Læknaneminn - 01.11.1978, Side 32
Mynd 28. Fósturhöfuð í transcoronal plani. Þetta er jlat-
laga höfuð og myndi mœling á biparietal diameter (BPD) í
þessu tilviki geja oj lágt gildi. Betra er að nota ummál höj-
uðsins sem mœlikvarða ]>egar svo stendur á.
Fósturvöxtur stendur í beinu samhengi við nær-
ingargetu fylgjunnar, og verði sú starfsemi ónóg,
sveltur fóstrið, verður rýrt og visið, vöxtur seinkar
eða staðnar, hætta er á vefjaskemmdum sérstaklega
í heila og fóstrið stendur illa að vígi í móðurkviði.
Besti „incubatorinn“, legið, er nú orðið hættusvæði,
og vaxtarskerðingin segir nokkuð vel lil um áhættu
fóstursins og þá jafnframt þörf þess lil að losna úr
því umhverfi.
Við sonarskoðun kemur oftast fram meiri eða
minni skyndilækkun á BPD-kúrfunni (sjá mynd
23), en ummálsplan fósturbols skerðist ávallt meira.
Dregin hafa verið mörk sem skilgreina, að fóstur
skuli vera minna en 2500 g til þess að kallast vaxtar-
skert, en bent hefur verið á, að þetta sé alls ekki
raunrétt, því oft kemur vaxtarskerðingin það seint
á 3. trimesteri, að fóstrið hefur komist yfir þessi
þyngdarmörk. Utlit fóstursins er því mælikvarði á
vaxtarskerðinguna, en ekki þyngdin.
Til aðgreiningar frá vaxtarskertum fóstrum vegna
fylgjurýrnunar má benda á fóstur frá smáum for-
eldrum eða foreldri, sem hafa oft lága vaxtargetu
(low growth potential of genetic influence). Þessi
fóstur eru auðjrekkt frá jjeim fyrrnefndu, vaxtar-
kúrfan sýnir minnkaðan meðalvöxt, sem oft fer að
gæta milli 20. og 30. viku og hafa jrví lágan en
jafnan vaxtarkvóta á tímabilseiningu. Þessi börn
eru smá, en eðlilega vaxin og jafnstöndug öðrum
börnum í fæðingunni. (Sjá mynd 17: Low growth
profile.)
Brýnt er að nota allar ofannefndar 3 mælingar,
ef grunur er á vaxtarseinkun/stöðnun, jrar sem BPD
og ummál höfuðst er oft óskert (brain sparing) í
Jressum tilfellum, jrótt bolur rýrni verulega.
Venjulega er gefið upp hlutfallið höfuð/bolur, þar
sem höfuð er örlítið stærra upp í 35.-36. vikuna við
eðlilegan fóstutrvöxt, en bolur verður gildari upp
frá því. Stewart Campbell hefur valið transumbili-
calmælingar til að ákvarða vöxt bols og bendir á,
að lifrarrýrnun sé hröð á sveltandi fóstri, og því á
minnkandi ummál bols að vera sæmilega næmur
mælikvarði á vaxtarseinkun — vaxtarstöðnun (dys-
maturitas). Enda Jrótt transumbilical mæliskekkja
geti numið allt upp í 250-300 g á stærstu börnum,
jrá verður hún minnkandi jreim mun minna sem
fóslrið er og því nytsöm hjálp í greiningu á dys-
mature börnum.
2. Diabetes börn eru svo sem kunnugt er stór.
Placenta verður oft Jregar líður á 3. trimesterið þykk
og gljúp, ekki ósvipuð rhesus-fylgju, og fylgjustarf-
semin snögg minnkar. Diabetes börn eru ])ví oft í
mikilli hættu vegna skyndilegrar vaxtarseinkunar
eða vaxtarstöðnunar (IUGR), og þarf því að sonar-
skoða jafnvel vikulega með mati á höfði og bol.
3. Resus og A, R, 0 immunisering orsakar oft
Mynd 29. Foetus mortuus. Myndin er tekin í transcoronal
plani og sést vel hvernig höjuðbeinin eru sköruð. Það gejur
ólvírœtt til kynna að fóstrið er dáið og macererað. P: Parie-
talbeinin. 0: Occipitalbeinið.
30
LÆKNANEMINN