Læknaneminn - 01.11.1978, Page 66
Ferð til Liverpool sumarið 1978
Kristleifur Kristjánsson læknanemi
Fram að þessu hefur á hverju ári verið gefin út lít-
il þunn bók í læknadeild, sem borið hefur nafnið
Kennsluskrá læknadeildar. L henni hefur verið að
finna, auk margvíslegra upplýsinga og leiðbeininga
um námstilhögun, enn mikilvægari upplýsingar eins
og til dæmis hvað kennararnir heita og hvar þeir
eiga heima (fyrir þá sem ganga með lak í töskunni),
hvenær þú átt að vakna á morgnana og hvernig þú
átt að eyða peningunum í Bóksölunni.
Mikilvæustu hlutverki hefur hún þó eflaust gegnt
í árvissum deilum um fjölda stúdenta, sem halda eiga
áfram námi eftir fyrsta námsár. Það er, hún hefur
verið stúdentum ómetanlegt vopn í baráttunni gegn
fjöldatakmörkunum, en í henni hafa birst þær reglu-
gerðir, sem settar hafa verið um leyfilegan fjölda
stúdenta. Frægust er án alls vafa 42. greinin, sem í
Kennsluskránni 1977-78 er á bls. 58. FLún er það
spjót, sem beint hefur verið að stúdentum í gegnum
árin, en sem hvað eftir annað liefur snúist þeim í
hendi, er um skaftið hafa haldið. Ástæðan er sú, að
aldrei hefur tekist að framkvæma hana á löglegan
hátt, enda ekki við góðu að búast, þar sem fregnir
herma, að í hugum sumra séu lög ekki lög, tilmæli
Mr. Pearson og sirákarnir.
58
Hagstœð kviðfylli í faðmi móður nátlúru.
ekki tilmæli, en tilmæli geti aftur á móti verið lög
ef svo ber undir.
Astæðan fyrir þessu rabbi um innihald Kennslu-
skrárinnar er að draga fram vissar andstæður. And-
stæður? Já andstæður, sem í hugum læknanema
eiga sér ekki hliðstæður í heimsbókmenntunum. Hef-
ur þú samstúdent góður, Liorið 42. greinina saman
við það sem stendur á bls. 10 í Kennsluskránni 77-
78. Þar í lesefni um macroanatomíu II, er falið það
gullkorn, sem fyllir hjörtu stúdenta birtu og yl. Þau
orð sem eru óþrjótandi eldsneyti á lampa minning-
anna hjá 3.-6. árs nemum, sem segull á 1. árs nema
upp á 2. ár, og sem ópíum fyrir 2. árs nema, sem
bíða að tíminn líði. Og hvernig hljóðar svo þetta
gullkorn?
„Námskeið í krufningum fer fram erlendis sumar-
ið 1978, ef fé og aðstaða fæst, eins og undanfarandi
ár.“
Eins og fyrirsögnin ber með sér þá fékkst í ár
Lræði fé og aðstaða. Ut héldu 47 stúdentar, flestir
laugardaginn 8. júlí. Eins og undanfarandi sumur
fór námskeiðið fram við háskólann í Liverpool í
Englandi. I þetta sinn var haldið til við ágætis að-
LÆKNANEMINN