Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Page 22
22 | | 5. júlí 2023
Skipalyftan ehf. Vestmannaeyj-
um var stofnuð 14. nóvember
1981. Fyrirtækið fagnaði því 40
ára afmæli fyrir hálfu öðru ári. Í
dag starfar Skipalyftan fyrst og
fremst sem plötusmiðja, véla-
og renniverkstæði auk þess að
þjónusta skip í upptökumannvirki
Vestmannaeyjahafnar. Skipa-
lyftan heldur einnig úti lager og
verslun með mikið úrval af vörum
tengdum málmiðnaði, sjósókn og
veiðum.
Þurfum að ráðast
í framkvæmdir
„Við erum bara bjartsýn“ var það
fyrsta sem Stefán Örn Jóns-
son framkvæmdastjóri og einn
eigenda Skipalyftunnar sagði
þegar blaðamaður settist nið-
ur með honum á kaffistofunni
í Lyftunni. Stefán er stórhuga
þegar talið barst að framtíð-
inni. „Við erum nýbúnir að fá í
hendurnar kostnaðaráætlun fyrir
ný upptökumannvirki sem við
ætlum að leggja fyrir ráðamenn
og hagsmunaaðila þegar þau
gögn eru alveg klár.“ Stefán segir
núverandi mannvirki vera barn
síns tíma og ætli menn að halda
áfram að þjónusta skip til fulls
í Vestmannaeyjum þá þurfi að
ráðast í framkvæmdir. „Við erum
auðvitað að skoða fleiri en einn
möguleika en í mínum huga þá
er þurrkví það sem myndi henta
okkur best.“ Þurrkví er skipakví
sem hægt er að sigla inn í tæma úr
vatn svo skipin standa á þurru og
ekki þarf að lyfta þeim upp. „Þess
háttar mannvirki myndi henta
okkur best hér bæði vegna þess
hve þrengt hefur að athafnasvæð-
inu í kringum lyftuna og því erfitt
að byggja stærra mannvirki inn
í landi, aðgengi yrði auðveldara
og veður hefði minni áhrif á
upptökur.“ Stefán segir mikið hafa
breyst á síðustu árum. „Í dag eru
þetta um sjö skip sem við getum
tekið upp í Vestmannaeyjum, það
hefur mikið breyst frá því að hér
voru 80-90 upptökur á ári. Annar
kostur við þurrkví er að hún virkar
sem viðlegukantur þegar ekki er
unnið í mannvirkinu.“ Stefán var
ekki tilbúinn að deila innihaldi
þessara áætlana með blaðamanni
fyrr en hann hefði kynnt þau fyrir
öðrum.
Erum mikilvægur
partur keðjunnar
Stefán segir að þrátt fyrir að upp-
tökum fækki þá gangi reksturinn
vel. „Við höfum auðvitað þurft að
aðlaga okkur að breyttum tímum.
Skipalyftan hefur verið rekin á
sömu kennitölunni síðan 1981,
það eru fáir sem geta státað sig af
því þessum geira. Auðvitað höfum
við gengið í gegnum allskonar
tíma en okkar mesta lukka hefur
alla tíð verið lítil starfsmanna-
velta. “Í dag starfa um 35-40
manns hjá fyrirtækinu. „Það eru
mikil verðmæti í því að hafa gott
starfsfólk í þessum geira og það
eru margir sem hafa verið lengi
hjá okkur. Það er merki um að
við séum í það minnsta að gera
eitthvað rétt. Við erum mikilvæg-
ur partur í þessari keðju sem sjáv-
arútvegur í Vestmannaeyjum er.
Fyrirtækin hér sinna viðhaldi og
endurnýjun af metnaði og við höf-
um lagt okkur fram um að verða
við því. Við höfum notið góðs af
því að hér séu öflug og framsækin
fyrirtæki sem vilja gera vel.“
Við berum ábyrgð
Stefán er ekki að slá slöku við þó
hann viðurkenni fúslega tekið sé
að síga á seinni hlutann á hans
vakt hjá fyrirtækinu. „Nýlega
byggðum við tvö hús við hlið
Skipalyftunnar, sem hvort um sig
eru 700 fermetrar að stærð. Annað
þeirra er að mestu leyti í útleigu
en í hitt húsið höfum við nú fært
vélaverkstæðið okkar í sem er
með glæsileg aðstaða fyrir okkar
starfsemi. Nú er einnig hafin
bygging á öðru húsi hér á horninu
við Kleifaveginn. Við erum einnig
alltaf að endurnýja tæki og tól,
nú stendur yfir endurnýjun á
loftræstingunni í húsinu þannig að
það er nóg að snúast hjá okkur.“
Stefán segir eigendur fyrirtækisins
bera ábyrgð gagnvart samfélaginu
í Vestmannaeyjum. „Þó svo að við
förum að hætta að vinna í þessu
þá verður fyrirtækið áfram mikil-
vægur þáttur í verðmætakeðjunni
hér í Eyjum. Það er skylda okkar
að tryggja að svo verði áfram.“
Aukin aðsókn í iðngreinar
Stefán segir hluta af þeirri ábyrgð
vera meðal annars að taka þátt
í að mennta framtíðar kynslóð-
ir iðnaðarmanna. „Við höfum
verið í góðu samstarfi við FIV
og finnum fyrir aukinni aðsókn í
iðngreinar. Þetta skiptir máli fyrir
okkur. Það er mikill munur að fá
nema hér í vinnu sem hafa tekið
eina eða tvær annir í grunndeild
uppi í skóla. Þau koma mun betur
undirbúin inn á vinnustaðinn.
Við höfum verið að taka marga
nema á samning síðustu ár með
góðum árangri. Það er auðvitað
ábyrgðarhluti fyrir okkur að halda
greininni gangandi. Þetta skiptir
allt máli. Við þurfum að horfa
til framtíðar. Þó svo að ég eigi
kannski ekki eftir að sjá þessa
þurrkví á minni vakt þá ber okkur
skylda að ryðja veginn,“ sagði
Stefán að lokum.
Hafa gert kostnaðaráætlun fyrir þurrkví
Stefán Örn Jónsson er bjartsýnn á framtíðina í Vestmannaeyjum
SINDRI ÓLAFSSON
sindri@eyjafrett ir. is
Jón Waagfjörð.
Friðrik Gíslason og Helgi Einarsson .
Gunnar Davíð Erlendsson
og Andri Andersen.
Ómar Björn Stefánsson.
Gunnar og Tara.
Þorgeir Oddfríðarson, Jón Valur Jónsson, Jón Waagfjörð.