Læknaneminn


Læknaneminn - 01.08.1976, Qupperneq 44

Læknaneminn - 01.08.1976, Qupperneq 44
1 beinu framhaldi af þessu er annar meginþáttur bókarinnar. Social iatrogenesis. Þessi þáttur fjallar um hin víðtæku áhrif heilsugæslukerfisins, en þau nefnir höfundurinn ,,medicaliseringu“ á alla meginþætti mannlegs lífs. Aðalinntakið er hin almenna tilhneig- ing lækna og heilrbigðisstétta að fela mönnum sjúkl- ingshlutverk, sem veldur því að menn hætta að líta á sig sem sjálfstæða heilbrigða einstaklinga, heldur sem hluta af ákveðnu medicaliseruðu kerfi. Þriðji þáttur bókarinnar, Strukturell iatrogenesis, kemur sem beint framhald eða afleiðing af hinum fyrrnefndu þáttum, og er þeirra langmikilvægastur. Hér reynir höfundurinn að kryfja til mergjar þau áhrif, sem sígild læknisfræði hefur haft á líf og lífs- skoðanir manna frá steinöld og fram til vorra daga. Sígilda læknisfræði telur hann samanstanda af þrem meginþáttum: a. Utrýmingu (elimination) sársauka og breytingu á sársaukahugtakinu. b. Flokkun og meðhöndlun á sjúkdómum og sjúk- dómshugtakinu. c. Baráttu við dauðann og breytingar á dauðahug- takinu. Höfundurinn telur, að á öllum þessum sviðum hafi læknisfræðin náð nokkrum „árangri“, með þeirri af- leiðingu, að fólkið er fangið í ákveðið kerfi (medi- caliseringu), sem veitir því ákveðna „þjónustu“, en hefur í staðinn látið hluta af lífsfyllingu sinni og einstaklingssj álfstæði. Hér eru teknir þættir, sem tilheyra læknisfræði, en raunar skín alls staðar í gegn og er oft beint sett fram, almenn gagnrýni og nánast viðvörun við tæknivæðingu, iðnvæðingu og samhæfingu (homo- geniseringu) mannlífsins. Þessa fyrrgreindu þætti telur höfundur að hafi haft víðtæk áhrif á allt líf og séu raunar þeir þættir, sem skapi hugmyndaheim manna og ráði verðmætamati þeirra andlegu og efn- islegu. Afleiðingarnar af þeim breytingum, sem þetta valdi á lífsskoðunum manna og þjóðfélags- byggingu, séu stórlega brenglað sjálfsskyn og verð- mætaskyn, sem að lokum valdi sjálfseyðing, þ. e. nemesis. Ef reynt er að skilgreina meginefni bókarinnar þá telur höfundur, að menn hafi ánetjast ákveðnu „medicinsku“ kerfi, sem sé aðeins hluti af stærra kerfi. Kerfi, sem tekur yfir alla þætti mannlegs lífs og stjórnast að verulegu leyti af eigin lögmálum, sem lúti fjármagni, tækni og vísindalegri framþróun, og þar með talið læknisfræði. Kerfið hafi skapað sér ómeðvitandi vítahring, þ. e. andsvar manna við þrúgun og eyðileggingu kerfisins er enn ákafara ákall en áður til tækni og vísinda. Lýsing höfundar sjálfs á þessu ástandi, sem kalla mætti „horror auto- toxicus“ er „að líf manna sé orðið tekniskt planlagt og sjálfstýrt víti“. Röli Ivuus lllivh oi} titifinrök Rök þau, sem höfundur færir máli sínu til stuðn- ings, eru aðallega sögulegs eðlis, þar sem meginþátt- urinn er að sýna fram á breytingar á hugmyndum manna um ýmis grundvallaratriði mannlegs lífs og menningar, s. s. dauðanum., lífsþörfunum, sjálfs- ímynd og samkennd manna. Breytingar, sem valda undanhaldi „náttúrlegra“ (heilbrigðra) skoðana og náttúrulegs lífs og leiða til „nemesis“. Þessi rök eru studd ýmsum dæmum úr sögu mannkynsins frá upp- hafi og fram á vora daga. Slík röksemdafærsla um efni sem þetta, þ. e. „hugmyndir manna“, „framtíð- arhorfur“ og því um líkt er rökrétt að sé söguleg, en veruleg hætta er á, þegar gætt er forsendna bókar- innar, að hún verði vegin og léttvæg fundin af öllum þorra manna. Þannig er t. d. farið um vissa þætti í staðhæfingunum um „medical nemesis“. Ég tel, að mörg atriði í nútíma læknisfræði hafi tvímælalaust sannað gildi sitt til góðs fyrir einstaklinga og þjóð- ir, t. d. mæðravernd, fyrirbyggjandi aðgerðir gegn krabbameini, aðgerðir gegn blindu, svo eitthvað sé nefnt. Þessi atriði er hægt að sanna tölulega og því væntanlega óyggjandi. Aðrar fullyrðingar, t. d. um áhrif lyfja og læknisaðgerða, sem svipta menn lífi og heilbrigði, eru ekki sluddar tölulegum rökum, og heilbrigðisskýrslur og læknatímarit, sem fjalla um þessi mál, styðja ekki niðurstöður höfundar nema að litlu leyti. Ég lít á þessi gagnrök sem gild, en tel að í sjálfu sér breyti þau aðeins niðurstöðum á þann hátt, að ekki hafi öll framþróun verið mannkyninu til bölv- unar. Eftir standa staðhæfingar um „strukturel iatro- genesis“, þ. e. allsherjar-„nemesis“, sem drepið var á hér að framan. Þessar staðhæfingar eru þannig 34 LÆICNANE jVIINN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.