Úrval - 01.04.1969, Side 12

Úrval - 01.04.1969, Side 12
10 ÚRVAL frá einum kvenmanninum til ann- ars til að sanna manndóm sinn! Hvert okkar hefur auðvitað sitt vanþroskamerki, stórt eða smátt. Mannvera, sem kallazt getur full- þroska, er hreinlega ekki til. And- legur þroski á það sammerkt með líkamlega vextinum að koma hægt og sígandi. Þroski er það að hafa vald á reiði sinni og greiða úr árekstrum og misklíð án þess að vandræði hljót- ist af. Þroski er þolinmæði, skiln- ingur á því, að stundum verður maður að hafna stundaránægju fyrir eitthvað mikilsverðara, sem tíminn framundan ber í skauti sínu. Þroski lýsir sér í þolgæði, viljan- um til að ná settu marki, þrátt fyr- ir hindranir og mótlæti. Þroski er óeigingirni, löngunin til að gleðja aðra. Þroski kemur fram í hæfi- leikanum til að þola vonbrigði og andspyrnu án þess að verða beisk- ur út í lífið og tilveruna. Þroski er auðmýkt. Þroskuð manneskja á auðvelt með að segja: „Mér skjátláðist“, og ennfremur’: „Mér þykir þetta leitt“. Og þegar hann hefur rétt fyrir sér, kallar hann ekki upp sigri hrósandi: „Hvað sagði ég ekki!“ Þroski er líka traustleiki, sann- girni og heiðarleiki. Sá vanþrosk- aði hefur ævinlega á reiðum hönd- um hverskyns afsakanir. Það eru mennirnir, sem gjarnir eru á að vera óstundvísir og gleyma því, sem fastmælum hefur verið bund- ið. Líf þeirra er hrærigrautur af sviknum loforðum, hálfunnum verkum og vinum, sem eitt sinn voru. Og síðast en ekki sízt: Þroski er hæfileikinn til að taka möglunar- laust við því, sem ekki verður um- breytt. Áttu nokkuð erfitt með að sjá ímynd einhverra kunningja þinna í eftirfarandi bréfum: Kæra Ann Landers! Hvers vegna hefur enginn ennþá kallað réttu nafni það athæfi eigin- manns að aka bifreið sinni eins og taugasjúklingur í kappakstri? Rétta nafnið á þessu er: aðferð eigin- manna á tuttugustu öldinni til að misbjóða konum sínum. Hjón fara út að aka. En í stað þess að gera úr túrnum skemmtiferð, notar bóndinn tækifæri til að veita útrás niðurbældri gremju. Ef til vill er honum í nöp við tengdamömmu sína ellegar yfir- mann eða hann sé óánægður með starf sitt. Svo er líka ekki ólíklegt, að hann sé óánægður með sjálfan sig af því hann komi sér ekki nógu vel áfram að eigin áliti. En hver sem ástæðan kann að vera, þá kemur hún fyrst og fremst niður á kon- unni. Eg legg til, að hjón sem fara í taugarnar hvort á öðru til lang- frama, sökum glannalegs aksturs eiginmannsins, ættu að kryfja mál- ið til mergjar innan veggja heim- ilisins. (Ein, sem sloppið hefur fram til þessa). SVAR: Sérfræðingar í umferðar- öryggismálum fullyrða, að mikil- væg orsök margra alvarlegra bíl- slysa sé einmitt ergelsi í einhverri
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.