Læknaneminn - 01.08.1976, Side 42
endurskoðuð. T. d. hafa akútvaktir stúdenta verið
lagðar niður. Að fylgjast með störfum aðstoðar-
læknis á akútvakt er mikilvæg reynsla fyrir stúdent
og því full ástæða til að taka aftur upp þessar vaktir.
I ýmsu mætti auka verklega kennslu. T. d. mætti
kenna stúdentum að setja upp og taka niður lykkju,
láta sem flesta gera útskaf undir handleiðslu sérfræð-
ings og auka kennslu í deyfingum við fæðingar.
Almenn ánægja er með notkun göngudeildar til
kennslu.
Mœðraeftirlitið á Heilsuverndarstöðinni. Hér hafa
stúdentar fylgst með daglegum störfum lækna og
ljósmæðra og gefið góða raun.
Fœðingarheimili Reykjavíkur. Dvöl stúdenta hér
er mikil kennsluhúbót. Almenn aðstaða svo og lestr-
araðstaða fyrir stúdenta er mjög góð, starfsfólk á-
hugasamt og velviljað. Hér gefst færi á að fylgjast
með störfum barnalæknis við skoðun nýbura eld-
snemma á morgnana og síðan störfum yfirlæknis á
stofugangi og við útskriftir. Stúdentar eru viðstaddir
fæðingar og eiga einnig kost á að taka á móti börn-
um, en með vissum skilyrðum þó. Stúdent þarf að
hafa tekið á móti áður, en sú reynsla er ekki fyrir
hendi, nema hann hafi áður verið á Fæðingardeild
LSP. eða lent í barnsfæðingu í héraði. Konan þarf
að vera „hagstæð“ fjölbyrja og er það í sjálfu sér
eðlilegt skilyrði. Sérfræðingur þarf einnig að vera
viðstaddur. Það hefur þráfalt komið fyrir, að sér-
fræðingur á vakt hefur ekki mætt við fæðingar, ef
stúdent hefur verið til staðar til að sinna störfum
hans. Ef stúdent er treystandi til þess, ætti reynd
ljósmóðir að geta leiðbeint þeim sama við að taka á
móti.
Aukin samræming milli F.R. og F.L. á ýmsum
fagiegum atriðum yrði öllum í hag og myndi enn
auka gildi dvalar stúdenta á Fæðingarheimilinu.
Ge&sj úktlómafrœði
Talsvert virðist hafa verið unnið að skipulagningu
kúrsusins. I upphafi námsins fékk hver stúdent
möppu með ýmsum gagnlegum upplýsingum og leið-
beiningum. Verður ekki annað sagt en mappa þessi
sé stórt framfaraskref og væri enn betur ef kúrsus-
inn gæti orðið í samræmi við hana.
Hver stúdent fékk sinn umsjónarkennara, sem
hann hitti einu sinni í viku. Er þessi tiihögun góð,
en því miður er starfssvið umsjónarkennaranna
mjög óljóst. 1 áðurnefndri möppu er kennara ætlað-
ar 9 blaðsíður til að meta verklegt nám stúdenta.
Finnst mörgum, að minni tíma mætti verja til þess-
arar iðju, en frekar ætti umsjónarkennari að leiðbeina
stúdentnum meira í verklegu námi. Því miður hefur
oft verið nær algert sambandsleysi milli stúdents og
umsjónarkennara, sem þá veit ekkert hvað stúdent-
inn hefur gert vel og hvað illa. I vetur voru stúdent-
ar tvær vikur á hverri deild og fengu þannig góða
yfirsýn yfir fagið, en fylgdust minna með ákveðnum
sjúklingum fyrir vikið. Flestir voru þeirrar skoðun-
ar að lágmarkstími á hverri deild ætti að vera þrjár
vikur. Þarf þá um leið að leggja niður starfið á
göngudeild, sem þrátt fyrir áhuga starfsfólksins þar
hefur reynst hafa upp á of lítið að bjóða. Hefur
stúdentum á göngudeild yfirleitt leiðst vegna ónógra
verkefna.
Sú hugmynd hefur komið fram, að hver stúdent
ætti þess kost að kynnast einum eða fleiri sjúkling-
um, sem hann fylgdist síðan með allan tímann.
Nokkur óánægja er með að námsefnið, sem kennt
er, sé einhæft. Vilja rnargir að fleiri stefnur í grein-
inni séu kenndar.
Að lokum má segja, að þrátt fyrir ýmsa galla sé
kúrsusinn í framför og á ekki langt í að verða mjög
góður.
32
LÆKNANEMINN