Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1978, Síða 65

Læknaneminn - 01.11.1978, Síða 65
Eru áætlaðir tveir stjórnarfundir á ári, en aðalfund- ir á tveggja ára fresti eins og áður. POMR Aðalmál þingsins var kynning á POMR og var hún í fyrstu í fyrirlestraformi. Var síðan fundar- mönnum skipt í 10 manna hópa og fóru umræður um málið fram innan hvers hóps. Jafnframt fékk hver hópur verkefni til úrvinnslu og voru þau aðallega ætluð til að sýna fram á mun- inn á hefðbundinni sjúkraskrá og POMR. Fyrirlesarar og leiðbeinendur voru Leslie j. Sand- Iow M. D. Chicago og Lawrence L. Weed M. D. Ver- mont, en hann er jafnframt upphafsmaður POMR og birtist fyrsta grein hans um það efni árið 1968.3 I. Initiál data base Fyrsti þáttur POMR er upplýsingaforði. Þessi þáttur er samsettur af sögu sjúklings, objektivri skoðun og rannsóknaniðurstöðum. Samsvarar þetta í meginatriðum hinni hefðbundnu sjúkraskrá. Upplýsingarnar eru: 1. Sérstök vandamál sjúklings. 2. Persónuatriði (aldur, staða, kyn o. s. frv.). II. Listi yfir vandamál (problem list) Ut frá upplýsingaforðanum eru vandamál sjúk- lings sundurliðuð og skilgreind. Öll fundin vanda- mál, gömul og ný, eru sett upp í númeraröð fremst á sjúkraskrá sjúklings. Vandamál skulu grundvölluð á þeirri þekkingu sem fyrir hendi er, en ekki sett upp sem ákveðin sjúdómsgreining ef fullnægjandi upplýsingar eru ekki fyrir hendi. Hvert vandamál heldur sínu númeri í gegnum skrána, jafnvel þótt tilill þess breytist er nýjar og ýtarlegri upplýsingar koma til sem afmarka vanda- málið frekar.2 III. Aform (plans) Þegar vandamál hafa verið greind, gerir læknir- inn áform um lausn hvers vandamáls um sig. Áform fyrir hvert vandamál felur í sér: 1. Titil þess og númer. 2. Markmið, þ. e. hvaða frekari upplýsinga afla skal, tilhögun meðferðar og uppfræðsla sjúk- lings. IV. Framvindunótur (progress notes) Þær fela í sér upplýsingar sem fram koma meðan á meðhöndlun vandamáls stendur svo og áform sem á þeim upplýsingum byggjast. Framvindunótur eru ávallt einkenndar með núm- eri og titli þess vandamáls er þar eiga við. Þeim er skipt í fjóra hluta, þ. e. svokallað SOAP- form: S — Subjeklivar upplýsingar, þ. e. athuga- semdir sjúklings og fjölskyldu hans varðandi vanda- málið. 0 = Objektivar upplýsingar, þ. á m. niðurstöður klíniskrar skoðunar, rannsókna og hjúkrunar- skýrslna. A = Asessment eða mat læknis á mikilvægi S og 0 þ. e. hvers vegna og hvort halda skuli áfram, breyta eða hætta meðhöndlun. P = Plan eða áform um meðhöndlun sbr. áform hér að framan. Ú tskriftarsamantelct Stutt samantekt gerð við útskrift af sjúkrahúsi. Hún hefst á problem-lista, en síðan er gerð grein fyrir hverju vandamáli um sig í stuttu máli. Er sú greinargerð sundurliðuð á eftirfarandi hátt: Framh. á bls. 55. LÆKNANEMINN 57

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.