Ferðir - 01.05.1988, Side 4
4
FERÐIR
þoldi því ekki sáran sult. Um sumarið fóru gangnamenn með
lengsta móti og allt fram í Laugafell. Þar fundu þeir ána og
Svanhildi og höfðu hvorutveggja með sér til byggða. Eftir
þetta var Svanhildur jafnan mjög fálát og aldrei með heilu
sinni.“
Þórunn ríka á Möðruvöllum
Aðra frásögn af mannavistum þarna er að finna í Sókna-
lýsingum séra Einars Thorlaciusar í Saurbæ. Hún var færð í
letur árið 1840 og hefur trúlega átt að gerast í Seinni plágunni í
lok 15. aldar. Einar segir að Þórunn ríka á Möðruvöllum í
Eyjafirði hafi flúið suður að Laugafelli meðan svartidauði
geisaði, svo bætir hann því við, að síðan hafi hún haft þar
sumarsel.
Af þessari frásögn verður ekki séð hve lengi Þórunn hefur
haldið til við Laugafell, en hitt er víst, að landkostir hafa þá
verið aðrir og betri en nú, en það verður vikið betur að því
síðar.
Eiginlega liggur það í orðum séra Einars, að Þórunn hafi
haldist þarna við yfir vetur þar eð hann kallar áframhaldandi
veru hennar þarna “sumarsel“.
Eyfirsk munnmæli herma allmiklu nákvæmara frá dvöl
Þórunnar þarna við laugarnar. Séra Einari hefur vafalaust
verið kunnugt um þau, en ekki talið ástæðu ti! að fara meira
út i það, eða honum hefur ekki fundist þau eiga heima í
sóknarlýsingu. Manni finnst það gegna nokkurri furðu að
hann skyldi setja þessa frásögn þarna í sóknarlýsingu
Möðruvalla. Hún á þar ekki heima. Einari hefur fundist þetta
merkileg saga og ekki viljað láta hana falla alveg í gleymsku,
því hefur hann gripið þetta tækifæri til að bjarga henni frá
glötun.
Munnmæli Eyfirðinga eru dálítið þjóðsögukennd á köfl-
um, en við verðum samt að láta þau duga til að fræða fólk