Ferðir - 01.05.1988, Side 31
FE RÐIR
31
Myndþessi er tekin í Ytri- Villingadal á svipuöum tíma ogferd sú var farin sem hér segir
frá. Ekki hefur þó tekist að ársetja hana með öryggi ne' þekkja alla sem sjást. Hœgra
megin með hakþoka og göngustaf er Steindór Steindórsson, fyrsti formaður FFA,
maðurinn með alskeggið er Hjálmar Þorláksson, bóndi í Ytri- Villingadal og í baksýn
vinstra megin líklega Jón Hjálmarsson sonur hans og siðar bóndi í Villingadal.
hólar, sem nefndir eru Draughólar; eiga Eyfirðingar og
Skagfirðingar að hafa barist þar á dalnum fyrr á tímum og
hafa munnmæli látið svo heita, að Skagfirðingarnir hafi allir
verið drepnir og séu hólarnir dysjar þeirra; er sú saga sögð í
þjóðsögum Odds Björnssonar. En svo að horfið sé frá fortíð-
inni og munnmælum hennar, þá er það að segja af ferða-
mönnum, að þeir skemmtu sér við veðurblíðu og náttúru-
fegurð á dalnum. Nokkrir þeirra, sem léttastir voru á fæti,
gengu upp á Torfufell, en það er hátt fjall austanmegin dals-
ins. Voru þeir nokkra klukkutíma í þeirri för, en hún gekk
þeim að óskum; höfðu þeir skyggni gott af fjallinu og blöstu
þeim við augum jöklarnir í suðri. Snjór lá á fjallinu, en
gangfæri þó ágætt. Þegar haldið var heim á leið úr dalnum,
var gengið niður með ánni, en hún fellur í svipmiklu gljúfra-