Bændablaðið - 21.09.2023, Blaðsíða 21

Bændablaðið - 21.09.2023, Blaðsíða 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 21. september 2023 drapst svo mikið,“ segir Sigurborg. Á sumum stöðum hafi í kringum 20 prósent fjárins fallið ár hvert vegna riðu. Þá hafi verið farið í átak, sem hafi tekist gríðarlega vel og nú sé landið að mestu laust við sjúkdóminn, fyrir utan ákveðin svæði í Skagafirði og í Húnavatnssýslum. Árið 1986 var það fyrirkomulag sett á laggirnar sem við þekkjum í dag, sem felst í að skera niður riðuhjarðir á einstaka bæjum, eða skera niður fé í heilu varnarhólfunum þar sem sóttin er landlæg. Þegar ráðist sé í niðurskurð á riðubæ fylgi því viðamiklar hreinsanir og förgun efna, auk þess sem bænum er haldið fjárlausum. Fyrst voru það þrjú ár, en nú sé miðað við tvö ár. Undanfarin fimmtán ár sé ekki hægt að tala um riðufaraldur, heldur stök tilvik. Það sé þó ekki hægt að fullyrða að hún komi ekki upp aftur á öðrum svæðum vegna þess hversu lengi smitefnið hefur verið virkt í umhverfinu. Eftir því sem tímanum líði minnki líkur á enduruppkomu. Varnarhólf aðallega vegna riðu Eins og áður segir hefur mæðiveiki verið útrýmt og er búið að þróa bóluefni gegn garnaveiki. Því má segja að varnarhólfin snúi helst að vörnum gegn riðu í dag. Sigurborg segir hólfin hafa í för með sér takmarkanir sem snúi að sauðfé og geitum, en einnig nautgripum þar sem þeir geti borið með sér garnaveiki. Engar takmarkanir eru á öðru dýrahaldi vegna varnarhólfanna. Þegar upp komi riðuveiki á bæ í einhverju tilteknu hólfi, þá verði það skilgreint sem sýkt svæði, sem í daglegu tali sé kallað riðuhólf. Sigurborg segir þessa skilgreiningu gilda í tuttugu ár. Á þeim tíma séu mjög miklar takmarkanir á öllum bæjum innan hólfsins, eins og bann við flutningi fjár milli bæja. Þar með sé ekki hægt að halda hrútasýningar og selja líflömb. Takmarkanir eru á flutningi á hlutum úr varnarhólfinu sem geta borið með sér smit, svo sem heyi, torfi og landbúnaðartækjum. Vilji einhver flytja landbúnaðartæki úr sýktu hólfi þurfi viðkomandi að þrífa og sótthreinsa búnaðinn og fá vottorð því til staðfestingar. Geri fólk það ekki, þá segir Sigurborg að einu stjórnvaldsaðgerðirnar sem MAST geti gripið til séu að stöðva flutninginn og senda tækið í þrif og eftir atvikum að kæra til lögreglu. Hún nefnir nýlegt dæmi þar sem Matvælastofnun kærði flutning á óþveginni dráttarvél úr Miðfjarðarhólfi, sem nú sé skilgreint sem riðuhólf, í Borgarfjörð. MAST líti það mjög alvarlegum augum, enda sé Borgarfjörður riðulaust svæði. Hólfum fækkað jafnt og þétt Þegar varnarhólfin voru sem flest segir Sigurborg að þau hafi verið nálægt 40, en nú séu þau 25. Ef sama sjúkdómastaða er í tveimur aðliggjandi varnarhólfum segir Sigurborg að þá sé skoðað hvort ástæða sé til að hafa þau aðskilin. Þeim hafi fækkað jafnt og þétt og nú síðast var Húna- og Skagahólf sett í eitt hólf árið 2018, þegar varnarlína við Blöndu var lögð niður. Það hafi verið gert því Blanda var ekki nægur farartálmi fyrir sauðfé eftir að áin var virkjuð og sjúkdómastaða beggja hólfa var sú sama. Matvælastofnun gerir samninga við verktaka sem sjá um að halda varnarlínunum við. Sigurborg segir það gert samkvæmt fjárveitingu sem matvælaráðuneytið fær til ráðstöfunar, sem felur svo MAST að útfæra viðhaldið. Þetta séu takmarkaðir fjármunir, en undanfarin ár hafi nálægt 50 milljónum verið varið til viðhalds, þó Sigurborg geri ráð fyrir að aukið fjármagn verði sett í málaflokkinn í ár vegna nýlegra riðusmita. „Ef við ætlum að halda öllum varnargirðingum fjárheldum þá kostar það hundruð milljóna og þeir peningar eru ekki til,“ segir Sigurborg. Matvælastofnun þurfi því að forgangsraða eftir því hvar sé allra mikilvægast að halda fjárheldu. Hún viðurkennir að það sé því óraunhæft að koma alfarið í veg fyrir samgang fjár milli varnarhólfa eins og staðan er núna og svo hafi