Ferðir - 01.05.1988, Page 30
Skemmtiför
Ég var staddur í Amtsbókasafninu fyrir nokkru. Erindið var
að fletta blaðinu Degi frá 1936 og athuga hvað stæði þar um
50 ára afmæli K.E.A. en það var 19. júní 1936. Þá voru tæpir
tveir mánuðir liðnir frá stofnun F.F.A.
Ég varð meira en lítið undrandi þegar í þessu sama blaði
blasti við mér frásögn af fyrstu skemmtiferð, sem farin var á
vegum F.F.A. Greinina hafði skrifað Friðgeir H. Berg, en
hann var kjörinn einn af þremur varamönnum í stjórn á
stofnfundi Ferðafélags Akureyrar 8. apríl 1936.
Greinin var ljósrituð á staðnum og mér fannst tilvalið að
hún birtist í Ferðum 52 árum síðar.
Akureyri 22. mars 1988.
B)örn Þórðarson, Oddagötu 5.
Dagur 11. júní 1936.
Fyrst skemmtiför Akureyrardeildar Ferðafélags Islands var
farin á annan í hvítasunnu. Ekið var fram að Feyningshólum,
síðan gengið um hólana og skoðaðar fornar skógarleifar, en að
því loknu var gengið upp í Villingadal. Er þá komið að kalla
má í nýjan heim, því dalur þessi er víðari og fegurri en margir
aðrir smádalir. Á rennur eftir dalnum, og mun austari helm-
ingur hans í daglegu tali nefndur Torfufellsdalur, en sá vestari
Villingadalur.
Nokkuð fram á dalnum austan megin ár eru fornir grjót-