Læknaneminn - 01.08.1976, Síða 41
ui' misjafnlega ánægðir. Hinir hógværu fengu litla
kennslu, en þeir, sem frekir voru fengu hins vegar
góða leiðbeiningu.
Almenn ánægja var með dvölina á Grensásdeild.
Slofu gangarnir voru fræðandi og tímarnir góðir.
HarnusiáhdómafrwSi
I upphafi námskeiðanna hefðum við kosið að fá
marklýsingu á því hlutverki, sem okkur var ætlað
a þessum stutta tíma, svo nýtni hans hefði orðið
sem mest. Að vísu fengum við í upphafi hverrar
viku, skrá um fyrirlestra, deild, sérfræðing og vakt,
sem okkur var ætlað að fara eftir næstu sjö dagana,
og er slík viðleitni góðra gjalda verð. Við teljum
þó eðlilegt að svo stutt námskeið sem þetta sé alli
skipulagt fyrirfram.
Við hörmum að ekki skuli hafa verið bent á
neina heppilega kennslubók í barnalæknisfræðinni
og viljum eindregið mælast til þess að úr verði bætt.
Við getum þó ekki látið hjá líða að lýsa yfir ánægju
okkar með, að prófkröfurnar skuli vera í fullu sam-
ræmi við fyrirlestrana, sem margir voru ágætir, en
aðrir miður eins og gengur.
Um klíniska námið er það hins vegar að segja,
að þar var áberandi munur á dvöl okkar á Landa-
koti og Landspítalanum. Á Landakoti var viðhorf
starfsfólksins til stúdenta til fyrirmyndar og var
greinilegt að þar lögðust allir á eitt að miðla af
þekkingu sinni og reynslu. Sérstaklega viljum við
þakka Þresti Laxdal hans ósérhlífni og áhuga á að
virkja okkur og vekja til umhugsunar um þá sjúk-
linga sem við tókum á móti og gera okkur að vissu
marki ábyrga fyrir þeim.
Því miður verður að játa að dvöl okkar á Land-
spítalanum vakti ekki jafn mikla hrifningu, og kem-
ur þar helst til: 1) Að okkar áliti er starfsfólki
deildanna alls ekki fyllilega ljóst, hvert hlutverk
stúdentanna er á deildunum. 2) Klínisku kennslunni
á stofugangi er mjög ábótavant og stundum næsta
lítil. 3) Enginn gagnrýnir sjúkraskrár, eða ræðir
tilfellin sérstaklega við stúdenta. Starf stúdentanna
er þannig meira og minna laust í reipunum inni á
deildunum.
Vissulega voru einnig jákvæðar hliðar á dvöl okk-
ar á Landspítalanum. Við stúdentar erum ánægðir
með að hafa fengið tækifæri að fylgjast með starf-
seminni á nýburadeildinni og álítum að þar höfum
við margt fróðlegt lært, enda var áhugi læknanna
þar á okkur stúdentum áberandi mestur og voru þeir
svo sannarlega fúsir að örva okkur til umhugsunar
og umræðu um þau tilfelli, sem til staðar voru hverju
sinni.
Við hefðum kosið að fá meiri fræðslu og innsýn í
ungbarnaeftirlit og jafnvel einnig fá að fylgjast með
skólaskoðun og viljum við mælast til að þessir þættir
verði felldir inn í kennsluna, ef mögulegt er.
Við álítum að nauðsynlegt sé að taka fyrir minnst
eitt áhugavert klíniskt tilfelli í viku, sem slúdent
myndi að sjálfsögðu kynna en yrði undir hand-
leiðslu sérfræðings.
Niðurstaða okkar er sú, að þetta námskeið sé
tvímælalaust í framför og að ekki þurfi mikið, en
samt nokkuð átak til að gera það vel viðunandi. Til
að ná þessu markmiði þarf meira samband milli
prófessors og stúdenta annars vegar og kennara
(læknanna) hins vegar. Þessu sambandi álítum við
best að ná með því að halda sameiginlega fundi með
kennurum og stúdentum reglulega meðan á náms-
skeiðinu stendur, þar sem rædd væru skipulags- og
kennslumál námskeiðsins.
Fœðingar- oy hvensjáhtlómafrœði
(Sjá einnig Læknanemann 1. tbl. 1975)
Frá því að námskeiðið í fæðingar- og kvensjúk-
dómafræðum hófst í núverandi mynd, hefur það
verið í sérflokki innan læknadeildar hvað varðar
skipulag og gæði í verklegu og fræðilegu klínisku
námi. Höfuðkostur námskeiðsins er, að það er í
stöðugri endurskoðun. Stúdentar eiga að skila náms-
gagnrýni og benda á úrbætur. Ennfremur mun nú
vera í ráði að halda reglulega fundi kennara og
stúdenta meðan á námskeiði stendur.
Fœðinga- og kvensjúkdómadeild LSP. Allir sér-
fræðingar stofnunarinnar taka þátt í kennslunni af
áhuga og líta reyndar á það sem hluta af sínu starfi
að sinna stúdentum. Sami áhugi einkennir viðhorf
annars starfsfólks. Tilkoma nýs húsnæðis hefur auk-
ið möguleika stúdenta til þátttöku í skurðstofuvinnu
og stórum bætt almenna aðstöðu við fæðingar.
Vaktaskylda stúdenta hefur nokkrum sinnum verið
31
læknaneminn