Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1978, Blaðsíða 11

Læknaneminn - 01.11.1978, Blaðsíða 11
Blóðþrýstimœlingar á degi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar Ágúst Oddsson læknanemi Fyrstu dagana í apríl 1978 stóð yfir háþrýstivika á vegum Alþjóða Heilbrigðismálastofnunar Samein- uðu þjóðanna (WHO). Tillag læknanema til hennar var hlóðþrýstingsmælingar úti á meðal almennings dagana 6. og 7. þessa mánaðar. Markmið þessara mælinga var að vekja athygli almennings á of háum blóðþrýstingi sem sjúkdómi, einfaldri aðferð til blóðþrýstingsmælinga og jafnvel fá hugmynd um tíðni þessa sjúkdóms meðal Reykvíkinga. Fjölmiðlar studdu þetta framtak læknanema með fréttum af mælingunum og viðtölum við fólk á mæl- ingarstöðunum. Einnig var útbúið sérstakt vegg- sjald sem talaði sínu máli og var það hengt upp á áberandi stöðum þar sem mælingarnar fóru fram. Aðsókn var líka góð eða um fjögur þúsund þátttak- endur samtals á tveim dögum. Framkvœmd Mælingarnar voru framkvæmdar í þremur stór- verslunum hér í borg og í einni sendiferðabifreið staðsettri á Lækjartorgi. Þeir sem framkvæmdu mæl- ingarnar voru læknanemar og gerðu þeir það í sjálf- boðavinnu. Stjórn Félags læknanema sá um skipu- lag mælinganna með aðstoð og leiðbeiningum frá nokkrum læknum Landspítalans. Fólkið sem mælt var stóð venjulegast í biðröð í 5-10 mín. og var síðan mælt sitjandi einu sinni með blöðrubandið á hægri upphandlegg. Mælt var með venjulegum kvikasilfursmælum. Mælingarnar voru ókeypis og allir mældir sem þess óskuðu. Mælingastaðirnir voru staðsettir í anddyri versl- ananna þar sem umferð fólks var mest. Við bílinn þurfti fólkið að bíða í 10-15 mín. úti í kulda og næðingi. Þegar biðinni lauk þurfti viðkomandi að klifra upp í bílinn (engin trappa var) og losa sig við hlífðarföt við erfiðar aðstæður, enda veittist mörgu öldruðu fólki þetta erfitt. Enginn tími var fyrir viðkomandi að hvíla sig áður en mæling hófst. Að mælingu lokinni var merkt við aldursflokk, kyn og hvort viðkomandi væri fyrir ofan eða neðan þau mörk sem sett voru (samkv. 1. töflu). 1. TAFLA Blóðþrýstingur (konur/karlar) Aldur NeSan marka Ofan marka 0-40 < 140/90 145/95 41-60 < 145/95 ^ 150/100 > 60 < 155/95 Ss160/100 I. tafla sýnir þau blóðþrýstingsgildi sem flokkað var eftir. Skipti þá ekki máli hvort annað eða bæði gildin (þ. e. systola og diastola) væru fyrir ofan mörkin til að einstaklingurinn teldist með of háan blóðþrýst- ing. Var síðan fundin út með einföldum hlutfalls- reikningi sú hundraðstala þátttakenda sem voru of- an marka innan bvers flokks. Niðurstiiifur Alls voru mældir 3932 einstaklingar og af þeim voru 1242 ofan settra marka eða 31,6%. Á 2. töflu sést að alls voru 2045 konur mældar og voru 587 eða 28,7% ofan settra marka. 1887 karlar voru mældir og voru 653 eða 34,6% þeirra ofan settra marka. Ef athuguð er 1. mynd sést dreifingin eftir kyni og aldri. Munur milli kynja er mestur í aldurshópn- um undir fertugu en þar eru karlmenn áberandi fleiri ofan marka en konur. Þessi mismunur jafnast nokkuð út á bilinu 41-60 ára en í aldurshópnum eldri en 60 ára eru konur heldur fleiri ofan marka. LÆKNANEMINN 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.