Læknaneminn


Læknaneminn - 01.09.1981, Page 16

Læknaneminn - 01.09.1981, Page 16
siðræn viðhorf kunna auk þess að kalla á nýja eða breytta löggjöf á komandi árum. Lög um svo viðkvæm og örlagarík efni ætti þó aldrei að setja nema að vel athuguðu máli. Lagareglur geta gert illt verra, ef þær skapa nýjar hættur á misferli eða mis- tökum. Sem dæmi nefni ég rökin í ritgerð minni um líknardráp í Úlfljóti 1976, bls. 170, gegn hvers konar lög- leiðingu athafna eða athafnaleysis, sem nú fellur undir líknardráp (og þar með manndráp) í Iagaskilningi, þótt aðstæður kunni að vera slíkar, að refsivörslukerfið vilji þola slíka háttsemi með því að sýna umburðar- lyndi eftir atvikum hverju sinni. Beinum yfirlýsingum í lögurn um heimildir til að eyða mannslífum fylgja of margar hættur, hversu vel sem þeim er fyrir komið og þótt alls kyns varnaglar séu slegnir. Slík ákvæði mundu í fyrsta lagi brjóta gegn djúprættum grundvallarhug- myndum mannkyns um friðhelgi lífs- ins og virðingu fyrir því í öllum myndunt þess. I öðru lagi væri aukin hætta á mistökum og dulbúinni mis- notkun. I þriðja lagi gætu þau ýtt undir hugmyndir um mismunun mannslífa eftir verðleikum. I fjórða lagi mundu þau ýta undir ótta og ör- yggisleysi sjúklinga og öryrkja gagn- vart læknum, hjúkrunarliöi og vandamönnum. Loks ber að leggja áherslu á hin fornu sannindi, að ætíð er von, meðan líf endist. Sífellt koma fram á sjónarsviðið ný lyf og nýjar lækningaaðferðir, sem geta bjargað dauðvona sjúklingum. Ég ætla hér á eftir að fjalla nánar um þrjá þætti þessara mála, að nokkru leyti með hliðsjón afgildandi rétti, en þó einkum með þau lagalegu vandamál í huga, sem við kunnum að þurfa að glíma við í auknum mæli á komandi árum: a) Hugtakið dauði og ákvörðun dánarstundar. b) Ákvörðunarréttur yfir eigin lífi og líkama og réttur náinna vandamanna, fyrir og eftir and- lát. c) Friðhelgi dauðans. Réttur til að deyja í friði. Hugtakið dauði og ákvörðun dánartíma Hvergi í íslenskri löggjöf er þess freistað að skilgreina hugtakið dauða og við hvaða mark á stöðvunarferli Iíkamsstarfseminnar skuli tengja hin ýmsu réttaráhrif. Læknum er látið eftir að ákvarða þetta tímamark, að viðlagðri ábyrgð að lögum, og er sú regla í samræmi við það, sem víðast tíðkast, sbr. Sydney-yfirlýsinguna frá 1968. í íslenskri löggjöf og lagafram- kvæmd er vafalítið við það miðað, að hinn hefðbundni mæiikvarði læknis- fræðinnar sé lagður til grundvallar, þ. e. hjartadauði og stöðvun öndun- arstarfseminnar. Sydney-yfirlýsingin gerir einnig ráð fyrir hinum hefð- bundna mælikvarða, en opnar lækn- unt þó Ieiö við ákveðnar aðstæður til þess að ákvarða dánartíma á annan veg í samræmi viö dómgreind og „kliniskt" mat. Mismunandi mæli- kvarði í þessum efnum getur verið nauðsynlegur læknisfræöilega og fé- lagslega séð, en jafnframt skapað erf- iðar lagaflækjur. Sem dæmi má taka ákvæði 22. gr. erfðalaga nr. 8/1962, er segir svo: ,,Nú voru erfðatengsl milli tveggja rnanna, sent báðir eru látnir, en ósannað er, hvor þeirra dó fyrr, og skal þá líta svo á, að hvorugur hafi lifað hinn." Þetta getur t. d. átt við um hjón eða foreldri og barn. Ef skammur tími er milli andláts þessara einstaklinga, getur svo farið, að dán- arvottorð læknis skeri ekki úr, hvor hafi dáið á undan. En einnig má hugsa sér þau atvik, að annað hjóna sé úrskurðað látið, þótt hjarta þess sé ekki hætt að slá og öndunarstarf- seminni sé haidið gangandi á vélræn- an hátt. Nokkrum dögum síðar deyr hitt hjónanna venjulegum dauðdaga. Mundi þá arfur renna frá því hjóna, sem úrskurðað var dáið á undan, til hins makans og þar með erfingja hans? Eða mundu dómstólar telja ósannað um dauðastund hins heila- dauða, þar sem mismunandi mæli- kvarði er Iagður til grundvallar af læknum? Dæmið má setja fram á annan hátt: Hjón lenda í umferðar- slysi, og deyr annað heiladauða, en hitt hjartadauða. Ef miðað er við hjartadauða, erfir heiladauði makinn hinn. I þriöja dæminu eru málavextir þeir. að á sjúkrahúsi liggur maður fyrir dauðanum. Læknar álíta unnt að bjarga manninum, ef hann fær nýra úr öðrum manni í tæka tíð. Á sama sjúkrahúsi liggur annar maður þungt haldinn, í djúpu dái, og er það mat lækna, að hann komist ekki til meðvitundar aftur. Að fengnu sam- þykki aðstandenda er nýra tekið úr síðarnefnda sjúklingnunt til bjargar hinum. Meðan nýrað er fjarlægt, er hjarta og öndun haldið gangandi með tæknibúnaði, uns líffærastarf- semin stöðvast til fulls sólarhring síð- 14 LÆKNANEMINN - 34. árg.

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.