Bændablaðið - 21.09.2023, Blaðsíða 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 21. september 2023
Til sölu er jörðin Fosshóll, 531 Hvammstangi, Húnaþingi vestra,
ásamt öllum fasteignum.
• Bústofn ca 50 ær og vélakostur getur fylgt með í kaupunum.
• Jörðin er um 1000 ha að stærð, þar af um 20,9 ha ræktað land og
23 ha skógrækt.
• Greiðslumark er 376 ærgildi.
• Veiðiréttur í Miðfjarðará sem gefur um 2,3 milljónir í tekjur á ári.
• Söluverð eignarinnar 119.9 milljónir.
Fosshóll
531 Hvammstangi, Húnaþingi vestra
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við
Eirík Svan Sigfússon sími 8623377 hjá fasteignasölunni Ás,
eða eiganda Fosshóls, Þorstein Helgason í síma 8950582 / 4512649.
Skógarbændur munu halda málþing að Hótel Varmalandi í Borgarfirði
laugardaginn 14. október nk. - lokaskráning er 1. október.
Umfjöllunarefni þingsins eru matur úr skóginum og umhirða í skógum.
Málþingið er haldið af Félögum skógarbænda og Búgreinadeild skógarbænda hjá BÍ
Málþing skógarbænda er angi af Degi landbúnaðarins - BÍ.
Frekari upplýsingar eru á www.skogarbondi.is
Hún vilji ekki alhæfa yfir alla,
en þetta gangi í þeirra tilfelli.
Þar að auki fylgi þessu afar
jákvæð samskipti við ánægða
kúnna. ,,Það hefur komið fyrir oftar
en einu sinni að þegar við komum
með kjöt heim til fólks, þá bíður
okkar veislumatur og kaffi. Fólk
hefur komið og gist hjá okkur og
við hjá þeim. Þetta er vinskapur
sem myndast og er verðmætt að fá
það,“ segir Ragnheiður.
Vilja ekki gefa
sláturhúsunum afurðirnar
Bændurnir í Birkihlíð hafa sent hluta
fjárins í sláturhús síðastliðin haust
og segir Ragnheiður þau taka alla
skrokkana heim og verka kjötið
heima. Sú ákvörðun var tekin þegar
afurðastöðvaverðið féll árið 2017,
því þá vildu þau ekki „gefa“ frá sér
kjötið. Frekar vildu þau borða kjötið
sjálf ef þau næðu ekki að selja allar
afurðirnar.
Í Birkihlíð er blandað bú með
mjólkurframleiðslu og sauðfé. Þar
af eru rétt tæplega 200 fullorðnar
kindur og sláturlömbin á hverju ári
eru rúmlega 300. Ragnheiður segir
söluna vera orðna það mikla að þau
eigi erfitt með að bæta við sig fleiri
stórum kúnnum. Þegar sláturtíð var
að byrja núna í haust var lagerinn
frá fyrri sláturtíð nánast tómur. /ÁL
Kjötvinnslan í Birkihlíð gengur vel. Bændurnir ná að auka virði afurðanna
og fylgja þeim frá upphafi til enda. Mynd frá upphafi sláturtíðar 2021.