Læknaneminn - 01.11.1978, Side 44
Um C-vítamín
Elín Ólafsdóttir lífefnafræðingur
Inngangur
Undanfarinn áratug hefur mikið verið rætt og ritað
um C-vítamín (ascorbinsýru). Má sennilega rekja
þessar umræður að miklu leyti til áhuga Linus
Pauling1 á heilsubætandi áhrifum C-vítamíns, eink-
um sé það tekið inn í stórum skömmtum. En þrátt
fyrir miklar umræður og auknar vísindalegar athug-
anir hefur þekkingu manna á áhrifum C-vítamíns
lítið fleygt fram á þessum tíma.
Rökstuðningur Pauling fyrir aukinni neyslu C-
vítamíns er einkum byggður á samanburði við C-
vítamín framleiðslu þeirra spendýra sem mynda eig-
ið C-vítamín, og athugun á magni þess í fæðu apa
og naggrísa.
Stone2 mælir einnig með inntöku stórra skammta
af C-vítamíni og er röksemdafærsla hans að nokkru
leyti erfðafræðileg. Telur hann að forfeður okkar
hafi framleitt nokkur grömm af C-vítamini á dag,
áður en þeir töpuðu geninu sem gerir nútímamanni
ókleift að framleiða C-vítamín.
Lewin3 byggir sína röksemdafærslu fyrir neyslu
stórra skammta af C-vítamíni á því að í tæknivæddu
þjóðfélagi búi maðurinn við svo mikla streitu að
hann þurfi ætíð að hafa stóran varaforða C-vítamíns
til taks í líkamanum þannig að varnarkerfi líkamans
geti brugðist við hvers kyns áreiti af fullri atorku.
Hins vegar eru margir sem telja að ráðlagðir dag-
skammtar af C-vítamíni, sem í raun eru miðaðir við
að verjast skyrbjúg, séu manninum nægjanlegir og
aukin neysla C-vítamíns sé óæskileg, þar sem þekk-
ing okkar á áhrifum þess til góðs eða ills sé enn tak-
mörkuð.
Ráðlagðir dagskammtar
Ráðlagðir dagskammtar af ascorbinsýru eru 45
mg á dag fyrir fullorðna, 35 mg fyrir kornabörn,
60 mg fyrir vanfærar konur og 80 mg fyrir konur
með barn á brjósti.4 Árið 1949 varpaði Bourne5
fram þeirri spurningu hvort 45 mg væru nægur dag-
skammtur af ascorbinsýru. Taldi hann að eitt til tvö
grömm á dag væri nær lagi. Stone0 komst að þeirri
niðurstöðu 1966, að 3 til 5 g af C-vítamíni á dag
væri sá skammtur sem flestir þyrftu til að njóta
þeirra heilsubætandi áhrifa sem þetta vítamín gæti
veitt. Lewin3 telur að C-vítamín þörf manna sé mjög
mismunandi og fari eftir líkams- og sálarástandi
hvers og eins. Hann telur að 70 til 150 mg á dag sé
hæfilegur skammtur fyrir þá sem eru í andlegu
jafnvægi og ekki undir neinu líkamlegu álagi. Hins
vegar geti dagsþörfin farið upp í 5 til 10 g við sýk-
ingu, uppskurði, alvarleg sár og mikla andlega á-
reynslu.
Pauling bendir á það, að ráðlagðir dagskammtar
vítamína og annarra næringarefna séu fyrst og
fremst miðaðir við það að koma í veg fyrir skorts-
einkenni, en ekki við það að ná sem bestri heilsu.
Vill hann gera mun á ráðlögðum lágmarksdag-
skömmtum og ráðlagðri dagsneyslu, sem hann tel-
ur að ætti að vera fyrir C-vítamín á bilinu frá 250
mg til 4 g.7
Að konia í veg fyrir skyrbjág
Eins og áður er sagt munu ráðlagðir dagskammt-
ar af ascorbinsýru fyrst og fremst vera miðaðir við
það að varna myndun skyrbjúgs. Hodges og sam-
starfsmenn8 komust að sömu niðurstöðu og fjöldi
fyrirrennara þeirra, að 10 mg af ascorbinsýru væri
nægilegur skammtur til að koma í veg fyrir skyr-
bjúg í flestum einstaklingum. Samanlagður fjöldi
þeirra sem hafa tekið þátt í skyrbjúgsvarnarkönn-
unum er tiltölulega lítill og litlar upplýsingar til um
einstaklingsbundinn mun á ascorbinsýrumagni, sem
þarf til að verjast skyrbjúg. Ráðlagðir dagskammt-
ar eru því hafðir nokkuð fyrir ofan 10 mg mörkin,
40
LÆKNANEMINN