Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Side 31

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Side 31
5. júlí 2023 | | 31 „Atvinnulífið tók fljótar og betur við sér eftir gos en hefði mátt ætla. Strax á árinu 1974 var flest komið hér í gang og sumt á fullan skrið. Ég var þá verkstjóri í Fiskiðjunni og fryst voru um þúsund tonn af loðnu sem var met. Loðnuvinnslan var öllu frumstæðari þá en nú þekkist. Fjórir tugir kvenna stóðu við færiband og tíndu karlfiskinn úr aflanum. Verðmætið var fólgið í hrognafullri kvenloðnunni,“ segir Þór Vilhjálmsson, sjómað- ur til áratuga en á síðari árum starfsmaður Vinnslustöðvarinnar í ýmsum hlutverkum; móttöku- stjóri, verkstjóri, starfsmannastjóri og allsherjarreddari. „Árið eftir gos markaði líka tímamót að því leyti að þá hófst fyrir alvöru vinnsla loðnuhrogna, frumkvöðlaverkefni sem átti rætur að rekja til tilraunastarfsemi í kjallara Vinnslustöðvarinnar 1972. Gosið setti strik í reikninginn en þráðurinn var tekinn upp að nýju strax eftir gos. Menn gerðu sér grein fyrir því að mikil verðmæti væru fólgin í frystum loðnuhrognum, vandinn var að ná utan um framleiðsluferl- ið. Þar hafði forgöngu Magnús Muggur Bjarnason frá Garðs- horni, starfsmaður útgerðarfé- lagsins Samfrosts, og við Torfi Haraldsson vorum með honum í þessu. Tveir geymar voru settir upp í Friðarhöfn og þriðji geymir- inn hafður á vörubílspalli. Við dældum blóðvatni úr lestum bátanna og fluttum það í geymana í Friðarhöfn þar sem hrognin voru látin setjast. Hrognin voru síðan flutt í kör í fiskvinnsluhúsum og hreinsuð, sem var mikið vanda- verk. Nothæfar skiljur til verksins voru smíðaðar í vélsmiðjunni Trausti í Reykjavík en vinnslan gekk samt brösuglega framan af. Menn náðu smám saman tökum á ferlinu og til varð útflutnings- vara sem skilað hefur miklu um dagana til sjávarútvegsins og íslensks þjóðarbús. Japanir voru og eru enn langumsvifamestu kaupendur frystra loðnuhrogna.“ Staðgreiðsla skatta ekki bændum að skapi? „Ég byrjaði í Vinnslustöðinni 1979. Fyrirtækið átti þá sjálft enga báta heldur fékk fisk af viðskiptabátum sínum til vinnslu. Þetta var fyrir daga kvótakerfisins og stærstur hluti aflans barst á land í mars og apríl. Við reyndum að fletja allan sólarhringinn og fengum fólk utan úr bæ til liðs við okkur. Ég man til dæmis að starfsfólk af sjúkrahúsinu kom á frívöktum til vinnu á nóttunni. Fiskurinn var saltaður og síðan geymdur til pökkunar. Á þessum tíma var ekki farið að pakka fyrr en að vertíð lokinni. Allt tiltækt geymslurými var notað, meðal annars voru saltfiskkör í gúanó- þrónni. Mest reyndi á mannskapinn í maímánuði. Þá fóru bændur í vertíðarvinnunni heim til að sinna sauðburði og skólakrakkar voru enn í vorprófum. Bændur hættu svo nær alveg að koma til Eyja á vertíð eftir að staðgreiðslukerfi skatta var tekið upp 1988. Stað- greiðslan virtist ekki vera þeim að skapi!“ Verkstjórafundur um afnám bjórbanns Kapphlaupið við tímann var mál málanna í fiskvinnslunni þegar svo mikið barst á land að illmögu- legt var að hafa undan. Þór segir að Vinnslustöðin hafi tekið við 400 til 600 tonnum af óslægðum fiski daglega í aflahrotum og því hafi þurft að láta hendur standa fram úr ermum áður en afli næsta dags kæmi í hús. „Mikið var hengt upp til þurrkunar, þar á meðal ufsi fyrir Nígeríumarkað. Ufsinn var á þess- um árum unninn og seldur sem svokallaður sjólax til Þýskalands. Eftir hrygningu gekk það ekki, þá var ufsinn þurrkaður en fyrst afhreistraður með hrossaklórum. Mikil breyting varð í starfsemi og vinnulagi Vinnslustöðvarinnar þegar farið var að flytja út ferskan fisk í gámum. Ein útgerðin samdi til að mynda um að gert væri að fiski úr afla hennar í einn gám sem hún seldi síðan úr landi en Vinnslustöðin vann úr því sem eftir var. Í minningunni einkenndist ver- tíðarlífið af stöðugu kapphlaupi við að bjarga hráefni og dugði þá oft ekki sólarhringurinn. Allt að 80 starfsmenn Vinnslustöðvarinn- ar voru aðkomufólk sem bjó í ver- búð hennar. Þar gat verið fjörugt og ég man að stjórnendur höfðu áhyggjur af því sem kynni að ger- ast þegar bjórbanninu yrði aflétt 1. mars 1989. Boðaður var sérstakur verkstjórafundur til að búa menn undir bjórdrykkju á vinnustaðnum og hvernig bregðast ætti við því. Þegar til kom breyttist nákvæm- lega ekkert. Áhyggjurnar reyndust ástæðulausar. Fyrst áfengi er nefnt þá kemur upp í hugann þegar ég sjálfur var skólastrákur og gefið var frí til að við gætum tekið þátt í að bjarga verðmætum í aflahrotum. Ef okk- ur var sagt að mæta eftir kvöld- mat með nesti sem dygði í tvær kaffipásur blasti við að unnið yrði langt fram á nótt. Ef það gerðist um helgar var ekki endilega kaffi í brúsum karlanna. Það þótti ekkert stórmál að þeir skelltu í sig slurk af vodka og héldu svo áfram að fletja fiskinn.“ Lengri útgáfa af viðtalinu við Þór birtist fljótlega á eyjafrettir.is TRAUST ATVINNULÍF REIS UPP ÚR ÖSKU ELDFJALLSINS Kapphlaupið endalausa við að bjarga verðmætum sjávarins Þór við trilluna góðu, Dolla í Sjónarhól, sem nefnd er eftir tengdaföður hans. Mynd Addi í London. ATLI RÚNAR HALLDÓRSSON / atl i@sysl. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.