Ferðir


Ferðir - 01.05.1988, Side 23

Ferðir - 01.05.1988, Side 23
FERÐIR 23 félagsfólki. Nokkru áður en byggingu Ingólfsskála lauk, var farið að gera áætlanir um næsta verkefni og varla höfðu menn náð andanum eftir byggingu skálans er hafist var handa um byggingu annars, og nú var litið sér nær. Félagsfólk hafði gert sér grein fyrir, að áherslubreyting var að eiga sér stað í ferða- lögum fólks og kynnum þess við landið sitt. Áhugi fyrir gönguferðum, jafnt sumar sem vetur, var og er að stóraukast. Tiltölulega litlir skálar, sem skipta skemmtilegum leiðum í hæfilega áfanga, stuðla því mjög að því að auka og bæta möguleika fólks á þess háttar ferðalögum, auk þess sem þeir auka öryggi, einkum á vetrum. Á milli Skagafjarðar og Austur-Húnavatnssýslu er mikið fjalllendi, þar sem skiptast á háir fjallgarðar og einstakir tindar, og djúpir, grösugir dalir. Sumir þessara dala, e.t.v. flestir, voru á öldum áður meira og minna byggðir, og má víða sjá þess merki. Mest af þessu svæði er þó orðið afréttarland. Nokkuð er svæðið snjóasælt, og hafa því íbúar beggja sýslna sótt mjög þangað í skíða- og vélsleðaferðir. Landslag er allt mjög skemmtilegt og fallegt, jafnt sumar sem vetur. Hug- myndin um að byggja dálítinn skála á þessum slóðum hafði því, eins og fyrr segir, lengi blundað í brjósti félagsfólks. Eftir allmargar skoðunarferðir, bæði að sumri til og e.t.v. ekki síður á vetrum, komust menn að þeirri niðurstöðu, að æskilegt væri að skálinn yrði framarlega á Skálarhnjúksdal. Voru menn þá jafnframt með í huga, að kannske yrðu burðir til þess í fram- tíðinni, að reisa annan skála allnokkru sunnar, máske nærri Litla-Vatnsskarði. Hafa menn engan veginn gleymt þeim draumi, og ekki ólíklegt, að Húnvetningar og Skagfirðingar eigi einhverskonar samstarf um það, eins og raunar margt fleira á hinum ýmsu sviðum. Landeigandi á þeim stað, sem menn litu aðallega til, er Skarðshreppur í Skagafirði, og veittu forráðamenn sveitar- félagsins góðfúslegt samþykki sitt fyrir þessum áformum. Þegar spurðist um þessar fyrirætlanir félagsins, kom fram mikill áhugi hjá Skátafélaginu Eilífsbúum um samstarf á þessu sviði, en meðal þeirra hafði hugmyndin um fjallaskála

x

Ferðir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.