Úrval - 01.06.1976, Síða 44
42
URVAL
GERÐU ÞÍNAR EIGIN PÍRAMÍTATILRAUNIR.
Hver og einn getur gert sínar eigin píramítatilraunir. Til þess þarf
náttúrleg píramíta. En það er ekki svo erfitt. Hér er ein uppskrift:
Fáðu þér stífan pappa (ekki þylgjupappa). Teiknaðu þríhyrning,
sem er 22,72 sentimetrar á tvo vegu en 24 sentimetrar á einn — það er
botninn. Þegar þetta er orðið rétt, skaltu gera þrjá aðra nákvæmlega
eins. Skerðu þá svo út, mjög nákvæmlega, og límdu þá saman með
límbandi, þannig að þeir myndi píramíta. Leggðu samanlímdan
píramítann á pappa og teiknaðu utan með. Þetta verður botn
píramítans.
Mældu nú út og teiknaðu réttan kross á botnplötuna, þannig að út
komi fjórir jafnir ferningar. Fáðu þér einhvern hlut, sem enginn
málmur erí, svo sem pilluglas úr plasti eða bara eldspýtustokk, sem er
fimm sentimetrar á hæð. Líka má búa til fimm sentimetra háan pall úr
afgangspappa. Þetta á að vera pallurinn innan í píramítanum, og sértu
í vafa um rétta hæð hans, á efri brún hans að vera nákvæmlega
þriðjungur af hæð píramítans frá botni upp í spíss.
Nú skaltu velja píramítanum stað heima hjá þér, helst í hæfilegri
fjarlægð frá öllum rafmagnstækjum, miðstöðvarofnum og gluggum.
Finndu síðan segulnorðurátt með áttavita og láttu aðra línu
botnkrossins snúa nákvæmlega í þá stefnu. Láttu síðan pallinn ofan á
botninn, nákvæmlega yfir miðjan krossinn. Sé pallurinn ílangur, á
þýðingu á sviði stærðfræði og stjörnu-
frasði. ,,Þessar kenningar,” segir
Encyclopedia Brittanica stutt og lag-
gott, ,,sem leggja spásagnir og
esóterískar merkingarí mælieimngar,
horn og hlutföll píramítans mikla,
eiga ekki vð nokkurn vísindalegan.
grundvöll að styðjast.”
En á tímum sögunnar hafa marg-
háttaðar sagnir komið fram um
einkennilega fyrirburði í píramítan-
um. Þannig er til dæmis sagt, að
Napóleon hafí látið fyrirberast þar
eina nótt, en ævinlega neitað að skýra
frá því, sem þá bar fyrir hann, þar eð
enginn myndi trúa honum.
En sú kenning, að einhvers konar
orka eða máttur fælist í byggingarlagi
píramítans náði ekki fótfestu á
vesturhveli jarðar fyrr en árið 1970,
að Sheila Ostrander og Lynn Schrö-
der gáfu út bókina Dulrænar upp-
götvanir bak við járntjaldið (Psychic
Discoveries Behind the Iron Curtain,
útg. Prentice Hall). Þar skýra þær frá
því, að píramítamátturinn hafi verið
UNDRAMÁ TTUR PÍRAMÍTANS
43
hann að snúa í segulnorður (langhliðarnar vestur — austur). Nú getur
þú látið það sem þér sýnist á pallinn, lagt píramítann yfir og hafið
tilraunina.
Alls konar lífræn efni hafa verið hagnýtr við píramítatilraunir — svo
scm dauð skordýr, afskorin blóm, hrátt kjöt og grænmeti. Sé það, sem
þú gerir tilraun þína með, ílangt, á það að snúa í segulnorður og suður.
Ef allt fer eins og gert er ráð fyrir, á það, sem þú prófar, að þorna upp
— verða að múmíu — án þess að rotna eða valda vondri lykt. Til
samanburðar er gott að leggja flís af sama efni skammt frá
píramítanum — ekki fast við, því þá getur eitthvað af mætti
píramítans náð til þess.
Sagt er, að píramítar af þessu tagi séu mjög góðir til að halda
rakblöðum flugbeittum. Helst ætti að gera tilraunir með blöð úr
venjulegu, bláu stáli, fremur en ryðfríu stáli eða krómstáli. Taktu blað
úr pakkanum, notaðu það þar til þér finnst bitið farið að slappast.
Leggðu það þá á píramítapallinn, þannig að endarnir sér í norður og
suður en eggjarnar í vestur og austur. Láttu það liggja í píramltanum í
viku. Eftir það máttu nota það eftir þörfum, ef þú geymir það milli
rakstra í píramítanum og lætur það liggja rétt. Sumir gefa þá
niðurstöðu, að með þessu móti megi nota sama blaðið 40—50 sinnum,
án þess að það tapi biti, en þeir sem lengst hafa gengið segjast hafa
rakað sig allt upp í 200 sinnum með píramítalegnu rakblaði.
gerður að verslunarvöru í Tékkóslívak-
íu, vegna uppgötvana lítt þekkts
frakka, Monsieur Bovis. Bovis þessi
hafð heimsótt Keopspíramítann
,,fyrir nokkrum árum”. I konungs-
herberginu, sem er nákvæmlega í
þriðjungshæð píramítans, tók hann
eftir rusladalli með hræum nokkurra
smádýra. Honum var sagt, að kettir
og aðrar smáskepnur færu oft inn í
píramítann, þar sem þeir villtust og
syltu til bana. Eftirlitsmennirnir
hirtu svo hræin og köstuðu þeim í
þennan dall, og þegar hann væri
fullur, væru hræin grafin. Bovis til
undrunar var enga ýldu eða rotnun
að sjá í dallinum. Þrátt fyrir það, að
rakastigið í þessum klefa píramítans er
nokkuð hátt, hölðu hrætn þornað —
voru að verða að múmtum. Bovis
sneri aftur heim og bjó sér til módel
af píramítanum, og setti pall í hann
nákvæmlega í þriðjungshæð frá botni
til odds. Þar lét hann dauðan kött og
ekki leið á löngu, áður en kattarhræið
var orðið að múmlu. Tilraunir með