Læknaneminn - 01.04.2010, Blaðsíða 81
Smáþarmabólga (jejunoileitis)
Þetta er tiltölulega sjaldgæft form af
Crohn's sjúkdómi, allavega á íslandi. Við
útbreidda bólgu minnka frásogssvæði
smáþarms og steinefna og almennur
næringarskortur getur fylgt í kjölfarið.
Niðurgangur er mikill og getur verið
íituskita, albuminlækkun í blóði,
calcium og magnesium minnkar í blóði
og storkutruflanir sjást vegna K-vítamín
skorts. Ef ristill er til staðar getur orðið
hyperoxaluria með nýrnasteinamyndun.
Með tímanum verður örvefsmyndun
í smáþarminum og lokunareinkenni
verða meira áberandi og þarf oftast að
leysa slik vandamál með skurðaðgerð.
Ristilbólga - Perianal sjúkdómur
Hjá stórum hluta sjúklinga er bara
ristillinn bólginn og einkenni eru áfram
kviðverkur (verri en í sáraristilbólgu),
mikill niðurgangur en aðeins í helmingi
tilfella sést blóð og mikill almennur
slappleiki. Þrengsli geta myndast í ristli
eins og í smáþarmi og þarf oft að laga
þau með holsjárútvíkkun ef þau eru
stutt eða aðgerð ef þrengslin eru löng og
hörð. Um 30% sjúklinga með Crohn's
ristilbólgu hafa sjúkdóm í kringum
endaþarmsopið. Þetta geta verið miklir
ytri flipar (Elephant ears), sár og afrifur,
þrengsli í opi og loks fistlar sem geta sýkst
með tilheyrandi graftrarkýli (abscess).
Meðferð þessara endaþarmsvandamála
kallar oft á skurðaðgerðir en er einnig
sterk ábending fyrir nýrri lyf eins og
infliximab og adalimumab til að bæta
lífsgæði þessara sjúklinga.
Crohn's sjúkdómur í efri hluta
meltingarvegar
Tiltölulega sjaldgæft er að finna
sjúkdóminn þarna en oft eru hefðbundin
einkenni frá efri meltingarvegi til
staðar, svo sem verkur, uppþemba
og ógleði. Greining er venjulega með
holsjárspeglun af vélinda, maga og
skeifugörn.
Rannsóknir i Crohn's sjúkdómi
Engar blóðrannsóknir eru sértækar
fyrir Crohn's sjúkdóm en þær eru
oft hjálplegar við að meta bólgu og
aukaverkanir sjúkdómsins.
• Hækkað CRP og sökk,
blóðflögufjölgun
• Blóðleysi (járnskortur og langvinnt
blóðleysi)
• Albumin lækkun
• Hvítblóðkornafjölgun
Ef grunur er um fituskitu er hægt
að láta smásjárskoða saur með tilliti
til fitu en magnmælingar á fitu heyra
sögunni til, allavega hér á íslandi. Ef
frásogsvandi er umtalsverður má sjá
lækkun á bæði calcium og magnesium
og jafnvel lengdan prothrombin tíma.
Holsjárspeglanir í Crohn 's
sjúkdómi
Holsjárspeglun er gagnleg rannsókn til
að finna breytingar sjúkdómsins bæði í
efri hluta kviðarhols og í ristli. Speglanir
hafa takmarkað gildi í smáþarmi
af tæknilegum ástæðum nema við
greiningu á sjúkdómi í terminal ileum.
Við ristilspeglun er afar þýðingarmikið
að komast inn í terminal ileum og ef
speglun er eðlileg af ristli og terminal
ileum eru litlar líkur á Crohn's sjúkdómi.
Notkun holsjárspeglanna er einnig
mikilvæg eftir greiningu á erfiðari
tilfellum, til dæmis við að meta svörun
við lyfjum og ef taka þarf ákvörðun um
breytingu á meðferð. Nýlega er einnig
farið að nota holsjárspeglun til að sjá hvort
slímhúð grói þegar notuð eru kröftug og
kostnaðarsöm lyf einsog infliximab og
adalimumab. Gróin slímhúð í sjúklingi
með Crohn's sjúkdóm er nú viðurkennt
markmið eins og í sáraristilbólgu með
þá von í huga að það dragi úr líkum á
aukaverkunum og fækki innlögnum og
skurðaðgerðum.
Mynd 5
Myndgreiningarrannsóknir í
Crohn 's sjúkdómi
Þar sem það er erfitt að spegla
smáþarminn og Crohn's sjúkdómur
getur farið út fyrir þarmavegginn þá eru
myndgreiningarrannsóknir mikilvægar í
Crohn's sjúkdómi.
Mjógirnismyndataka
Bæði hefðbundin drykkjupassage og
loftinnblástur (enteroclysis) eru notaðir
en næmni þessara rannsókna er léleg eða
um 30%. Þær sýna þó venjulega nokkuð
vel þrengsli og geta þannig hjálpað við
ákvörðun um til dæmis skurðaðgerð í
smáþarmasjúkdómi (sjá mynd 5).
Tölvusneiömyndataka af mjógirni
(CT-enterografy)
Mjög góð rannsókn til að greina
Crohn's sjúkdóm í smáþarmi ef komin
er veggþykknun og þrengsli og eins
ef sjúkdómur er utan við þarm. Mjög
ónákvæm rannsókn fyrir sár og þessari
rannsókn fylgir umtals verð geislun í ungu
fólki. Þess vegna er nú mikil áhersla lögð
á segulómskoðun af smáþarmi (MRI-
enterografy) en myndgæði segulómunar
hafa farið hratt batnandi. Engin geislun
gerir þetta að álitlegum kosti fyrir ungt
fólk sem þarf jafnvel að fara oft í slíkar
rannsóknir.
Holsjárhylkisspeglun
(Videocapsule)
Klárlega besta aðferðin til að skoða
smáþarm með tilliti til sára og ef til vill
fyrstu einkenna frá Crohn's í smáþarmi.
Kostnaðarsöm rannsókn og það er um
1% áhætta á að hylkið festist í smáþarmi
hjá sjúklingum sem eru grunaðir um
Crohn's sjúkdóm en um 5% áhætta hjá
þeim sem eru með staðfestan Crohn's
sjúkdóm. Því ætti líklega ekki að gera
hylkisspeglun nema brýna nauðsyn beri
til í sjúklingum með staðfestan Crohn's
sjúkdóm.
Við langvinnan Crohn's sjúkdóm
koma upp ýmsar aukaverkanir, svo
sem bólguberði eða graftrarkýli og er
þá mikilvægt að nota tölvusneiðmynd
til frekari greiningar og stundum er
tölvusneiðmyndatæknin notuð til
að stinga á og drenera graftrarkýli í
kviðarholi.
Aukaverkanir Crohn's sjúkdóms
Með langvinnum sjúkdómi getur
ýmislegt komið upp á, sérstaklega
ef meðferð hefur verið ófullkomin.
Með nútímalegri lyfjanotkun og þá
sérstaklega notkun líftæknilyfja verða
þessar aukaverkanir vonandi enn
sjaldgæfari í framtíðinni: