Ferðir


Ferðir - 01.05.1988, Blaðsíða 28

Ferðir - 01.05.1988, Blaðsíða 28
28 FERÐIR hnjúksdal. Er dalbotn Tröllabotna nokkru hærri en Skálar- hnjúksdalsins, og verða fossar og flúðir í Tröllánni meðan hún er að jafna hæðarmuninn. Heitir þar m.a. Tröllafoss og er þeirrar náttúru, að ganga má bak við fossinn án þess að blotna tiltakanlega. Rétt austan fossins stendur skálinn, sem hér hefur verið gerður að umræðuefni. A Trölleyrunum, niður og austur frá skálanum er talið að býlið Trölleyrar hafi staðið. Svo til beint í austur frá skálanum sér í djúpt skarð eða dal norðan Hryggjafjallsins, sem þó lokast að nokkru af fram- hruni er nefnist Selhólar. Þar stóð lengi samnefndur bær og sér þar til tófta. Einkum eru fjárhúsatóftir greinilegar, en það stafar af því að beitarhús voru þarna löngu eftir að búsetu lauk. Austan Selhóla er Kálfárdalur. Opnast hann til austurs í Gönguskörðum, svo til beint á móti bænum að Veðramóti. Á dalnum stóð samnefndur bær, er hefur verið í eyði í um það bil þrjátíu ár. Standa þar bæjarhús enn, og eru sumarbú- staður afkomenda síðustu ábúenda. Um Kálfárdal og Selhóla er tíðust ferðaleið þeirra, er koma fótgangandi í Trölla úr Skagafirði. Um aðrar Ieiðir er þó að velja, eins og síðar verður vikið að. Skálarhnjúksdalur er gróðri vafinn og hið ágætasta afréttarland. Eins og fyrr segir, er mjög á reiki, hvar endimörk Skálarhnjúksdals eru, og hvar Laxárdalur tekur við, en þetta er í raun einn samfelldur dalur. Liggur hann nokkru vestar en í norður allt að Engjalæk. Dalurinn sveigir þá til norðausturs allt að Skíðastöðum, en breytir þá stefnu nær norðri. f norð- austur frá Trölla, handan dalsins, er hnjúkur einn er Skálar- hnjúkur heitir. Undir honum stóð bær er bar nafn hnjúksins. Um þessar mundir eru liðin eitt hundrað ár frá því síðast var búið á Skálarhnjúk. Sagnir eru um, að svo skjótt hafi verið brugðið búi þar, að skyrsár hafi orðið eftir í búri, og hafi smalamenn notað sér af innihaldi hans áratugum síðar. Hafi langt fram á þessa öld mátt sjá þar hvíta skellu, áður en yfir greri. Nokkru utar mun býlið Þórðarsel hafa staðið, og vestan ár eigi miklu utar en svonefnd Bakdalsá kemur austan úr samnefndu dalverpi stóðu Fannlaugarstaðir, þar sem síðastur bjó Sigurður Gíslason trölli. Sunnan Skálarhnjúks er skarð

x

Ferðir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.