Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1978, Blaðsíða 41

Læknaneminn - 01.11.1978, Blaðsíða 41
hjúkrunarfræði, lyfjafræði, sjúkraþjálfun, sálar- fræði, félagsráðgjöf o. s. frv.) munu hafa mikil not af miðbókasafninu. Ljóst er, að bókasafnsþjónusta við læknadeild og skyldar deildir og námsbrautir er nú allsendis ófull- nægjandi. Áður hefur komið fram óánægja bæði kennara og stúdenta með hinn læknisfræðilega hluta Háskólabókasafns.1 c. 17, t 8 Svo vill til, að í 1. tbl. 1. árg. Lœknanemans (hét þá Lœknisneminn) 1940 birtist eftirfarandi klausa: „Vegna húsnæðisleysis eru bækur og tíraarit deildarinn- ar geymd á fleiri en einum stað, og því oft erfitt að átta sig á hvað til er að slíku. Háskólinn á talsvert til af þeim þótt mikið vanti. 1'ímaritin flytja nýjungar, en eru jafnframt sí- gild heimiid þegar studera þarf eitthvert vifffangsefni ýtar- lega. Þótt að stúdentar hafi nóg að starfa við lestur náms- bókanna, ættu þeir samt að verja nokkrum tíma til lesturs þeirra hæði í menntunar skyni og til dægradvalar. Þeir sem ætla sér að verða læknar, verða að kunna að studera, og verða að studera, og hetra er að byrja sem fyrst á því. Þeg- ar menn lesa heinia hjá sér, sjá þeir oft vitnað til ýmissa tímarita, og er ])á mjög þægilegt að geta strax séð hvort þau muni vera til hér á söfnunum. Einnig getur komið sér vel að vita hvað til er á söfnunum, þegar menn eru að velja sér til kaups eða áskriftar einhver tímarit, svo að það verði ekki alveg út í bláinn.“19 Þessi klausa birtist sem formáli fyrir lista yfir tímarit í læknisfræði, sem þá voru til á Landsbóka- safninu og var þetta upphaf á eins konar samskrá yfir tímarit, sem læknanemar höfðu þá aðgang að, en ekki varð framhald á þessari skrá þar sem hlé varð á útgáfu blaðsins til 1946. Það er fyrst nú, 38 árum síðar, að samskrá yfir erlend tímarit í eigu ís- lenskra bókasafna hefur verið gefin út, og er þar ba?tt úr mjög brýnni þörf.20 Auk þess sem ýjað er að slæmu ástandi í bóka- safnsmálum læknadeildar í byrjun klausunnar hér að ofan, er þar af framsýni hvatt til þess, að stúd- entar lesi út fyrir sitt námsefni. I rauninni hefur þróunin stefnt meir og meir í þá átt erlendis hin síð- ari ár, að stúdentar hafa orðið að lesa fleira en að- eins textabækur og tímaglósur. A. m. k. í Banda- ríkjunum, þar sem undirritaður þekkir nokkuð til, hefur ein meginorsökin fyrir miklum vexti bóka- safna við læknadeildir og læknaskóla verið auknar þarfir um meira og fjölbreyttara safnefni vegna nýrra kennsluaðferða og aukinna rannsókna.21 Þar í landi hefur verið tilhneiging til meira sjálfstæðs náms í læknisfræði og safnefni í öðru formi en bóka og tímarita hefur rutt sér til rúms. Þar má t. d. nefna sjónvarp með myndsegulbandi, filmuræmur, kvikmyndir, hljómbönd, o. s. frv. Það nýjasta í þess- um efnum eru tæki til forskriftarnáms („programm- ed learning machines“) og náms- og kennsluaðstoð með hjálp tölvu („Computer Assisted Instruction (CAI)“), sem þegar hefur haldið innreið sína í bókasöfn við bandaríska læknaskóla og læknadeild- ir. Þeir, sem um þessa nýju námstækni og tæki hafa fjallað, eru sammála um, að besti staðurinn fyrir notkun þeirra og staðsetningu sé einmitt læknis- fræðibókasafnið í viðkomandi stofnun.22-23 Segja má, að læknadeildarbókasafn skrái og geri aðgengilega þá þekkingu, sem kennsla í greininni og lækningar eru grundvallaðar á. Mikilvægi safnsins eykst um leið og þessi þekkingarforði eykst. Nú, á límum örrar þróunar og stóraukins upplýsingaflæð- is þar sem m. a. þekking sú, sem er undirstaða kennslu í læknisfræði, úreldist á skömmum tíma, er það bráðnauðsynlegt, að kennarinn hafi aðgang að góðu deildarsafni og kunni að notfæra sér það. Fyrir læknastúdentinn þjónar deildarsafnið eins og nokkurs konar rannsóknastofa þar sem hann get- ur ekki aðeins lært að fylgjast með nýjum upplýs- ingum og nýrri þekkingu, er fram koma í læknis- fræði, heldur getur hann einnig lært að kanna eldri þekkingu, sem nýrri uppgötvanir eru grundvallaðar á. Deildarsafnið er bráðnauðsynlegt til þess að styðja við og auka námið, en eitt það mikilvægasta, sem það gerir fyrir læknastúdentinn, er að gera honum fært að nema sjálfstætt.24 Hér við læknadeild HÍ virðist þess lítt hafa gætt, að stúdentar hafi þurft að nota bókasöfn í sam- bandi við sitt nám eða verið hvattir til þess. A. m. k. er ekki að sjá af þeim umsögnum er stúdentar hafa ritað um kennslu lærifeðra sinna í deildinni (sjá t. d. Læknanemann, 3. tbh, 1977), að bókasafnsnotkun sé nauðsynleg til þess að geta stundað námið sóma- samlega. Hið sama staðfesta samtöl undirritaðs við læknanema og nýlega útskrifaða lækna úr deildinni. Það má auðvitað segja, að lítið þýði fyrir kennara að fara fram á það við stúdenta, að þeir noti deild- arsafn, sem varla er til. Þó mun eitthvað um, að einstakir kennarar, sem jafnframt vinna á Borgar- læknaneminn 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.