þessir tímar voru allflestir kennurunum til sóma. Þeir voru yfirleitt vel undir- búnir og komu efninu skýrt frá sér. Mér fannst það þó dálítið óheppilegt að hafa þessa tíma um leið og stærstu og oft áhugaverðustu aðgerðir dagsins voru að hefjast. Eftir tímann gat maður oft valið eitt af þrennu: I fyrsta lagi að fara í aðgerð, öðru lagi að fara á stofugang og loks fara að taka á móti sjúklingi. Oft var hægt að taka journal fyrir hádegi og þótti mér það mikill kostur. A handlæknisdeild gildir það sama og annars staðar, að menn verða að bera sig eftir björginni. Þó held ég að mér sé óhætt að segja, að þeir stúdent- ar sem vilja, geti margt séð og mikið lært á þessum kúrsus. Lyfjadeild. Þar hefst hver dagur með morgun- fundi kl. 8,30, sem er í senn röntgenfundur og gerð grein fyrir sjúklingum, sem lögðust inn á vaktinni. Eftir morgunfund og ókeypis morgunkaffi er gengið á fund þess læknis, sem skal kenna stúdent- um þann daginn. Aðaluppistaða kennslunnar eru kennslustofugangar, en áður er farið lauslega yfir sjúkrasögu þeirra sjúklinga, sem skoða á, svo og ordinationir og niðurstöður síðustu rannsókna. Gefst mönnum þarna gott tækifæri til þess að skilja tilgang hinna ýmsu rannsókna svo og að meta niður- stöður þeirra. Þessu næst gengur viðkomandi læknir ásamt kandidat sínum og stúdentum á stofurnar. Samrceður um endurhœfingu Framh. af bls. 22 iskum grundvelli? Dæmi: Hvað skeður þegar ákveð- in taug skemmist, t. d. í upphandlegg? Páll: Því hefur oft verið fleygt varðandi ana- tomiukennsluna, að hún sé býsna þurr og beinist mikið að því að kenna eingöngu útlit líffæra, teng- ingu þeirra og annað slíkt. Ég held að ég sé sammála þér, Leifur, að það gæti verið mjög skemmtilegt að hafa pínulítið meira lifandi form á kennslu. Eftir því sem ég veit best hefur þetta verið eitt af áhugamál- um prófessorsins í anatómiu, og núna s.l. tvö ár hefur dálítið verið reynt að kenna nemendum að þskkja líffæri utan frá og fá þannig meiri hugmynd um hvað er undir húðinni. Um hvort æskilegt er að fara að kenna kliniska hreyfingarfræði vil ég segja að ég held, að það gæti orðið fullmikið álag miðað við þá pressu, sem er í náminu í dag. Yrði þá að reyna að einfalda efnið allmikið, en þessi spurning íinnst mér verð umhugsunar. Kristján: Ég verð að segja að mér finnst ungir læknar skilja hvenær þörf sé á endurhæfingu. Hilt er svo annað mál, hvort þeir hafi nægan skilning á einstökum liðum hennar. Maður heyrir sjúkraþjálf- ara kvarta, að fyrirmæli þeirra séu ekki á rökum eða kunnáttu reist. Kennsla í þessari grein var ekki tekin upp fyrr en á s.l. hausti hér við háskólann svo sjálf- sagt er hér úrbóta að vænta. Haukur: Eg er ekki viss um að fákunnátta ungra lækna í endurhæfingarfræðum sé meiri en eldri lækna. Að sjálfsögðu ber að efla kennslu í endur- hæfingarfræðum í læknadeildinni og í kjölfar þess kemur aukin þekking og kunnátta lækna. Ég á ekki við að allir læknar verði snöggsoðnir sérfræðingar, heldur að þeir komi til með að starfa á þann hátt að markmið starfsins verði fullkomin líkamleg, andleg og félagsleg endurhæfing sjúklings. Stundum er höfð kennslustund að stofugangi loknum og hefur jafnan verið vel til þeirra vandað að mínu mati. Niðurstaðan af þessum vangaveltum mínum verð- ur því sú, að það hefur fjölmarga kosti að vera stúdent á Landakotsspítala. Ingiríður Skírnisdóttir. læknaneminn 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.