Bændablaðið - 21.09.2023, Blaðsíða 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. september 2023
FRÉTTIR
Landbúnaðarháskólinn:
Vex fiskur um hrygg í rannsóknum,
tilraunum og erlendu samstarfi
– Þróun kynbótamats fyrir mótstöðu gegn riðusmiti meðal verkefna
Nemendur Landbúnaðarháskóla
Íslands vinna fjölbreyttar
rannsóknir og tilraunaverkefni,
allt frá riðukynbótamati til
skipulagsfræða.
Um 390 nemendur eru í
reglubundnu námi við háskólann á
haustönn, þar af 174 í búvísindum
og 588 allt í allt í einingabæru námi.
Að sögn Ragnheiðar I.
Þórarinsdóttur, rektors LbhÍ, hefur
skólinn verið að eflast á öllum
fagsviðum á undanförnum misserum
og rannsóknarverkefnum farið
fjölgandi samhliða aukinni áherslu
á alþjóðlegt samstarf. „Nýverið
var send umsókn í evrópska
LIFE sjóðinn í samstarfi við
Landgræðsluna, Umhverfisstofnun,
Fuglavernd, Náttúrufræðistofnun,
Hafrannsóknastofnun, Samtök
íslenskra sveitarfélaga og Royal
Society for the Protection of Bird
í Bretlandi,“ segir hún. „Verkefnið
snýr að endurheimt vistkerfa, sem
er vel við hæfi þar sem LbhÍ býður
í fyrsta sinn alþjóðlegt meistaranám
á því sviði í haust.“
Riðukynbótamat
Fjölmörg rannsókna- og
tilraunaverkefni eru í gangi hjá LbhÍ,
að sögn Ragnheiðar. Eitt þeirra lýtur
að riðukynbótamati og er unnið í
samstarfi við RML og styrkt af
Þróunarsjóði sauðfjárræktarinnar.
Það snýst um að prófa aðferð til að
spá fyrir um arfgerð príon-gensins
í kindum sem ekki hafa verið
arfgerðargreindar byggt á ættskrá,
en þekkt er að arfgerð príon-gensins
hefur mikil áhrif á líkur á riðuveiki.
Jafnframt er gerð safngreining
á útgefnum niðurstöðum um
hlutfallslega riðuáhættu hjá
kindum með mismunandi arfgerð
príon-gensins. Með því að taka
saman arfgerð eða spá um arfgerð
annars vegar og niðurstöður
safngreiningarinnar hins vegar er
stefnan að þróa kynbótamat fyrir
mótstöðu gegn riðusmiti sem
getur orðið mikilvægt hjálpartæki
við að velja fyrir fé sem er minna
móttækilegt fyrir riðu án þess að
þurfa að arfgerðargreina alla gripi.
Ræktun fyrir hæfilegri
fitu á lambakjöti
Verkefni um ræktun fyrir hæfilegri
fitu á lambakjöti er í startholunum
hjá LbhÍ, styrkt af Matvælasjóði
og unnið í samstarfi við
Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins.
Undanfarna áratugi hefur eitt af
kynbótamarkmiðum í sauðfjárrækt
verið að draga úr fitusöfnun lamba.
Nokkur umræða hefur verið um
hvort nógu langt hafi verið gengið í
þeim efnum og rétt að stefna frekar
að einhverju millistigi, sem teldist
þá hæfileg fita. Jafnframt er ljóst að
fitusöfnun lamba hefur sterk tengsl
við þunga lamba og hvaða þunga
lömb ná við slátrun er mjög misjafnt
á milli bæja og héraða.
Helstu markmið verkefnisins eru
1) að finna það fitustig sem gefur
mest verðmæti lambaskrokka og
hvernig best er að vinna að því að
ná því stigi með kynbótum. 2) Að
finna samsetningu heildareinkunnar
fyrir fallþunga og kjötmat (gerð
og fitu) sem stuðlar að mestri
verðmætaaukningu fyrir greinina.
3) Að skoða samspil þunga
lamba og erfðaþáttarins fyrir
kjötmatseiginleika með slembi-
aðhvarfs líkönum.
Jarðræktarrannsóknir
Umsvif jarðræktarrannsókna við
LbhÍ hafa aukist að undanförnu. Til
að mynda eru um 1.500 tilraunareitir
með hafra í ár. Ein stór tilraun með
450 mismunandi arfgerðir er til
rannsóknar hér og í Noregi. Verkefnið
er undanfari stærra Evrópuverkefnis
sem er í bígerð. Auk þess var í vor
sáð út 200 arfgerðum af norrænum
höfrum og þar af 180 úr norræna
genbankanum. Frumniðurstöður
gefa til kynna að genbankinn hefur
að geyma spennandi efnivið fyrir
íslenskar aðstæður sem getur reynst
verðmæt erfðauppspretta fyrir
mögulegar kynbætur hafra á Íslandi.
