Ferðir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Ferðir - 01.05.1988, Qupperneq 40

Ferðir - 01.05.1988, Qupperneq 40
40 FERÐIR Um 20. maí voru mikil hlýindi og leysing á öræfunum. Vélsleðamenn komu þá i Laugafell og sáu, að leysingavatn hafði brotið sér leið inn í sundlaugina í Laugafelli og eyðilagt að mestu framvegginn í henni. Þeir gátu veitt vatninu fram hjá lauginni, svo ekki færi verr. Þegar heim kom tilkynntu þeir skálanefndinni hvernig komið var og buðust jafnframt til að hreinsa laugina síðar að vorinu. Skálanefndin þáði það góða boð. Seinna hreinsuðu þeir svo laugina vel upp og gerðu mögulegt að baða sig í henni, þótt hún gæti ekki lengur orðið full af vatni. 31. júlí fór Laugafellsnefnd eftirlitsferð að sæluhúsinu og lagfærði þar margt, eins og venja er í slíkum ferðum. 21.-26. ágúst var svo farin vinnuferð til að gera sundlaugina upp. Farið var af stað seint á föstudegi og unnið af kappi nokkuð fram yfir hádegi á sunnudag. Þá þurftu flestir að fara heim. Eftir varð Laugafellsnefndin ásamt bóndanum í Hólsgerði, sem hafði unnið þarna með öflugri dráttarvél á laugardag og sunnudag. Hann fór heim á mánudagsnótt. Það verður að viðurkennast, að lítið hefði orðið úr framkvæmdum þarna, ef hans hefði ekki notið við. Eftir urðu þá tveir nefndarmenn ásamt konu annars þeirra. Þau klesstu steypu innan á laugarveggina á mánudag og þriðjudag og hleyptu þá vatni í laugina, sem sást hvergi leka. A miðvikudag var verkað til og búist til heimferðar. Klukkan hálf tólf um kvöldið voru allir komnir heim, þreyttir en ánægðir með árangursríka ferð. Sundlaugin er lítið eitt stærri en áður. Hún var færð neðar í lækjarfar- veginn, svo yfirborð hennar stendur ekki eins hátt og fyrr. Það var gert til að fá allt heita vatnið inn í hana, svo nú ætti hún að haldast heitari en áður. Hún er einnig þannig gerð nú að leysingavatn á ekki að geta grandað henni, þótt það hlaupi inn í hana. Haustferðin var farin 11.-12. september. Þá var steypt ofan á laugar- veggina og tröppurnar fyrir útidyrum hlaðnar upp og hellulagt að nýju framan við þær. Þá var og gengið frá öllu eins og venja er að hausti. Rok og rigning tafði mjög fyrir við þessi verk. Þeim var þó lokið og allir komust heim klukkan hálf sjö seinna kvöldið. Á næsta ári verður óhjákvæmilegt að laga sæluhúsið talsvert til að utan og mála bæði veggi og þak, og svo er þarna hið eilífa verkefni að reyna að bæta gróðurskemmdir, sem fara síst minnkandi með sívaxandi umferð. Fyrir hönd Laugafellsnefndar: Angantýr H. Hjálmarsson.

x

Ferðir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.