Bændablaðið - 21.09.2023, Blaðsíða 41

Bændablaðið - 21.09.2023, Blaðsíða 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 21. september 2023 Vinnupallar ehf. – Vagnhöfða 7 – s. 787 9933 – vpallar@vpallar.is – www.vpallar.is VARAÐU ÞIG Á HAUSTLÆGÐUNUM! Við sérhæfum okkur í fa l lvarnar- og öryggisbúnaði . Veldu öruggar lausnir á frábæru verði . Við Norðurlandsveg - 560 VarmahlíðSími: 453 8888 - Opið virka daga kl. 9-17 Vörurnar frá Interclamp eru fáanlegar í vefverslun Sendum um land allt! Interclamp er alhliða framleiðsla á röratengjum gerðum úr galvaniseruðu pottjárni til ótölulegra nota. Hönnuð til þess að geta reist fljótlega og auðveldlega traust mannvirki. Fimm mismunandi stærðir röra passa í Interclamp tengin. velaval.is alltaf opin! Miðfjörður: Framleiðsla skógar- plantna í bígerð Verkefnið Skógarplöntur hefur verið í undirbúningi síðustu misseri en til stendur að reisa nýja gróðrarstöð fyrir framleiðslu á skógarplöntum að Laugarbakka í Miðfirði. Að verkefninu standa meðal annars Kaupfélag Vestur-Húnvetninga, SSNV og Hafberg Þórisson, eigandi að gróðurstöðinni Lambhaga. Miðar verkefnið að því að framleiða trjáplöntur til gróðursetningar og að framleiðslan verði um 15 milljónir plantna árlega. Eins og staðan er núna er landsvæði tiltækt, hönnunarvinna komin af stað og áætlað er að stöðin verði búin nýjustu tækni sem tryggi jafnari framleiðslu og minni afföll. Kemur fram á vefsíðu Kaupfélags VH að gert sé ráð fyrir að stöðin muni byggja á mikilli sjálfvirkni sem er þáttur í því að allar plöntur fái sama magn af vatni, næringarefnum og ljósi – verði þannig svipaðar að stærð og jafntilbúnar að takast á við lífið eftir gróðursetningu. Umtalsverð atvinna áætluð Með byggingu gróðurstöðvarinnar er gert ráð fyrir að verði um umtals- verða atvinnu að ræða í boði, sem er afar mikilvægur hluti verkefnisins. Þó gerir sjálfvirknin það að verkum að erfiðustu störfin á gróðurstöðinni verða unnin með vélum en ekki fólki. Segir Magnús Barðdal frá SSNV að ætlunin sé að skógar- plöntustöðin verði eins fullkomin og völ er á. Unnið er með sænskum fram- leiðendum sem nú eru að vinna ákveðna grunnvinnu varðandi uppsetningu á tækjum, húsum og útisvæði. „Gert er ráð fyrir að í fyrsta fasa verði framleiðslugeta uppá 5 milljón plöntur á ári,“ segir Magnús, „en allir innviðir og tæki munu geta annað endanlegri stærð sem er um 15 milljónir plantna á ári. Gróðurhúsin verði byggð í áföngum, fyrst hús sem framleiðir 5 milljónir plantna, svo bætum við næsta húsi við og framleiðum þá 10 milljónir og endum svo á þriðja húsinu sem kemur framleiðslunni upp í 15 milljón plöntur árlega. Í dag er ársframleiðslan hér á landi um 6–7 milljón plöntur.“ Aukin framleiðsla á skógarplöntum æskileg Segir Magnús Skógræktina enda hafa talað fyrir mikilvægi þess að auka framleiðslu á skógarplöntum. „Þróunin hefur verið sú að fleiri stærri einkaaðilar eru að koma inn í skógrækt til kolefnisjöfnunar. M.a. útgerðarfélög, olíufélög og svo félög sem hafa þann eina tilgang að framleiða kolefniseiningar, eins og t.d. Yggdrasil Carbon. Það má því segja að framleiðslan okkar muni dreifast á alla þá aðila sem eru í skógrækt, bæði einkaaðila og Skógrækt ríkisins. Við höfum gert samkomulag við stóra kaupendur sem bíða eftir að verkefnið verði að veruleika enda gríðarlegur skortur á plöntum.“ Samkvæmt upplýsingum af fyrrgreindri vefsíðu KVH hefur rekstraráætlun verið unnin fyrir gróðurstöð með framleiðslugetu upp á 15 milljónir plantna árlega. Voru niðurstöður þær að góður grundvöllur sé til rekstrar slíkrar stöðvar og að fjárfestar ættu að fá til baka fjárfestingu sína áður en langt verður um liðið. Byggir rekstraráætlunin að mestu á rekstrarreikningum fyrirtækja sem eru nú þegar í framleiðslu á skógarplöntum á Íslandi að viðbættum upplýsingum frá sænska fyrirtækinu BCC, sem sérhæfir sig í hönnun gróðurstöðva og framleiðslu tæknibúnaðar fyrir slíkar stöðvar. Fjármagn til næstu skrefa Nýverið fékk verkefnið Skógarplöntur milljón króna styrk frá Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra, annað tveggja en að auki var verkefnið kynnt fjárfestum á Fjárfestahátíð Norðuráttar á Siglufirði sem haldin er í marsmánuði ár hvert. Er hátíðin lokaður viðburður, ætlaður til þess að auka fjárfestingatækifæri á landsbyggðinni, og þótti kynning Skógarplantna ganga vonum framar Ákveðið hefur verið að stofna einkahlutafélag um verkefnið, en gert er ráð fyrir að heildarkostnaður við uppbyggingu stöðvarinnar verði um eða yfir 3 milljarða króna. /SP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.