Úrval - 01.06.1976, Síða 100
98
ÚRVAL
við miklum hátíðarhöldum og er
fremur dapur. Maður er svo sem ekki
gamall, þótt maður verði 29 ára, en
ekkert unglamb heldur.
Um morguninn fæ ég heillaóskir.
Þær fyrstu koma frá Bóris og
Hermani. Mér þykir vænt um þær.
Ég hélt að eftir þennan erfiðleika-
kafla myndu þeir hafa gleymt afmæl-
inu. Ég fékk margar góðar óskir frá
samstarfsmönnum okkar utan fars-
ins, frá vinum og vandamönnum.
Satt að segja þótti mér þó vænst um
hamingjuóskir frá Víólettu. Það lifn-
aði yfir mér og ég komst í gott skap.
HERMANN SKER SIG UPP.
Þrátt fyrir einangrun okkar álitum
við okkurþátttakendur í stórum hópi
vísindamanna, sem ynni að mikils-
verðu verkefni — að erja jörðina fyrir
áhafnir innsiglaðra geimfara á mán-
aðaiöngum ferðalögum.
„Neyðarástandið” er aðeins tvo
daga að baki. Nú getum við varla
ímyndað okkur hve heitt var þá. Nú
er aftur auðvelt að draga að sér
andann. Við emm i léttum fötum
Lífið er aftur að verða eðlilegt.
En mér finnst tilbreytingaileysi
þess, ásamt sljóvguðu minni, hafa
slæm áhrif á tilfinningarnar. Ég er
farinn að taka eftir því, að ég geri
mér ekki eins glögga grein fyrir
umhverfinu. Athyglin er ekki eins
skörp eins og hún var fyrstu mán-
uðina.
Eina nóttina fannst mér einhver
vera að stynja. Var það draumur?
Nei, það var Herman. Hann hafði
fengið sársaukafullt kýli bak við
eyrað. Við ákváðum að leita ráða hjá
læknunum. Skurðlæknir ráðlagði
okkur að reyna að lækna þetta með
lyfjum úr ferðaapótekinu okkar. Þó
gerði hann ráð fyrir þeim möguleika,
að nauðsynlegt yrði að skera í þetta.
Þegar Hermani versnaði enn, var
bmgðið á það ráð.
Allt var undirbúið. Ég staðdeyfði
Herman, en sjálfur skar hann I kýlið,
meðan ég hélt spegli fyrir hann svo
hann gæti séð skurðstaðinn. Ég var
svo smeykur, að hendur mínar
skulfu. En allt fór vel. Þegar þetta var
búið, bjó Bóris um höfuð Hermans.
Þetta var fyrsti (og ég vonaði síðasti)
uppskurðurinn um borð í geimfarinu
okkar.
Nú er komið að því að sótthreinsa
farið innan einu sinni enn. Það er
gert mánaðarlega. Allir fletir em
úðaðir með sótthreinsunarefni og
þurrkað af. Meðan tveir hreinsa
loft og veggi sér sá þriðji um
baðherbergið og salernið...
Við fengum fyrirmæli um að prófa
fjögur pör af skóm. Við drógum um
þá. Herman dró skó með reimum
en ég fékk samskonar skó með
gúmmíspennum. Yfirleitt þykja okk-
ur best lág stígvéi með mjúkum
sólum og rennilás. Þau eru þægileg-
ust.
Fyrir kvöldtnatinn var Herman
lengi inni í baðkiefanum. Þegar við
settumst að borði kom í ljós, að hann
haíði verið að klippa sig. Þessi nýja