Bændablaðið - 21.09.2023, Blaðsíða 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. september 2023
LÍF&STARF
„Það var konan sem stakk upp
á þessu og svo tók það ekki nema
um fjóra mánuði að flytja hingað
eftir að við vorum búin að taka
ákvörðun,“ segir Ævar spurður
um aðdragandann að því að þau
gerast bændur á Skeiðunum. Hann
er einn af áhrifavöldunum í 4.500
manna samfélagi fólks sem kallast
Carnivore Tribe-kjötætur og er heiti
á Facebook-síðu sem Ævar stofnaði
fyrir sex árum. Sjálfur hefur hann
lifað samkvæmt þessum lífsstíl í
um sjö ár.
Neytir eingöngu dýraafurða
Á Facebook-síðunni skiptist fólk á
skoðunum og deilir hugðarefnum
sínum, en síðan er hugsuð fyrir
fólk sem hefur áhuga á að neyta
kjöts og/eða annarra dýraafurða
eingöngu. Þar með sneiða hjá
plöntuafurðum hvort sem það er
gert af heilsufarsástæðum eða
fyrir forvitnissakir – til lengri eða
skemmri tíma. Ævar leggur sjálfur
helst eingöngu feitt nautakjöt sér
til munns – vegna þess að honum
líður einfaldlega best af því og hann
verður lengur saddur af því en til
dæmis kjúklingi eða fiski. Spurður
um hvort ákvörðunin um að gerast
nautgripabóndi hafi verið öðrum
þræði til að geta á hagkvæman hátt
orðið sér úti um gæða nautakjöt á
góðu verði, segir hann að það hafi
vissulega spilað inn í.
„Það er í það minnsta ljóst að það
fara um tveir nautsskrokkar ofan í
mig á hverju ári og þá nýt ég góðs
af því að framleiða kjötið ofan í
mig sjálfur.“
Dýravelferð og umhverfisvernd
Þá má ímynda sér að Ævar sé
í lykilstöðu til að markaðssetja
afurðirnar í gegnum íslenska
carnivore-samfélagið, en hann segist
lítinn ávinning hafa haft af því enn
þá. „Ég held að ég hafi enn ekki átt
í beinum viðskiptum í gegnum það
samfélag, ætli það vefjist ekki fyrir
fólki að þurfa að kaupa að lágmarki
fjórðung skrokks.
En ég kvarta ekki yfir markaðs-
stöðunni því ég sel mínar afurðir
löngu áður en kemur til slátrunar.
Ætli það sé ekki hægt að segja að
mínir kúnnar séu aðallega fólk
sem vill kjötvöru þar sem vel hefur
verið hugsað um skepnurnar út
frá dýravelferðarsjónarmiði og á
umhverfisvænan hátt,“ segir hann.
Skítkast frá
umhverfisverndarsinnum
„Þegar ég byrjaði að láta á mér
bera og segja frá þessum lífsstíl
mínum fyrir um sex árum þá fékk
ég yfir mig alls konar skítkast –
ekki síst fékk ég harða gagnrýni frá
umhverfisverndarsinnum sem fannst
ótækt að borða svo mikið nautakjöt
því það stuðlaði að svo mikilli
losun gróðurhúsalofttegunda. Þess
vegna mætti segja að það að gerast
nautgripabóndi hafi verið einhvers
konar viðbragð hjá mér við þessum
ásökunum.
Ég fer að leita fyrir mér á
netinu um hvað sé raunverulega
satt varðandi búfjárhald og losun
á gróðurhúsalofttegundum og það
kemur fljótlega í ljós að það sem
kemur yfirleitt upp á yfirborð
umræðunnar eru stefnur sem hafa
verið mótaðar, frekar en vísindi sjálf.
Þá er ég ekki að segja að stefnur
byggi ekki á vísindum heldur það
að ekki er endilega verið að styðjast
við bestu vísindin til að móta stefnur.
Frekar að þá er notað það skásta sem
styður viðkomandi stefnu sem búið
er að móta,“ segir Ævar spurður
um almenningsálitið sem kannski
er ekki alltaf hliðhollt miklu kjötáti.
