Læknaneminn - 01.11.1978, Blaðsíða 29
chromosome athugana, þar sem þessar ástungur eru
gerðar mjög snemma. Hallast er að því, að amnio-
centesis í þessum tilvikum skuli gerð í fyrsta lagi á
á 14. viku, en margir vilja bíða fram á 16. viku til
þess að fá betri frumuvöxt og öruggari túlkun.
Einnig er legvatnið þá meira og auðveldara að
finna leið fram hjá fylgjunni, þegar hún er á fram-
vegg. Astæður fyrir amniocentesis vegna chromo-
some athugana eru enn nokkuð lausar í höndunum,
vert er að minnast á ættlæga sjúkdóma eða fyrri
fósturgalla, og margir vilja seilast allt niður í 35.
aldursárið, en upp úr því verður Down’s syndrome
æ tíðara.
Alfa Feto Protein rannsókn má gera um leið til
útiloka sjúkdóma í taugakerfinu, þó aðallega opinn
hrygg.
Nauðsynlegt er að staðsetja fylgju með sonar í
öllum Rh immuniseruðum konum, svo komist verði
hjá nýrri isoimmuniseringu, sem óneitanlega væri
mikil hætta á, ef stungið væri í gegnum fylgjuna.
Lecithin-Sphingomyelin próf eru einkum gerð til
athugunar á lungnaþroska fósturs, ef flýta þarf fæð-
ingu fyrirburðar einhverra hluta vegna.
Fósturdauða á II. trimestri ætti að vera auðvelt
að greina á því einu saman, að hjartsláttur er
enginn, en með sonartækinu er auðvelt að staðsetja
hjartað og beina hljóöbylgjunum rakleitt að því.
Einnig er Dopton hjálplegur, ekki síst þegar búið er
Mynd 22. Myndin af % stœrð sýnir fóstur í transumbilical
plani á 3 trimestri. K: Kviðveggur fósturs. U: V. Umbili-
calis. R: Retroperitoneal líffæri, m. a. hryggsúlan og stóru
œðarnar.
Completed weeks
Mynd 23. Grafið sýnir skyndilega vaxtarseinkun, allt að því
vaxtarstöðnun, sem byrjar á 34. viku. Orsökin er utero-pla-
cental insufficiency (fylgjurýrnun) og þar af leiðandi dys-
maturitas.
að staðsetja nákvæmlega livar helst ætti að heyrast
með því tæki.
Tveim sólarhringum eftir fósturdauða verður höf-
uðið flatt og samfallið og strýtumyndað vegna þess
að intracranial þrsýtingur minnkar eða hverfur, en
höfuð lifandi fóstutrs á þessu tímahili er hnöttótt
eða sporöskjulaga, eins og áður segir.
Helstu ástæður til sonarskoðunar á II. trimestri
væru því:
1. Oljós útreikningur meðgöngutímans.
2. High risk meðganga.
3. Amniocentesis.
4. Allar blæðingar, miklar eða litlar m. t. t.
fylgj ustaðsetningar.
III. TRIMESTER
Þroska- og vaxtarmælikvarðar:
1. Biparietal diameter (BPD).
2. Ummálsplan höfuðs.
3. Ummálsplan bols.
ítarlega hefur verið rakið hversu nákvæmt þroska-
mat fæst með CRL-mælingum og BPD-mælingum
fyrir 20. vikuna, en BPD-mælingar eru einnig mark-
tækar í velflestum tilvikum upp í 30. vikuna, þó
með þeim fyrirvara, sem áður er minnst á.
LÆKNANEMINN
27