Úrval - 01.06.1976, Blaðsíða 51
LITLA GULA NÍJTÍMAHÆNAN
víSK'víSkvíí að vareinu sinni lítil, gul
- || hæna, sem rótaði í
ýí hænsnagarðinum, þar til
hún fann nokkur hveiti-
fræ. Hún kallaði á ná-
*
*
m
granna sína og sagði: ,,Ef við sáum
hveitifræjunum, fáum við brauð að
borða. Hver vill hjálpa mér að sá því?
„Ekki ég,” sagði kýrin.
„Ekki ég,” sagði öndin..
„Ekki ég,” sagði svínið.
„Ekki ég,” sagði gæsin.
„Þá geri ég það,” sagði litla, gula
hænan, og hún gerði það.
Hveitifræið óx og þroskaði gullið
hveitikorn.
„Hver vill hjálpa mér að þreskja
hveitikornið mitt?” spurði litla, gula
hænan.
„Ekki ég,” savaraði öndin.
„Ekki í mínum verkahring,” svar-
aði svínið.
„Það er ekki fyrir fínar dömur,”
svaraði kýrin.
„Ég myndi tapa atvinnuleysi-
styrknum,” svaraði gæsin.
„Þá geri ég það,” svaraði hænan,
og hún gerði það.
Þá var komið að því að baka
brauðið. „Hver vill hjálpa mér að
baka brauðið?” spurði, litla gula
hænan.
„Það yrði í yfirvinnu hjá mér,”
svaraði kýrin.
„Ég missi tryggingabæturnar,”
svaraði öndin.
„Ég féll í skóla og veit ekki hvernig
á að gera það,” svaraði svínið.
49
„Ég myndi skera mig úr, ef ég væri
sú eina, sem hjálpaði til,” svaraði
gæsin.
„Þá geri ég það,” svarað litla, gula
hænan. Hún bakaði fimm brauð og
hélt þeim uppi, svo nágrannarnir
gætu séð þau.
Þeir höfðu allir lyst á brauðunum
— og kröfðust reyndar að fá hluta af
þeim. En litla, gula hænan sagði:
„Nei, ég get étið þau öll sjálf.”
„Óhófsgróði,” æpti kýrin.
„Auðvaldsblóðsuga,” öskraði
öndin.
„Ég heimta jafnrétti,” hrópaði
gæsin.
Svínið rumdi. Svo flýttu þau sér að
mála „ÓRÉTTLÆTI” á spjald,
þrömmuðu um mað það og æptu
vígorð.
Þá kom umboðsmaður stjórnar-
innar og sagði við litlu, gulu
hænuna. „Þú mátt ekki sýna
græðgi.”
„En ég vann fyrir brauðinu,”
svaraði litla, gula hænan.
„Alveg rétt,” svaraði umboðs-
maðurinn. „Þetta eru dásemdir
frjálsa framtaksins. Ailir í hlöðugarð-
inum geta unnið eins mikið og þá
lystir. En samkvæmt reglum stjórnar-
innar verður duglegur verkamaður að
skipta framleiðsluarðinum milli iðju-
leysingjanna. ”
Og svo lifðu þau hamingjusömu
lífi upp frá því. En litla, gula hænan
bakaði ekki framar brauð, og ná-
grannar hennar undruðust það.
★