„Það er að mörgu að hyggja í
þessum útreikningum líka varðandi
losun. Módelin sem lögð eru til
grundvallar eru oft mjög ónákvæm
og með mikil skekkjumörk. Það hefur
líka truflað mig í þessari umræðu að
landnýtingin er oft ekki tekin inn
í myndina, sjálf kolefnisbindingin
sem verður á ræktuðu landi – heldur
bara sjálfur útblástur dýranna. Svo
eru hagsmunaaðilar víða sterkir
áhrifavaldar í stefnumótun og
stjórnun umræðu.“
Árangur af beitarstjórnuninni
„Ég sé mikinn árangur strax af minni
beitarstjórnun, það spretta nýjar
plöntur í landinu og landgæðin hjá
mér batna þó það gerist ekki hratt.
Í jarðveginum er mikið magn fræja
sem vakna til lífsins við ágang
nautgripanna – og svo kemur
náttúrulegur sjálfbær áburður úr
þeim,“ segir Ævar þegar hann er
spurður um hvort einhver árangur
sé sjáanlegur á öðru ári.
„Ég verð nú svo sem ekkert mikið
var við að bændur hér í nágrenninu
séu að spá mikið í hvað við erum
að gera. En reyndar komu nokkrir
til mín á réttardeginum um daginn
og voru þá mjög uppteknir af því
hvað þetta hlyti að vera tímafrekt,
þessi aðferð sem við notum í
skiptibeitinni. Og þeir spurðu
hvernig ég nennti þessu hreinlega.
Staðreyndin er reyndar sú að þetta
er mjög lítil fyrirhöfn, við þurfum
reyndar að færa strengina til tvisvar
sinnum á sólarhring, til að hleypa
gripunum inn á nýtt beitiland, en
það tekur í mesta lagi 45 mínútur í
hvert skipti.
Núna erum við með tvö beitarhólf
fyrir annars vegar svínin og hins
vegar nautgripi. Við vorum líka með
kjúklinga í svona fyrirkomulagi en
það er búið að slátra þeim hópi. Ég er
með 24 nautgripi í tveimur hollum,
sem þýðir að 11 fara í slátrun núna
í haust en hinir 13 fara á næsta ári.
Ég byrjaði hins vegar með sex naut
í eldi, á meðan ég var að prófa mig
áfram. Hugmyndin er að slátra
alltaf 12 á ári sem landið mitt ber,
en það er fjórtán og hálfur hektari.
Við sendum frá okkur sex naut til
slátrunar í fyrra og tíu grísi. Núna
erum við með 17 grísi.“
Langur beitartími
Ævar segir að þegar ekki er lengur
beit að hafa, séu nautin tekin á
heimatún og þeim gefið hey, sem
hann kaupi af nágrönnum sínum á
Hlemmiskeiði – sem vill svo vel til
að eru kúabændur.
„Þessi beitarstjórnun sem ég nota,
kallar bandaríski ráðgjafinn minn
„adaptive grazing“, sem þýðir að
ég met það bara hverju sinni hversu
mikið pláss ég gef þeim í það skiptið.
Get þrengt að þeim ef ég vil láta þá
éta meira af því sem er á svæðinu,
eða stækkað ef ég vil að þar sé étið
minna. Ef svæðið er lítið éta þeir að
jafnaði lélegra fóður og meira tréni
en ef það er stærra geta þeir frekar
valið það sem þeim þykir betra og
þá fá þeir jafnan kröftugra fóður.
Núna snýst þetta dálítið um að
passa upp á að þeir éti ekki alveg
niður í rót og það sé skilin eftir hlíf
fyrir veturinn.