Til viðbótar eru bygg-
tilraunareitir, en byggrannsóknir eru
einhverjir mikilvægustu hagsmunir
íslenskrar kornræktar. Nú hafa
byggkynbætur hafist að nýju eftir
hlé og vaxa hratt að umfangi með
tilraunum á nýjum kynbótalínum
úr íslenska byggstofninum. Vonir
standa til að hafist verði handa við
hveitikynbætur strax á næsta ári.
Kornsýni úr öllum tilraunareitum
eru tekin til frekari rannsókna á
tilraunastofum til þess að meta gæði
kornsins sem vex í tilraunum. Aðstaða
til þessarar úrvinnslu og varðveislu
erfðaauðlinda er í raun ekki til staðar
og því er talið mikilvægt að hefjast
strax handa við byggingu nýrrar
jarðræktarmiðstöðvar í staðinn fyrir
þá sem var áður að Korpu.
Skordýr sem prótein
LbhÍ hefur komið upp aðstöðu fyrir
skordýrarækt og er áhersla á ræktun
mjölorma og hermannaflugu til
framleiðslu á hágæðaafurðum. Hluti
af verkefninu er að nýta matarafganga
sem fóður fyrir skordýrin og fylgjast
með þróun reglugerða um skordýr
til manneldis og sem fóður fyrir
dýr. Þá er einnig kannaður áhugi
almennings annars vegar og bænda
hins vegar á nýtingu skordýraafurða.
Áhugi á skordýraeldi í Evrópu hefur
vaxið hratt, nokkur sprotafyrirtæki
hafa verið að ryðja sér til rúms
og nokkrar afurðir komnar á
markað. Næringargildi mjölorma
og lirfu hermannaflugunnar er
gott og sagt geta komið í stað
fiskimjöls og sojabaunamjöls.
Þá þykir skordýraræktun til
próteinframleiðslu áhugaverð
vegna lítilla umhverfisáhrifa
framleiðslunnar.
Áhrif beitar á vistkerfi
Rannsóknir um áhrif beitar á
vistkerfin eru ansi mikilvægt
viðfangsefni, að sögn Ragnheiðar.
Eitt tilraunaverkefnið er að skoða
hvaða áhrif mismunandi grasbítar
hafa á vistkerfið á Íslandi. Girðingar
af mismunandi gerð voru settar upp
sumarið 2022 til að greina á milli
áhrifa stórra og meðalstórra grasbíta.
Sumar girðingar útiloka allar
tegundir grasbíta, og sumar útiloka
stærri grasbíta eins og hreindýr
og sauðfé. Verkefnið er staðsett á
Vesturöræfum af því að þar er að finna
á sama svæði hreindýr, heiðagæs,
rjúpu og sauðfé. Niðurstöðurnar
munu veita upplýsingar um
hvernig best megi stjórna beit og
vernda beitilönd gegn ofnýtingu
gróðurs. Rannsóknasvæðið
er einnig partur af alþjóðlegu
tengslaneti Tundra Exclosure
Network og vegna þess verður
hægt að bera saman niðurstöður
frá öðrum rannsóknasvæðum á
norðurskautssvæðinu.
Annað tilraunaverkefni hjá
LbhÍ rannsakar áhrif sauðfjárbeitar
á vistkerfin í mishnignuðum
túndrubúsvæðum á tveimur svæðum,
innan og utan eldvirka svæðisins.
Girðingar sem útiloka sauðfé voru
settar upp árið 2016 og eru þau
svæði borin saman við svæði með
sauðfé. Gróðurfarsbreytingar eftir
að sauðfé var útilokað gerast mjög
hægt sem bendir til þess að vistkerfin
geti ekki brugðist við og grípa þurfi
til virkra aðgerða til að endurheimta
þessi vistkerfi.
Rannsóknir í skipulagsfræði
Í skipulagsfræðinni segir Ragnheiður
unnið að verkefninu Walkmore
í samstarfi við TØI og NMBU í
Noregi en verkefnið fjallar um
hvernig bætt skipulag og hönnun geti
stuðlað að gönguvænna umhverfi
og að fleiri fari gangandi vegna
daglegra erindagjörða. Það tekur
til tilviksrannsókna í þrem bæjum í
Noregi sem eru á stærð við Akureyri.
Í bæjunum eru aðstæður að mörgu
leyti svipaðar okkar, vegalengdir
eru almennt stuttar þó bíllinn sé
algengasti ferðamátinn.
Þetta eru aðeins örfá dæmi um
fjöldann allan af forvitnilegum
rannsókna- og tilraunaverkefnum
háskólans um þessar mundir.
LbhÍ tók til starfa árið
2005 og er reistur á grunni
Rannsóknastofnunar land-
búnaðarins, Landbúnaðarháskólans
á Hvanneyri og Garðyrkjuskóla
ríkisins í Ölfusi. Sérstaða skólans
er náttúra Íslands, nýting, viðhald
og verndun hennar og viðfangsefnin
landið og það sem á því lifir.
Steinunn Ásmundsdóttir
steinunn@bondi.is
Ragnheiður I. Þórarinsdóttir.