Úrval - 01.06.1976, Page 103

Úrval - 01.06.1976, Page 103
MILLIJARÐAR OG MARS 101 eitt fyrir mér, og mér finmt ég aftur vera kominn um borð. Ég hef stöðugan són fyrir eyrun- um. Það er þögnin, sem hefur þessi áhrif. Ég lít á klukkuna. Hún er næstum tvö. Herman og Bóris hafa heldur ekki sofnað, heldur byita sér eirðarlausir í rúmunum. Endurminn- ingarnar halda fyrir okkur vöku. Þegar ég lýk upp augunum um morguninn, veit ég ekki hvar ég er. Svo rifjast það upp fyrir mér. Mér verður rórra og mig langar að sofna aftur. ,,Andrei!” Það er rödd Hermans. „Hvernig líður þér?” „Svona og svona. Mér fínnst ég ekki vera útsofinn. Hausinn á mér er þungur og ég hef suðu fyrir eyr- unum.” ,,Mér líður eins. Og Bóris iíka.” Okkur langar ekki að gera líkams- æfíngar. Ég er allur grútmáttlaus. En það eru engin grið gefín. Við erum vigtaðir, hjartslátturinn kannaður, öndunin, þlóðþrýstingurinn — hvernig getur staðið á þessu? Ég er með ótrúlega háan blóðþrýsting: 140/90. Mig langar ekki að horfa á sjónvarp og nenni ekki að skrifa í dagbókina. Ég tek upp bók en fínn að ég get ekki lesið hana. Það er eins og við höfum týnt fjöreggjunum okkar. Tíminn líður hraðar, hann raunar þýtur hjá. Nú koma læknarnir grímulausir að skoða okkur. Nú sjáum við lifandi aldlit og bros. Strákarnir reykja af nautn eftir matinn. Við fáum að skreppa heim í einn dag. Ég er spenntur, þegar ég fer í venjuleg föt aftur: Buxur, skyrtu, jakka og skó. Það er skrýtið, að mér finnst þetta ekki vera fötin mín. Ég ákveð að bjóða Víólettu út. Ég hef talað við hana í síma. Ég meira að segja skrifaði henni bréf. En það kemur ekki í stað þess að hitta hana. Eftir matinn hringdi ég til hennar og við ákváðum að hittast. Hún var eins og snædrottningin, í hvítum loðfeldi með hvíta loðhúfu. Hún tekur nokkrar hvítar krísantemur upp úr skjóðu sinni og réttir mér. ,,Það er svo langt síðan þú hefur séð blóm,” segir hún og brosir. , ,Hafðu þau undir frakkanum þínum svo þau frjósi ekki.” Það er kalt. Vindurinn er nístandi, en við tökum ekki eftir því, þar sem við eigrum um snævi þakinn garð. Landið er beinlíms ótrúlegt, yfir- náttúrlegt. Snævi þakin trén, grein- arnar slútandi undan snjóþungan- um, tígulegir teinungar og risavaxnar furur umhverfis. Ég staldra við í frostloftinu áður en ég heid inn 1 hressingarheimilið, þar sem ég á að vera mánuð í hvíld. Stofufélagi minn heitir Alexander, eða Sasja, eins og hann kynnir sig. Við vorurn fljótir að vingast. Það líður ekki á löngu áður en Herman og Bóris koma. Þessir dagar verða ógleymanlegir. Við erum umkringdir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.