Læknaneminn


Læknaneminn - 01.09.1981, Side 7

Læknaneminn - 01.09.1981, Side 7
Dauðaráðstefnan Fræðslunefnd Félags læknanema hélt ráðstefnu 5. desember 1981 í Norræna Húsinu. Fjallaði hún um dauðahugtakið. Hér birtast erindi þeirra sem framsögu höfðu á ráðstefnunni. Hugleiðing um merkingu dauðans Páll Skúlason Dauöinn — ef við nefnum svo þenn- an óraunveruleika sem vofir yfir líf- inu — hefur óneitanlega mikla sér- stööu meðal alls þess sem við vitum af, hugsum og ræðum um. Hann er í senn eðlilegt, náttúrlegt fyrirbæri, hliðstætt við fæðinguna, og það sem er algerlega andstætt lífinu, það sem leysir upp lífveruna, gerir lífsbaráttu hennar að engu. Veitum því fyrst athygli að þessar tvær staðhæfingar um dauðann eru bornar fram undir ólíku sjónarhorni. Þegar ég segi að dauðinn sé náttúrlegt fyrirbæri, þá lít ég á lífið hlutlægt eða utan frá, ég skoða Iífið sem flókið þróunarferli ótal lífvera. Þegar ég staðhæfi á hinn bóginn að dauðinn sé andstæða lífs- ins þá lít ég á málið frá sjónarhóli lífveru sem þráir eða leitast við að lifa; viðhorf mitt er huglægt eða bundið tilteknum einstaklingi. Frá þessum ólíku sjónarmiðum höfum við gerólíka sýn til dauðans og leggj- um að vissu marki ólíkan skilning í dauðann, þ. e. dauðinn fær ekki sömu merkingu fyrir okkur eftir því hvort við skoðum hann huglægt eða hlutlægt. Frá hlutlægu sjónarmiði er dauðinn staðreynd sem óþarft er að gera mikið veður út af í sjálfu sér. Frá huglægu sjónarmiði er dauðinn á hinn bóginn ógnvekjandi og jafnvel eitthvað sem ég get ekki fyllilega hugsað mér, tortíming, eyðing, af- nám þeirrar veru sem ég er. Þessi sjónarmið eru bæði tvö mjög skiljanleg og eðlileg og bæði hafa verið rökstudd vandlega af heim- spekingum og öðrum sem velt hafa þessum vanda fyrir sér. Það má því ganga að því vísu að þau eigi sér traustari stoðir í hugsun manna og reynslu. Tilgáta mín er engu að síður sú að þau veiti hvortfyrirsigákaflega takmarkaðan skilning á dauðanum og jafnvel að þau geti af sér fjarska gallaðar, ef ekki beinlínis rangar skoðanir á honum, og þar með að þau kunni að leiða til óskynsamlegr- ar lífsafstöðu, óheillavænlegrar af- stöðu til dauðans. Ég mun nú reyna að útfæra og rök- styðja ofurlítið þessa tilgátu mína. Þegar við lítum á dauðann utan frá sem hluta af lífinu, þá teljum við okk- ur vita með öruggri vissu að allt sem lifir, ntuni deyja, að dauðinn er, ef svo má segja, lögmál lífsins. Fyrir þessari vitneskju okkar höfum við ótal reynslurök, þ. e. reynslu af dauða annarra lífvera en okkar sjálfra. Við virðumst reyndar ekki hafa nein önnur rök en þau sem við getum sótt beint til reynslunnar: við sjáum að lífverur fæðast og deyja. Þetta skýrir hvers vegna menn eru oft haldnir djúpstæðri óvissu gagnvart eigin dauða. Menn geta að sjálfsögðu sjaldnast vitað hvenær eða með hvaða hætti dauða þeirra ber að höndum, og það sem meira er þeir geta ekki verið algerlega vissir um eigin dauða, því að vissan um dauð- ann er grundvölluð á dauða annarra, ekki á þeirra eigin dauða; ég hef reynslu af því að aðrir deyi, enga af LÆKNANEMINN 3"V1981 - 34. árg. 5

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.