Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1978, Síða 49

Læknaneminn - 01.11.1978, Síða 49
Flurazepam Þórir B. Kolbeinsson læknanemi Flurazepam (Dalmadorm, Dalmane) er svefnlyf af benzodiazepin-gerð, sem átt hefur vaxandi vinsæld- um að mæta. Reynt verður að gefa yfirlit um lyfið og í grundvallaratriðum byggt á grein D. J. Green- blatt og félaga, Flurazepam hydrochloride.1 Efnaeiginleikar. Flurazepam er eitt af 1,4 ben- zodiazepinum I mynd 1), og skylt klórdiazepoxíð og díazepam. Það er gulleitt duft, bræðslumark 212°C og leysist vel í alkoholi og vatni. Lyfhrif Efnafrœðilegur grunnur. Ekkert er enn sannað um verkunarmáta. Ýmsar lilgátur eru þó uppi. Tal- ið er að benzodiazepín minnki umsetningu nor- adrenalins í heila og sérstaklega þá aukningu sem stress framkallar. Einnig er talið að það geti gripið inn á serotonin umsetningu. Dopamin umsetning er talin geta minnkað og ef til vill fléttast GABA (Gamma-amino Butyric Acid) líka inn í, en GABA er þekkt sem hamlandi boðefni í miðtaugakerfi og /C2H5 TAFLA 1 Hlutfallslegur vöðvaslakandi og krampastillandi styrkur nk. benzodiasepína miðað við Flurazepam, athugað í músum.1 Ahrij A ðjerð V öðvaslakandi Krampastillandi 1. rajstuð í jót 1. Pentylentetrazol 2. rajstuð Flurazepam 1,00 1,00 1,00 Diazepam 2,00 1,14 13,6 Chlordiazepoxide 0,50 0,20 2,73 Oxazepam 0,50 2,28 2,93 Nitrazepam 4,00 2,28 2,64 getur það ef til vill útskýrt krampastillandi verkun. Tauga- og vöðvakerfi. Flurazepam hefur vöðva- slakandi og krampastillandi áhrif í dýratilraunum líkt og önnur benzodiazepín og sést hlutfallslegur styrkur nokkurra benzodiazepína með lilliti til þessa í töflu 1. Vöðvaslakandi áhrif eru sérlega sterk á poly- synaptiska reflexa (viðbragðsboga) en væg á mono- synaptiska eins og patellar reflex. Nú er talið að áhrifin séu tilkomin supraspinalt og þurfi mænan að vera órofin. Atferli. Flurazepam hefur temjandi áhrif á dýr eins og önnur benzodiazepin. Viðeigandi skammtar benzodiazepína og annarra róandi og svefnlyfja valda breytingu á hegðun dýra sem lúlkaðir eru sem afhömlun eða kvíðalosun. Aukin árásarhneigð hefur þó sést eftir benzodia- zepín og flurazepam og hefur slíkt verið túlkað sem losun á kvíðahamlaðri árásarhneigð. 1 sumum til- raunum hefur flurazepam sýnt eðlis- og magnbund- inn mun miðað við önnur benzodiazepín en klínisk þýðing þess er óljós.1 Lífeðlisfrœði. í dýratilraunum hefur sýnt sig að benzodiazepín virka fyrst og fremst á rafbylgju- virkni í thalamus og limbiska-kerfinu, en verkun á cortex cerebri og formatio reticularis er hlutfalls- LÆKNANEMINN 45

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.