verið um áratugi. Takmörkunarsvæði erlendis Sigurborg veit ekki til þess að annars staðar sé landi skipt í sambærileg varnarhólf og hérlendis. Almenn viðbrögð í löndunum í kringum okkur séu að setja upp takmörkunarsvæði þegar sjúkdómar komi upp. Þá sé takmörkunarsvæðið ákveðinn radíus frá upptökunum, mismunandi eftir alvarleika hverju sinni. Aðspurð segir Sigurborg mögulegt að vera með einhvers konar sóttkví á jörðum þar sem upp kemur riða, þó ekki sé víst að það sé raunhæft við íslenskar aðstæður og hvaðan fjármagnið til þess skuli koma. Þetta tíðkist þegar upp komi riða í hjörðum í Evrópu og er misjafnt hvort og hversu mikið fé er skorið niður. Þar séu búskaparhættir þó öðruvísi, enda séu hjarðirnar hvort eð er meira og minna einangraðar. Hérlendis blandist hjarðir þegar fé er laust á fjalli, í réttum og fjárragi á haustin. Fleiri verkfæri í verkfærakistunni „Stóra spurningin er hvort það sé réttlætanlegt að skipta landinu upp í varnarhólf vegna riðuveiki,“ segir Sigurborg, en hingað til hafi svo verið talið. „Í fyrsta lagi eru þessar varnargirðingar til að hefta fé, af því smit fer alltaf fyrst og fremst frá dýri til dýrs, alveg sama hvaða veiki það er. Síðan getur smit borist með öðrum hætti, og það getur riðuveiki gert líka, þannig að varnargirðingin sem slík tryggir ekki að sjúkdómar berist ekki yfir.“ Sigurborg segist ekki geta tjáð sig mikið um það hvaða breytingar séu væntanlegar á fyrirkomulagi sauðfjárveikivarna í ljósi þess að fundist hafi arfgerðir sem geri sauðfé ónæmt fyrir riðu og miklar vonir eru uppi um að hægt verði að rækta upp riðuónæman sauðfjárstofn. Yfirdýralæknir óskaði eftir tillögum í þrennu lagi frá fulltrúum sauðfjárbænda. Fyrst um útfærslu á uppbyggingu hjarðar eftir riðuniðurskurð. Í öðru lagi útfærslu á aðgerðum þegar riðuveiki greinist. Í þriðja lagi hvernig skuli standa að ræktun gegn riðuveiki. Nú er sérfræðingahópur skipaður af matvælaráðherra að rýna tillögurnar og er von á niðurstöðum 1. nóvember næstkomandi. „Ein af stóru spurningunum sem ég vildi fá svar við var að leggja mat á gildi núverandi fyrirkomulags varnargirðinga með tilliti til hafta á útbreiðslu riðusmits. Hvaða gildi hefur þetta í dag, því það hafði mikið gildi þegar þú hafðir engin önnur tól. Það eina sem við höfðum var að reyna að uppræta smitefni með því að skera niður. Sem betur fer erum við komin með fleiri verkfæri í verkfærakistuna til að berjast gegn riðuveiki,“ segir Sigurborg. Í umræðunni um riðu gleymist þó oft að þetta er sársaukafullur taugasjúkdómur og að rétt sé að spyrja hvort réttnæmt sé að láta riðunæmt fé vísvitandi lifa í riðusmituðu umhverfi. Það sé í höndum ráðuneytis að taka þá ákvörðun hvort fyrirkomulag varnarhólfa verði annað. Í lögum sé gert ráð fyrir varnarhólfum og það sé ráðherra sem geti fellt niður ákveðnar varnarlínur að höfðu samráði við Matvælastofnun. Af fenginni reynslu gerir Sigurborg ráð fyrir að breytingar á kerfinu muni taka langan tíma. Gangi ræktun gegn riðu eftir aukist alltaf vægi þess að kindur séu ónæmar fyrir riðusmitinu. Þá verði ekki eins mikil þörf á að hefta útbreiðslu smitefnisins. Hvað garnaveiki varðar, þá skipti varnarhólfin minna máli í því samhengi, í ljósi þess að hægt sé að bólusetja gegn henni. Varnarhólfin eru 25 í dag, en voru nálægt 40 þegar mest var. Mynd / MAST Víða um land má sjá áberandi skilti þar sem varnarlínur ná yfir þjóðvegi. Yfir þær línur má ekki flytja sauðfé og nautgripi, nema með sérstöku leyfi. Það sama á við um hey, torf, tað og landbúnaðartæki. Mynd / Úr safni Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir. Mynd / MAST 20% afsláttur af öllum innréttingum út október. 562–1500 Friform.is Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. Virka daga 10-17 Laugardaga 11-15Hjar ta heimilisins Við hönnum innréttingar að þínum þörfum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.