Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Side 35
5. júlí 2023 | | 35
Herjólfsdal. Gísli áætlar að upp-
græðslusvæðin hafi verið alls um
220 hektarar.
Allt að 100 manns unnu
að uppgræðslunni
Byrjað var að fjarlægja vikurinn
úr norðurhlíðum Helgafells
veturinn 1976. Á vikursvæðun-
um voru fjarlægðir rúmlega 200
þúsund rúmmetrar. Hluti hans var
notaður til að hækka skarðið milli
fellanna og mynda betra skjól
fyrir bæinn í austanáttum. Við
þetta voru notuð flest jarðvinnslu-
og ámoksturstæki Áhaldahússins
ásamt vörubílaflota Bifreiða-
stöðvar Vestmannaeyja auk tækja
smærri fyrirtækja. Unnið var á
vöktum allan sólarhringinn hluta
júní- og júlímánaða 1976. Þegar
mestur kraftur var í verkinu unnu
um 100 manns í uppgræðslunni.
„Tveir vinnuhópar tóku norð-
urhlið Helgafells á einum degi,“
segir Gísli. „Strákarnir báru
poka með fræi og áburði upp í
hlíðarnar. Stelpurnar dreifðu úr
þessu og rökuðu blöndunni niður
í jarðveginn. Við höfðum reiknað
með að verkið tæki 16 tíma.
Vinnuhóparnir unnu verkið frá kl.
8 að morgni til klukkan 19. Til
þess að ná þessu slepptu þau m.a.
matar- og kaffitímum en fengu
greitt fyrir 16 tímana. Þetta skilaði
feiknar góðum árangri.
Við fengum geysilegan stuðning
frá fiskimjölsverksmiðjunum sem
gáfu okkur kynstur af fiskimjöli.
Það var varanlegur lífrænn
áburður. Einnig fengum við mikið
af tilbúnum áburði og blönduð-
um þessu saman. Það var valinn
maður í hverju rúmi, allt frá
unglingum upp í fullorðið fólk.
Þeirra á meðal voru fyrrverandi
bændur í Eyjum, vörubílstjórar
og tækjamenn. Landgræðslan
kom inn í verkið á síðari stigum
bæði hvað varðaði ráðleggingar,
útvegun fræja og áburðar og ekki
síst áburðar- og frædreifingu úr
flugvélum. Var þetta framlag
Landgræðslunnar ómetanlegt.“
Verkið fór ekki fram úr
kostnaðaráætlun
Gísli hafði yfirumsjónina með
verkinu og var með verkstjóra
og flokksstjóra. „Við héldum
fundi daglega þar sem var farið
yfir hvað átti að gera næsta dag.
Einnig skoðuðum við svæðin
daginn áður en unnið var í þeim.
Það var áætlað hvað hvert verk-
efni tæki mikinn tíma. Ef vinnan
gekk betur en áætlað var þá fékk
fólkið frí á launum það sem eftir
var af vinnutímanum. Þetta gekk
allt upp og verkefnið fór ekki
fram úr kostnaðaráætlun sem var
upp á 113,5 milljónir króna. Það
voru nálægt 12 milljónir ónotaðar
af fjárveitingunni eftir sumarið
sem færðust til næsta árs. Þessi ár-
angur náðist fyrst og fremst með
frábærri fjármálastjórn Arnars
Sigurmundssonar sem þá var full-
trúi Viðlagasjóðs í Eyjum.”
Þar sem átti að hefta vikurinn
strax var sáð höfrum. Sandfax var
notað þar sem gras þurfti að vera
þolið. Einnig var víða sáð vallar-
sveifgrasi. Melgresi var plantað
austast við brúnirnar á Haugun-
um. Rót hverrar plöntu var sett í
pappírspoka fylltum með sandi
sem síðan var grafinn beint í vik-
urinn. Sandurinn geymdi nægan
raka svo plantan lifði og rótfestist.
Þannig voru mynduð skjólbelti úr
melgresi.
„Maður skoðaði álagsblettina og
valdi grastegundir út frá því. Það
var eitt skilyrði: Sáningin varð
að heppnast í fyrstu tilraun. Það
þýddi ekki að hafa auða bletti,
í þessu. Vinnuhóparnir vissu að
ef svæði voru slælega unnin þá
yrðu þeir ræstir út aftur til að
endurtaka verkið á eigin kostnað.
Það reyndi bara einu sinni á það,“
segir Gísli.
Gríðarmikið vikurfok úr Eldfelli
Árið eftir var uppgræðslunni
haldið áfram og lagfært það sem
hafði gengið úr lagi frá árinu áður.
Gísli hafði samband við Jónas Elí-
asson verkfræðiprófessor sem kom
til Vestmannaeyja 1977 og 1978 og
kannaði efnisflutning og vikurfok
úr Eldfelli á árunum 1974-1977.
„Að meðaltali var efnishreyfing í
Eldfelli um 195 þúsund rúmmetrar
á ári, samkvæmt mælingum Jónas-
ar. Við skoðuðum kornastærðir
og þá kom í ljós að fínasta efnið
fauk yfir byggðina, um 15 þúsund
rúmmetrar á ári,” segir Gísli. Tveir
vindpunktar, þar sem vindur veldur
mestu álagi, eru í Eldfelli. Annar
er að norðaustan og hinn þar
sem erfiðast er að binda gróður í
hlíðum fellsins. Austurpunkturinn
gekk inn um 8,3 metra á einu ári
vegna vindálags og vikurflutnings.
Eldfell er líka alltaf að lækka og
ljóst að það mun enda sem ávöl
hæð eða fell, nema fína efnið
bindist og kleprar verði eftir líkt og
í Helgafelli sem er klepragígur.
„Uppgræðslan gerði Heimaey
byggilega. Fólk hætti að tala um að
flytja í burtu vegna vikurfoksins.
Nú er Helgafell betur gróið en það
var fyrir gos. Það sést greinilega á
myndum,” segir Gísli.
Vinstra megin eru Haugarnir eins og þeir voru í apríl 1975 áður en uppgræðslan hófst. Myndin hægra megin var tekin í júní 1977 og áhrif uppgræðslunnar
leyna sér ekki. Ljósmynd/GJÓ
Vinstra megin sést hvernig golfvöllurinn leit út 1975. Aska og vikur úti um allt. Myndin hægra megin var tekin sumarið 1976 þegar uppgræðslan var farin að
skila árangri. Ljósmynd/GJÓ
SINDRI ÓLAFSSON / sindri@eyjafrett ir. is