Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1978, Síða 39

Læknaneminn - 01.11.1978, Síða 39
I Vestur-Þýsklandi er samvinna milli læknisfræöi- bókasafna einnig náin og þar var stofnað Zentral- bibliothek fiir Medizin í Köln 1968.6 Þar í landi hef- ur einnig verið stofnað Deutsche Institut fiir medi- zinische Dokumentation und Information (DIMDI). Þessi stofnun hefur haft það verkefni að skipuleggja upplýsingakerfi (DIMDINET) á sviði læknisfræði- bókmennta er nái um allt landið.7 Lœknisfrteðibókasöfn hérlentlis Eins og margoft hefur verið bent á af þeim, sem ritað hafa um málefni læknisfræðibókasafna okkar undanfarinn áratug, er ástandið í þessum málum vægast sagt slæmt. Aðeins örfá læknisfræðibóka- söfn hafa verið skipulögð eða eru í skipulagningu og eru þau öll á höfuðborgarsvæðinu utan eitt, sem er við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Þeirra fremst standa söfnin við Borgarspítalann og Land- spítalann, sem bæði hófu starfsemi 1967-68. Þau veita starfsliði sinna stofnana mikilvæga þjónustu, en bæði búa þau við alltof þröngt og óhentugt hús- næði, sem háir starfsemi þeirra. Engu að síður eru þau góð dæmi um það hvers lítil, en vel skipulögð læknisfræðibókasöfn eru megnug. Þar sem þessi tvö söfn hafa í um áratug verið nær þau einu sinnar tegundar hér hefur ekki hjá því farið, að til þeirra hafa leitað aðrir en starfslið þeirra stofnana er þjónusta þeirra miðast við. Söfnin hafa leyst vanda þeirra eftir getu, en þar sem hlutverk þeirra er ein- göngu að þjóna sínum stofnunum og starfsliðsfjöldi og uppbygging þeirra er við það miðuð, hlýtur þjónusta við utanaðkomandi safngesti að verða mjög takmörkunum háð. Þetta, ásamt öðru, er ein- dregin ábending um þörfina á miðbókasafni. Hutjmyntlin um miðbóhasafn hérlentlis Um áratugur er nú síðan að hugmyndin um mið- bókasafn í læknisfræði kom fyrst fram hér. Nefnd var þá skipuð á vegum Læknafélags íslands og Læknafélags Reykjavíkur og læknanemar eignuðust einnig fulltrúa í þessari nefnd. Samstarfsnefnd um læknisfræðihókasöfn var síðan skipuð og Drög að skipulagsáœtlun um miðsafn í lœknisfrœðibókmennt- um8 voru samin. Málið komst á nokkurn rekspöl og sýnt var, að áhugi var mikill, bæði meðal lækna og bókavarða, fyrir því, að þetta mál næði fram að ganga,9 en af ástæðum, sem ekki verður farið út í hér, dagaði þetta þarfa mál uppi. Gerðist síðan ekk- ert markvert fyrr en á síðastliðnu ári, að nefnd var skipuð á vegum Læknafélags Islands til þess að vinna að málinu á ný og er formaður hennar dr. Magnús Jóhannsson dósent. Nefnd þessi hefur kom- ið samart síðan í janúar 1978 og hefur einnig hald- ið einn fund með bókavörðum Borgarspítala og Landspítala.10 Hlutverk miðbókasafns Hlutverk íslensks miðbókasafns á sviði læknis- fræði gæti orðið eftirfarandi: 1. Að hafa forystuhlutverk um uppbyggingu kerfis læknisfræðibókasafna er næði til allra þeirra landsmanna sem að heilbrigðismálum vinna. Hér leiðir af sjálfu sér, að miðbókasafnið verður heilbrigðisstofnunum til ráðuneytis um uppbygg- ingu sinna safna. 2. Að annast bókasafnsþjónustu við alla þá er að heilbrigðismálum vinna, annað hvort beint eða í gegnum önnur læknisfræðibókasöfn innan þessa safnakerfis. Þetta gerir miðbókasafnið með því að: a) hafa og viðhalda samskrá um bækur og annað efni, sem til er í öllum læknisfræðibókasöfn- um á landinu. Þetta er nauðsynlegt til þess að safnið geti þjónað sem miðstöð fyrir lán á milli einstakra safna. 011 önnur söfn innan kerfisins sendu lánsbeiðnir sínar til miðbóka- safnsins þar sem á augabragði væri hægt að sjá, hvort umbeðið rit væri til hérlendis og þá í hvaða safni. Þegar á þyrfti að halda yrði lánsbeiðnin send til erlends safns. b) gefa út sérstaka skrá yfir allt sem gefið er út á sviði læknisfræði og skyldra greina á Is- landi. Hér í mundi felast að viðhalda þeim efnislyklum íslenskra tímarita í læknisfræði og skyldum greinum, sem þegar hafa verið gefnir út. Mætti hugsa sér, að miðbókasafnið gæfi út einn efnislykil, eins konar íslenskan Index Medicum, sem skráði allt efni sem hér birtist á sviði læknisfræði og skyldra greina. I.ÆKNANEMINN 35

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.