Bændablaðið - 21.09.2023, Side 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 21. september 2023
Vinnupallar ehf. – Vagnhöfða 7 – s. 787 9933 – vpallar@vpallar.is – www.vpallar.is
VARAÐU ÞIG Á HAUSTLÆGÐUNUM!
Við sérhæfum okkur í fa l lvarnar- og öryggisbúnaði .
Veldu öruggar lausnir á frábæru verði .
Við Norðurlandsveg - 560 VarmahlíðSími: 453 8888 - Opið virka daga kl. 9-17
Vörurnar frá Interclamp eru fáanlegar í vefverslun
Sendum um land allt!
Interclamp er alhliða framleiðsla á röratengjum gerðum úr galvaniseruðu
pottjárni til ótölulegra nota.
Hönnuð til þess að geta reist fljótlega og auðveldlega traust mannvirki.
Fimm mismunandi stærðir röra passa í Interclamp tengin.
velaval.is
alltaf opin!
Miðfjörður:
Framleiðsla skógar-
plantna í bígerð
Verkefnið Skógarplöntur hefur
verið í undirbúningi síðustu
misseri en til stendur að reisa nýja
gróðrarstöð fyrir framleiðslu á
skógarplöntum að Laugarbakka
í Miðfirði.
Að verkefninu standa meðal annars
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga, SSNV
og Hafberg Þórisson, eigandi að
gróðurstöðinni Lambhaga.
Miðar verkefnið að því að framleiða
trjáplöntur til gróðursetningar og að
framleiðslan verði um 15 milljónir
plantna árlega. Eins og staðan er núna
er landsvæði tiltækt, hönnunarvinna
komin af stað og áætlað er að stöðin
verði búin nýjustu tækni sem tryggi
jafnari framleiðslu og minni afföll.
Kemur fram á vefsíðu Kaupfélags
VH að gert sé ráð fyrir að stöðin
muni byggja á mikilli sjálfvirkni sem
er þáttur í því að allar plöntur fái sama
magn af vatni, næringarefnum og ljósi
– verði þannig svipaðar að stærð og
jafntilbúnar að takast á við lífið eftir
gróðursetningu.
Umtalsverð atvinna áætluð
Með byggingu gróðurstöðvarinnar
er gert ráð fyrir að verði um umtals-
verða atvinnu að ræða í boði, sem er
afar mikilvægur hluti verkefnisins.
Þó gerir sjálfvirknin það að verkum
að erfiðustu störfin á gróðurstöðinni
verða unnin með vélum en ekki fólki.
Segir Magnús
Barðdal frá
SSNV að
ætlunin
sé að
skógar-
plöntustöðin verði eins
fullkomin og völ er á.
Unnið er með sænskum fram-
leiðendum sem nú eru að vinna
ákveðna grunnvinnu varðandi
uppsetningu á tækjum, húsum
og útisvæði. „Gert er ráð
fyrir að í fyrsta fasa verði
framleiðslugeta uppá 5 milljón
plöntur á ári,“ segir Magnús,
„en allir innviðir og tæki munu
geta annað endanlegri stærð
sem er um 15 milljónir plantna
á ári. Gróðurhúsin verði byggð
í áföngum, fyrst hús sem framleiðir 5
milljónir plantna, svo bætum við næsta
húsi við og framleiðum þá 10 milljónir
og endum svo á þriðja húsinu sem
kemur framleiðslunni upp í 15 milljón
plöntur árlega. Í dag er ársframleiðslan
hér á landi um 6–7 milljón plöntur.“
Aukin framleiðsla
á skógarplöntum æskileg
Segir Magnús Skógræktina enda
hafa talað fyrir mikilvægi þess að
auka framleiðslu á skógarplöntum.
„Þróunin hefur verið sú að fleiri
stærri einkaaðilar eru að koma inn í
skógrækt til kolefnisjöfnunar. M.a.
útgerðarfélög, olíufélög og svo
félög sem hafa þann eina tilgang að
framleiða kolefniseiningar, eins og t.d.
Yggdrasil Carbon. Það má því segja
að framleiðslan okkar muni dreifast á
alla þá aðila sem eru í skógrækt, bæði
einkaaðila og Skógrækt ríkisins. Við
höfum gert samkomulag við stóra
kaupendur sem bíða eftir að verkefnið
verði að veruleika enda gríðarlegur
skortur á plöntum.“
Samkvæmt upplýsingum af
fyrrgreindri vefsíðu KVH hefur
rekstraráætlun verið unnin fyrir
gróðurstöð með framleiðslugetu upp
á 15 milljónir plantna árlega. Voru
niðurstöður þær að góður grundvöllur
sé til rekstrar slíkrar stöðvar og að
fjárfestar ættu að fá til baka fjárfestingu
sína áður en langt verður um liðið.
Byggir rekstraráætlunin að mestu á
rekstrarreikningum fyrirtækja sem
eru nú þegar í framleiðslu á
skógarplöntum á Íslandi að
viðbættum upplýsingum
frá sænska fyrirtækinu
BCC, sem sérhæfir
sig í hönnun
gróðurstöðva
og framleiðslu
tæknibúnaðar
fyrir slíkar stöðvar.
Fjármagn
til næstu skrefa
Nýverið fékk verkefnið
Skógarplöntur milljón króna
styrk frá Atvinnu- og nýsköpunarsjóði
Húnaþings vestra, annað tveggja en að
auki var verkefnið kynnt fjárfestum á
Fjárfestahátíð Norðuráttar á Siglufirði
sem haldin er í marsmánuði ár hvert.
Er hátíðin lokaður viðburður, ætlaður
til þess að auka fjárfestingatækifæri
á landsbyggðinni, og þótti kynning
Skógarplantna ganga vonum framar
Ákveðið hefur verið að stofna
einkahlutafélag um verkefnið, en
gert er ráð fyrir að heildarkostnaður
við uppbyggingu stöðvarinnar verði
um eða yfir 3 milljarða króna. /SP