Ferðir - 01.05.1988, Page 21
F E R Ð I R
21
Sunnudagur 18. 08.
Gestirnir okkar risu snemma úr rekkju og fóru inn að íshelli.
Hjá okkur tók við þetta venjulega, höggva í eldinn, þrífa
kamrana, brenna rusli o.s.frv. En loksins rann upp stóra
stundin. Nú skyldi pylsupakkinn opnaður. Við hátíðlega at-
höfn var fyrsti bitinn tekinn. En æ, æ, þær voru farnar að
skemmast. Mikil barátta ríkti um stund en loks sigraði
hungrið og pylsunum var sporðrennt hálfdrukknuðum í
tómatsósu. Afgangurinn af deginum fór í afslöppun, annar
hópurinn bauð okkur í mat og mikið var spilað á gítar. Þótt
ótrúlegt megi virðast erum við að fara heim á morgun. Þetta
er búin að vera yndislegur tími og besta sumarfrí sem hugsast
getur.
Sparisjóður
Glæsibæjarhrepps
Brekkugötu 9 - Akureyri
Sími21590
Stofnaður 1908
Ávaxtar féykkar með beztu kjörum.
Það er lán að skipta við sparisjóðinn.