Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Síða 42

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Síða 42
42 | | 5. júlí 2023 Útför Árna Johnsen, fyrrverandi alþingismanns, blaðamanns og tónlistarmanns, var gerð frá Landakirkju 23. júní sl. að viðstöddu fjölmenni. Árni fæddist í Vestmannaeyjum 1. mars 1944. Foreldrar hans voru þau Ingibjörg Á. Johnsen kaupkona og Poul Kanélas frá Bandaríkjunum. Fósturfaðir hans var Bjarnhéðinn Elíasson, skipstjóri og útgerðar- maður. Árni lést á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum 6. júní, 79 ára gamall. Árni ólst upp í Eyjum við út- eyjalíf og æðaslátt í stórri verstöð. Hann lagði stund á frjálsíþrótt- ir og var sigursæll. Árni lauk kennaraprófi 1966 og kenndi um tíma eftir það. Hann bjó í Surtsey þegar gosið stóð enn og sinnti þar gæslu og rannsóknum nokkur sumur. Árni var blaðamaður á Morgun- blaðinu 1967–1991 og fékkst um leið við dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi. Hann fjallaði um sjó- slys og náttúruhamfarir á nærgæt- inn hátt og hafði næmt auga fyrir fjölbreytni mannlífsins hvar sem hann kom. Árni skrifaði einnig nokkrar viðtalsbækur og ævisögur auk skopsagna af þingmönnum sem Sigmund myndskreytti. Eftir Árna liggur hátt á þriðja hundrað hljóðritana þar sem hann er ýmist flytjandi, höfundur lags eða texta og stundum allt í senn. Hann mætti víða á mannamót með gítarinn og skemmti eða stjórnaði fjöldasöng, sannur gleðigjafi. Árni var lengi kynnir á Þjóðhátíð Vest- mannaeyja og upphafsmaður að brekkusöngnum þar sem þúsundir þjóðhátíðargesta tóku undir svo bergmálaði í Herjólfsdal. Árni beitti sér í málefnum Vest- mannaeyja eftir eldgosið 1973 og haslaði sér völl í landsmálunum. Hann sat á Alþingi 1983–1987, 1991–2001 og 2007–2013 fyrir Sjálfstæðisflokkinn og var þess utan nokkrum sinnum varaþing- maður. Litríkur Eyjamaður kvaddur Árni úti í Surtsey í ágúst 1979. Ljósmynd Sigurgeir. Árni var upphafsmaður Brekkusöngsins. Ljósmynd úr safni Eyjafrétta. Árni Johnsen og Halldóra Filippusdóttir. Ljósmynd Sigurgeir. Árni stekkur á milli jaka í Thule nyrst í Grænlandi. Ljósmynd RAX. Árni í fréttaleiðangri á Krakatá í Indónesíu. Ljósmynd RAX. Blaðamennirnir Árni Gunnarsson og Árni Johnsen 1973. Ljósmynd Sigurgeir. Þingmaðurinn Árni ásamt Þorsteinni Pálssyni formaður Sjálfstæðisflokksins.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.