Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1978, Síða 64

Læknaneminn - 01.11.1978, Síða 64
Frá þingi NFMU á Akureyri Bogi Ásgeirsson og Ástríður Jóhannesdóttir læknanemar Haldið var á Akureyri í júní sl. samnorrænt þing um „problem oriented medical record“ á vegum Nordisk federation for medicinsk undervisning. Samtök þessi voru stofnuð árið 1966 í þeim til- gangi að fjalla um kennslu læknaefna á Norður- löndum og stuðla að auknum samskiptum og upp- lýsingamiðlun milli norrænna læknadeilda. I samtök þessi er kosið á tveggja ára fresti einn fulltrúi frá hverju landi, auk tveggja fulltrúa úr Félagi nor- rænna læknanema (Nordiska medicine studeranda). Samhliða er einnig kosning fulltrúa í stjórn læknanemafélagsins og á þar sæti einn fulltrúi frá hverju landi. Fóru þessar kosningar fram á fræðsluþinginu á Akureyri, sem jafnframt var aðalfundur samtak- anna. Fulltrúi Islands í samtökin var kosinn Arinbjörn Kolbeinsson og varamaður hans Orn Bjarnason. Fulltrúi í stjórn Félags norrænna læknanema var kosinn Eiríkur Þorgeirsson og varamaður hans Ást- riður Jóhannesdóttir. Er Eiríkur jafnframt vara- maður í stjórn samtakanna (NFMU). PROBLEM LIST » ■ ÍmlvíI. •KMLVIO 1. 8/28171 Diarrhea 9/70/77 Ma/absorption 8/16/7[ Gluten induced an teropathy 2. 8/28/71 Weight loss 9/70/77( See #7 3. 8/28/71 Anemia 9/7/77. Megloblasttc anemia 9/5/77 Vitamin B/2 deficiencv .9/19/77. See #7 4. 8/28/71 Hlstory of myocardial infarctlon 8/30/71^ Arteriosclerotic heart disease 5. 8/28/71 S/P . Appendectom 1930 8. 8/28/71 S/P Left inguinai 1940 7. 2/10/72 Epiqastric pain 2/7 7/7^ Duodenal uicer Healed duodenai ulcer 4/1/72 8. 8/5/72 Chest pain 8/8/72^ Acute myocardiai infarction 9. 8/5/72 Syncope ?/8/7£ See #8 10. 11. 12. 13. 14. TEMPORARY PROBLEM LIST (acute-umited: Acute cystilis EySubl. fyrir vandamálalista ásamt uppsettum vandamálum. Þingið Dagskrá þingsins hófst að kveldi 28. júní með móttökuræðu formanns undirbúningsnefndar, próf. Jóhanns Axelssonar og ræðu Gauta Arnþórssonar, yfirlæknis á Akureyri. Var síðan gengið til kvikmyndasýningar og nátt- verður í boði heilbrigðismálaráðuneytisins. Þinghaldið sjálft hófst morguninn eftir með aðal- fundi samtakanna (NFMU) þar sem gerðir voru upp reikningar fráfarandi stjórnar og gerð grein fyrir starfsemi samtakanna sl. tvö ár. Þeim aðalfundi var framhaldið 1. júlí með kosningu þeirri sem áður er getið. Var þá jafnframt gerð grein fyrir helstu mál- efnum, sem nýkomin stjórn hyggst beita sér fyrir. Bar þar hæst að okkar mati sú hugmynd að auka hlut stúdenta í stjórn samtakanna. Á milli dagskráratriða komu stúdentar saman og héldu fundi. Var lagt niður félag sem áður starfaði undir nafninu Nordiska medicinar-rádet, og nýtt fé- lag stofnað á þeim rústum með nýjum og endur- bættum reglum. Helstu breytingar voru þær, að innan þessa nýja félags (Nordiska medicine studerande) hefur hvert land jafnmörg atkvæði, í stað þess að áður fór at- kvæðamagn hvers lands eftir fjölda læknanemafé- laga þess. Jafnframt á nú hvert land einn fulltrúa í stjórn félagsins (sbr. kosninguna sem áður er getið). 56 LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.