Beitartíminn hjá mér í fyrra var
mjög langur; alveg frá 26. apríl
til 7. nóvember. Gaf þeim hey í
meðgjöf fyrstu tvær vikurnar. En
þegar ég byrjaði var mér sagt að
það væri útilokað að vera með þá
á beit meira en þrjá mánuði. Núna
eru þeir búnir að vera á beit frá
18. maí og svo framarlega sem
ekki fari hér allt á kaf í snjó eða
20 stiga frost skelli á, þá á ég beit
fyrir þá fram að jólum. Landgæðin
eru enn frekar í lakara lagi þó þau
hafi skánað. Það er farið að kólna
og allt gras sem þeir eiga eftir að
bíta er mest allt skriðið þannig að
það er minna næringarinnihald –
þannig að núna er ég byrjaður á því
að gefa þeim bjórhrat sem ég fæ úr
bruggverksmiðju í Vestmannaeyjum.
Þeir fá um 7–800 grömm á hvern
haus á dag – og það bætir líka
meltinguna hjá þeim.“
Beint frá býli
Ævar selur allar sínar afurðir beint
frá býli, en reyndar í gegnum
samfélagsmiðla. „Ég læt vinna
allt mitt kjöt hjá Villt og alið á
Hellu. Síðan er það sent beint til
viðskiptavina og raunar koma
afurðirnar ekki til okkar á bæinn
eftir að gripunum hefur verið slátrað.
Þannig við erum ekki með neinn
lager hér, enda komast færri að en
vilja í vörurnar okkar. Við erum fyrir
löngu búin að selja til dæmis svín og
nautgripi sem fara í slátrun núna á
næstu vikum.“
Hann er sáttur við afurðaverðið,
segist fá að meðaltali 1.200 krónur
á kílóið fyrir skrokkinn. „Það er
bara hæsta afurðastöðvaverð. Ég
er með þannig viðskiptavini sem
vilja þessa vöru í raun alveg sama
hvað hún kostar. Ég held að enginn
hafi spurt mig að verði þegar ég
seldi síðast. Þeir kjósa þá frekar
að kaupa af bónda sem hugar
sérstaklega að gæðum, dýravelferð
og umhverfismálum.
Svínaeldið er ekki eins hagkvæmt
og nautaeldið, þau þurfa um 30–40
prósent meira fóður og verðið fyrir
svínakjötið hefur ekki verið eins
hátt. En líklega sel ég það næst bara
á sama verði, enda eru þessar vörur í
alveg sérstökum gæðaflokki.“
Hagkvæmur búrekstur
með litlum tilkostnaði
„Þannig að ég er bara mjög sáttur
við mitt, ég hef búið mér til nokkuð
hagkvæman búrekstur með litlum
tilkostnaði.
Ég er að fá nautskrokka eftir 20
mánaða eldi sem eru með svona
200 til 220 kílóa fallþunga. Sem er
bara mjög gott í þessu kerfi mínu.
Ég vil ekki hafa þá of þunga því þá
fara þeir bara illa með landið þegar
það er viðkvæmt. Þegar þeir fara
í sláturhúsið þá eru þeir búnir að
éta minna en fjórar rúllur af heyi
hver. Þannig að kostnaður minn við
eldið er auðvitað mjólkurtímabilið
sem eru þrír mánuðir á kálfafóðri
og ein rúlla ofan í hollið á þessum
mánuðum. Svo fara minna en
fjórar rúllur ofan í þá þennan heila
vetur. Annars eru þeir bara á beit
Nautakjötsæta gerist nautgripabóndi
– Stundar jarðvegsbætandi landbúnað með markvissri beitarstýringu í beitarhólfum
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is
Ævar Austfjörð með nautgripina sína. Myndir / smh
HONDA AFLVÉLAR FÁST
Í FAGVERSLUN BYKO
GÆÐI
Í YFIR
40 ÁR
www.byko.is/honda | honda@byko.is | 821-4152
Ævar Austfjörð og kona hans, Ása Sif Tryggvadóttir, hófu búskap á
Hlemmiskeiði 1 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi fyrir um þremur árum.
Þau stunda þar nauta-, svína- og alifugleldi undir berum himni og stýra
beitinni með hólfum sem römmuð eru af með rafmagnsstrengjum – og er
aðferðin hugsuð sem umhverfisvæn leið til jarðvegsbóta fyrir landið. Áður
en þau settust að á Hlemmiskeiði höfðu þau enga reynslu af sveitabúskap.