Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Síða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Síða 2
Útgefandi: Eyjasýn ehf. - kt. 480278-0549 Ægissgötu 2 - 900 Vestmannaeyjum. Ritstjórn og ábyrgð: Ómar Garðarsson og Sindri Ólafsson - omar@eyjafrettir.is - sindri@eyjafrettir.is. Umbrot: Leturstofa Vestmannaeyjum ehf. Ljósmyndir: Blaðamenn Eyjafrétta. Prentun: Stafræna Prentsmiðjan ehf. Sími: 481 1300 Netfang: frettir@eyjafrettir.is. Auglýsingar: auglysingar@eyjafrettir.is Veffang: www.eyjafrettir.is EYJAFRÉTTIR er áskriftarblað. Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið. Það var ansi þungbúið síðasta sunnudag þegar ég sigldi með norrænum forsætisráðherrum og forsætisráðherra Kanada hingað út í Vestmanna- eyjar. Ástæðan fyrir því að ég ákvað að halda þennan fund hér í Eyjum var að fyrir hálfri öld – þegar gaus hér í Vestmannaeyjum - sýndu norrænar ríkisstjórnir og íbúar Norðurlanda okkur mikinn samhug og stuðning. Viðbrögð þeirra hafa löngum síðan verið nefnd sem dæmi um þau traustu bönd sem binda hinar norrænu þjóðir saman. Þó að sólin hafi ekki brosað við okkur í upphafi ferðar þá birti yfir á sunnudagskvöld. Ég held að mér sé óhætt að segja að hópurinn allur hafi beinlínis orðið yfir sig hrifinn eftir ljúf- fengan kvöldmat á Slippnum og siglingu út í Klettshelli þar sem Jóel Pálsson spilaði fyrir okkur af alkunnri snilld. Bæj- arstjóri og fulltrúar bæjarstjórnar tóku vel á móti okkur og öllum var hlýtt í hjarta þegar gengið var til náða. Við mættum endurnærð á fund á mánudeginum en fyrsta viðfangsefni hans var viðnámsþróttur samfélaga. Það er merkilegt að sitja nánast ofan á eldfjalli og ræða við- námsþrótt. Fátt er meira viðeigandi því saga Vestmannaeyja er saga um viðnámsþrótt og seiglu. Þegar gosið hófst hér í janúar 1973 bjuggu meira en 5000 manns í Vestmannaeyjum en eftir fyrsta sólarhringinn voru um það bil 100 manns eftir. 1349 fjölskyldur yfirgáfu heimili sín vegna eldgossins. Sumir hefðu mögulega gefist upp. En það kom aldrei til greina hér í þessu samfélagi. Bæjaryfirvöld brugðust fumlaust við eins og þau hefðu aldrei gert annað. Sama má segja um stjórnvöld. Og frá upphafi lá fyrir skýr og einbeittur vilji Eyjamanna og stjórnvalda til að byggja upp aftur. Það var þessi fullvissa – sem var ekkert annað en ákvörðun – um að búið yrði áfram í Eyjum, að samfélagið héldi áfram óháð öllum eldgosum sem markaði örlög Vestmannaeyja. Í augnablikinu sjálfu birtist þetta í að ganga bara strax í verk- in og vera ekkert að bíða eftir því að gosið hætti með það, moka öskuna á meðan enn gaus, berjast við náttúruöflin með því að dæla sjó á flæðandi hraunið – og ná árangri. Þegar litið er til baka er þessi ákvörðun dæmi um samfélags- lega ákvörðun sem ber vott um viðnámsþrótt. Í þessu gosi urðu 1350 fjölskyldur heimilislausar á svipstundu, horfðu á eftir heimilum og umhverfi sínu undir hraun. Hver og einn íbúi upplifði áfall og um leið upplifði þjóðin öll áfall – varla trúði því nokkur maður að annað eins gæti gerst. En um leið stóðum við saman, hjálpuðumst að og stefndum ótrauð að því marki að byggja upp á nýjan leik. Sú samstaða náði langt út fyrir landsteinana. Við fögnum nú fimmtíu árum frá goslokum – en við fögnum ekki síður fögru dæmi um viðnámsþrótt, samstöðu og sam- hyggð. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra. Viðnámsþróttur Vestmannaeyja Kæru Eyjamenn! Við minnumst þess núna að hálf öld er liðin frá goslokum. Það voru svo sannarlega gleðitíðindi þegar því mátti slá föstu að hinum hrikalegu eldsumbrotum væri lokið. Þessa sögu þekkið þið Eyjamenn auðvitað miklu betur en ég, ekki síst þau sem hér bjuggu þegar hamfarirnar hófust. Þá var ég reyndar ekki fædd. Auk þess verð ég að viðurkenna að ég vissi lítið sem ekkert um þennan geigvænlega atburð Íslandssögunnar fyrr en ég flutti hingað og fór að læra íslensku. Ég man að þá vorum við í náminu látin lesa frásögn ungrar Eyjastúlku sem var vakin um miðja nótt og þurfti að flýja upp á fastalandið ásamt öllum öðrum íbúum. Síðan hef ég margoft heimsótt Heimaey og fræðst frekar um þá hetju- dáð sem unnin var á svipstundu, undir eldi og eimyrju. Hálfri öld síðar má auðvitað fagna goslokum og sömuleiðis því hvernig til tókst við björgunarstörf og uppbyggingu. Við stöndum öll í þakkarskuld við þann fjölda fólks sem lagði svo hart að sér á þeim vettvangi. Og þar sem ég á rætur mínar utan Íslands nefni ég einnig sérstaklega erlenda aðstoð, ekki síst frá frændþjóðum á Norðurlöndum. Einnig komu tæki og tól frá bandaríska varnarliðinu víst að góðum notum. Þá segir þorskastríðssagnfræðingurinn Guðni Th. Jóhannesson mér að gosnóttina sjálfa hafi breskir og vestur-þýskir togarasjómenn boðist til að taka þátt í mannflutningum, í miðri landhelgis- deilu, en ekki hafi þurft að þiggja þá hjálp. Vinur er sá sem í raun reynist og allt sýnir þetta okkur að þótt við séum sjálfum okkur nóg er nauðsynlegt að eiga líka trausta bandamenn. Á þeim tímamótum sem nú eru runnin upp er mest um vert að fagna því sem vel var gert. Um leið má þakka fyrir að mannslíf glötuðust ekki gosnóttina sjálfa og að aðeins maður lést á eynni á meðan eldgosið varaði. Loks getum við glaðst yfir því að samfélagið efldist á ný þegar hægt var að hefjast handa við endurreisn og uppbyggingu. Nú er blómleg byggð hér á Heimaey. Hingað streymir ferðafólk sem vill njóta ægifagrar náttúru, félagsskapar eyjarskeggja og ekki síst að fræðast um jarðeldinn mikla sem ógnaði lífi og búsetu fyrir hálfri öld. Nú er Eldfell vinsælt til uppgöngu og Eldheim- ar frábært sögusafn. Nú bíður framtíðin með öllum sínum tækifærum. Ég ítreka hlýjar kveðjur mínar til Eyjamanna og þakka um leið fyrir alla þá gestrisni og góðvild sem ég hef ætíð notið á eyjunni fögru. Eliza Reed, forsetafrú Kveðja á 50 ára goslokaafmæli

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.