Læknaneminn - 01.04.2010, Side 82

Læknaneminn - 01.04.2010, Side 82
Rof á görn Venjulega er þetta tiltölulega afmarkað rof með bólguberði umhverfis rofið og frítt rof inn í kviðinn er tiltölulega sjaldgæft. Graftrarkýli í kviðarholi Algengt í smáþarmasjúkdómi og oft eftir staðbundið rof. Yfirleitt er settur inn keri með aðstoð CT en einnig þarf að meðhöndla með sýklalyfjum. Stundum kallar þetta á skurðaðgerð þar sem nálægur bólginn eða skemmdur garnabútur er fjarlægður. Þrengsli Sjást i ristli en eru mun algengari í smáþarmi. Skurðaðgerð yfirleitt nauðsynleg. Graftrarkýli umhverfis endaþarmsop Yfirleitt afleiðing bólgu neðst í endaþarmi og tilheyrandi fistlum. Þarf alltaf að hreinsa með aðgerð en síðan eru oft settir inn þræðir í fistulur til að halda þeim opnum. Seinna þegar öll sýking er farin má reyna Infliximab eða adalimumab og er hægt að loka um helmingi fistla með slíkri meðferð. Við samanburð á klínískum einkennum sáraristilbólgu og Crohn's sjúkdóms sést að margt er sameiginlegt þessum tveimur sjúkdómum en annað er frábrugðið. I töflu 2 er samantekt á því helsta sem aðgreinir þessa sjúkdóma. Ekki er hægt að greina á milli þessara sjúkdóma í allt að 15% tilfella og er þá talað um ristilbólgu af óákveðinni gerð (Colitis indeterminata). Lyfjameðferð þessara einstaklinga er mjög svipuð en ef taka á ristil eru þessir einstaklingar meðhöndlaðir eins og þeir hefðu Crohn's sjúkdóm og fá þeir venjulega ekki J poka frekar en sjúklingar með Crohn's sjúkdóm vegna lélegs árangurs af þeirri aðgerð. Einkenni þarmabólgu utan þarma Um 30% sjúklinga fá á einhverjum tíma einhver einkenni utan þarma. Erythema Nodosum Sést hjá um 15% með Crohn's en 10% með sáraristilbólgu. Virknihúðbreytinga fylgir virkni þarmabólgunnar. Pyoderma Gangrenosum Sjaldgæfur húðsjúkdómur. Nánast eingöngu í sáraristilbólgu. Fylgir ekki virkni þarmabólgunnar og brottnám ristils hjálpar ekki. Meðferð erfið en svara ef til vill infliximab. Apthous sár í munni Sést aðallega í Crohn's sjúkdómi. Fjölliðabólgur (Polyarthritis) Algengar en sjást oftar í Crohn's sjúkdómi. Flögra á milli stærri liða og fylgja virkni þarmabólgunnar. Liðverkir Sjaldgæfir en erfiðir verkir sem fylgja ekki virkni þarmabólgunnar og lagast til dæmis ekki við brottnám ristils. Eru oft í smáliðum handa og fóta. Sacroileitis Oft einkennalaus bólga en getur gefið verki. Þróast stundum yfir í hryggikt. Salazopyrin er kjörmeðferð. Hryggikt Sést oftar í Crohn's sjúkdómi en sáraristilbólgu. Um 2/3 tengjast HLA - B27. Virknin er óháð þarmabólgunni og getur leitt til varanlegra skemmda á hrygg. Infliximab virðist geta breytt gangi þessa sjúkdóms. Augu Lithimnubólga og hvarmabólga eru algengar. Virknin er óháð virkni þarmabólgunnar. Staðbundin ónæmisbæling er nauðsynleg vegna einkenna og til að fyrirbyggja augnskaða. Infliximab og adalimumab eru sennilega gagnleg. Gallsteinar Aukin tiðni ef sjúklingur með Crohn's er með sjúkdóm í terminal ileum eða búið er að taka terminal lieum. Þetta gerist vegna minnkaðs endurfrásogs á gallsöltum, gallið þykknar og steinar myndast. Primary Sclerosing Cholangitis (PSC) Sjaldgæfur sjúkdómur í þarmabólgu en flest tilfelli PSC eru hinsvegar með þarmabólgusjúkdóm. Alvarlegur sjúkdómur sem skemmir bæði innri og ytri gallganga og getur endað með skorpulifur. Eina meðferðin á háu stigi eru lifraskipti en vægari sjúkdómur er meðhöndlaður með ursodeoxycholic acid eða gallbreytilyfi og síðan eru þrengsli í ytra gallkerfinu víkkuð út með holsjárspeglun ef einkenni fylgja þessum þrengslum.Langalvarlegastaaukaverkun þessa sjúkdóms er gallgangakrabbamein (cholangiocarcinoma) en nánast allir deyja úr þeim sjúkdómi. Pericholangitis Stundum kallaður smágallganga PSC og sést fyrst og fremst í yngri sjúklingum og virðist ekki vera eins alvarlegur og hefðbundinn PSC og leiðir yfirleitt ekki til skorpulifrar eða gallgangakrabbameins. Mismunagreining Margir sjúkdómar gefa svipuð klínísk einkenni og þarmabólgusjúkdómar. I töflu 3 má sjá lista yfir helstu sjúkdóma, bæði sýkingar og aðra sjúkdóma sem hafa ber í huga þegar verið er að greina þarmabólgu. Almennt má segja að sýkingar séu skammvinn vandamál sem lagast af sjálfu sér, oft án sérstakrar meðferðar. Undantekning frá því eru hinsvegar ónæmisbældir einstaklingar sem oft geta haft mallandi sýkingar í meltingarvegi. Saurræktanir skipta miklu máli en einnig getur verið gott að fá vefjasýni við speglun til frekari greiningar eins og á til dæmis CMV ristilbólgu og Clostridium difficilie sýkingu. Við staðbundna endaþarmsbólgu er rétt að hafa í huga kynsjúkdóma eins og lekanda og herpes, sérstaklega ef sjúklingur hefur stundað kynmök um endaþarm. Hjá sjúklingum með langvinnan vatnskenndan niðurgang er rétt að muna eftir smásjárristilbólgu sem getur sést á öllum aldri en er þó mest áberandi í eldri konum (nýgengi um 6/100 þús. á íslandi). í þeim tilfellum er það vefjasýni sem gefur greiningu ef ræktanir eru eðlilegar. Við smásjárskoðun sést aukinn fjöldi eitilfrumna í eitilfrumuristilbólgu og þykknun á bandvefslagi undir slímhúð í bandvefsristilbólgu. Meðferð er með lyfjum og er góður árangur af budesonid lyfjameðferð um munn. Meðferð þarmabólgusjúkdóma í dag er ekki til lyfjameðferð sem læknar þarmabólgusjúkdóma. Oftast er þó hægt að stjórna þessum sjúkdómum með lyfjum þó að flestir sjúklingar með Crohn's sjúkdóm þurfi einhvern tíma á
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.